Hús dagsins: Melar, ofan Akureyrarflugvallar

Hátt upp í brekkunum ofan Akureyrarflugvallar,P2060985 skammt norðan við Kjarnaskóg stendur húsið Melar. Býlið var stofnað árið 1918 af Þorsteini Kristjánssyni, en hann hafði fengið erfðafestuland úr landi Kjarna, um einn hektara að stærð. Núverandi hús er hins vegar ekki svo gamalt, en það reistu Árni Böðvarsson og Hólmfríður Stefánsdóttir árið 1938. Við athugun síðuhafa var ekki að sjá, að þeirra eða húsi þeirra væri getið í bókunum Bygginganefndar um það leyti, enda hefur þessi staður mögulega talist utan „lögsögu“ hennar vegna fjarlægðar frá þéttbýlinu. En í Manntali 1940 kemur fram, að húsið sé tveggja ára og kemur þar einnig fram, að þar er hvorki salerni né vatnslögn.

     Melar er einlyft r-steinshús á háum steyptum kjallara með einhalla, aflíðandi þaki. Veggir eru með múr og bárujárn á þaki og einfaldir póstar í gluggum.

     Sem áður segir, hófst búskapur á Melum árið 1918. Ekki var um stórbýli að ræða og fyrsti ábúandinn ekki titlaður bóndi. Þar sem býlið var byggt úr landi Kjarna tilheyrði það í raun Hrafnagilshreppi. Það var nefnilega ekki fyrr en tveimur árum síðar, eða 1920, sem jarðirnar Hamrar og Kjarni voru formlega lagðar undir lögsagnarumdæmi Akureyrar, enda þótt bærinn síðarnefndu jörðina tíu árum fyrr. Árið 1925 keypti maður að nafni Benedikt Björnsson Mela en ábúendur þá voru bræður hans, Böðvar og Kristján. Böðvar lést árið 1933 og þremur árum síðar eru Melar sagðir fara í eyði. Nokkru síðar, mögulega 1938, keyptu synir Böðvars, þ.á.m. fyrrnefndur Árni, býlið af föðurbróður sínum og hófu þar mikla uppbyggingu. Auk hins nýja íbúðarhúss, sem enn stendur reistu þeir fjós og keyptu stærra erfðafestuland og varð jörðin alls 8 hektarar. Þegar mest var, samanstóð áhöfn Mela í tíð Árna og Hólmfríðar af fjórum kúm, 14 kindur og þremur hrossum. Árni og Hólmfríður bjuggu á Melum til ársins 1946 og átta árum síðar keypti Tilraunaráð ríkisins Mela. Eigandi þá var Erlingur Davíðsson, ritstjóri og rithöfundur. Tilraunaráðið hafði umsvif á torfunni sunnan og ofan Gróðrarstöðvarinnar til ársins 1974 er starfsemin var flutt að Möðruvöllum í Hörgárdal og húseignir hennar hér þ.m.t. Melar voru seldar. Hafa síðan ýmsir átt húsið og búið þar. Árið 1980 var byggt við húsið til norðurs, eftir teikningum Svans Eiríkssonar.

     Íbúðarhúsið á Melum er reisulegt en látlaust hús í mjög góðri hirðu á einstaklega skemmtilegu bæjarstæði, hátt á brekkubrún. Hefur staðsetning þess verið enn meira áberandi, áður en bæjarbrekkurnar skrýddust trjágróðri en umhverfi hússins er einstaklega skemmtilegt; skógarreitur á aðra hönd og beitilönd hrossa á hina. Þá setur annað mannvirki norðan við húsið einnig skemmtilegan svip á umhverfið, en þar um að ræða skipstjórnarhús „brú“ af skipi. Húsið á Melum er vitaskuld ekki þátttakandi í neinni götumynd- enn sem komið er- en hver veit nema þéttbýlið nái til Mela þegar fram líða stundir. Í því samhengi má nefna, að  árið 2021 er bein loftlína frá Melum að Wilhelmínugötu, útvörð þéttbýlis í suðri á Akureyri, um 360 metrar. Tuttugu árum fyrr voru þessi sömu mörk um 1700 metrum norðan Mela, við Miðteig.

Meðfylgjandi mynd er einmitt tekin þann 6. febrúar 2021 á mótum Naustabrautar og téðrar Wilhelmínugötu, syðst í Naustahverfi (Hagahverfi).

Heimildir: Guðmundur Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. II bindi. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Manntal á Akureyri 1940.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnór. Ég hef verið að lesa ævisögu Káins e. Jón Hjaltason. Þar kemur fram að K. fæddist og ólst upp þar sem nú er Aðalstræti 76. Mynd fylgir af húsinu þegar búið var að flytja það á Oddeyri. Stóð það lengi þar? Er það nokkuð til enn? Átt þú kannski nýlegri mynd af því?

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 7.3.2021 kl. 19:09

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Húsið þar sem Káinn fæddist stóð við Strandgötu 25, en var rifið árið 1914 þegar núverandi hús (löngum kallað Alaska) var reist. Sjálfsagt ekki margar myndir til af því, einna helst að það sjáist á götumyndum af Strandgötu.

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 8.3.2021 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 51
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 315
  • Frá upphafi: 420253

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 220
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband