Hús dagsins: Hofsbót 4

Um daginn vorum við stödd úti í Glerárþorpi, eftir að hafa dvalið um nokkurt skeið við syðstu byggðir Akureyrar. En nú förum við milliveginn- bókstaflega- því nú ber okkur niður í Miðbænum. 

Hofsbót er stutt gata (um 150m) sem tengir efsta hluta P1190980Strandgötu í norðri og Skipagötu í suðri og liggur í boga yfir bílastæðasvæði Miðbæjarins. Þessi hringtenging er uppistaða í hinum valinkunna „rúnthring“ Miðbæjarins. Kannski halda einhverjir, að Hofsbót dragi nafn sitt af Menningarhúsinu Hofi, en það er sjálfsögðu ekki svo, enda gatan til komin áratugum á undan Hofi. Hofsbót er gamalt heiti á Akureyrarhöfn eða krikanum við suðvesturhluta Oddeyrar og jafnvel Pollinum öllum (sbr. Steindór Steindórsson 1993: 134). Miðbæjarsvæðið hefur þannig löngum kallast Bótin, og íbúar þess „Bótungar“. Í upphafi 3. áratugs 21. Aldar stendur aðeins eitt hús við Hofsbót, en þeim kann að fjölga, gangi hugmyndir um nýtt Miðbæjarskipulag eftir.

Umrætt hús er Hofsbót 4. Húsið var fullbyggt 1988, en það var á vordögum 1987 að Verkfræðistofa Norðurlands auglýsti eftir tilboðum í byggingu 3500 m3 húss en auk þeirra stóðu Fatahreinsun Vigfúsar og Árna og þrír tannlæknar að byggingu hússins. Öllum tilboðum var hafnað.  Engu að síður var bygging hússins hafin í lok september 1987. Byggingarmeistarar hússins voru Jón Björnsson, Björgvin Björnsson og Sigurður Arngrímsson en húsið var teiknað á teiknistofunni Form. Á upplýsingakorti Akureyrarbæjar birtast fjölmargar teikningar af húsinu og hlutum þess, áritaðar af Eiríki Jónssyni.

            Hofsbót 4 er fjögurra hæða steinsteypuhús með flötu þaki.  Efsta hæð er inndregin sunnan og þar eru svalir, en þá er einnig útbygging til vesturs og svalir ofan á þeim. Gluggasetning efri hæða er þannig, að þrír gluggar sitja saman með breiðum timburþiljum á milli, og hvert „gluggastykki“ aðskilið af steyptum þverböndum. Á jarðhæð eru verslunargluggar. Efsta hæð er að mestu glerjuð, en þar er um nýlega framkvæmd að ræða. Veggir eru múrhúðaðir en dúkur á þaki.

            Húsið hefur frá upphafi hýst hina ýmsu starfsemi, þarna var sem áður segir fatahreinsun á neðstu hæð, ljósmyndaþjónusa og framköllun, tannlæknastofur á efri hæðum og Verkfræðistofa Norðurlands var í húsinu frá byggingu. Hún sameinaðist árið 2011 verkfræðistofunni Eflu undir nafni hinnar síðarnefndu. Jarðhæð hefur löngum skipst í tvö verslunarrými; nú eru í syðri hluta rakarastofa en í vefnaðarvöruverslunin Vogue hefur verið í nyrðri hluta um árabil. Íbúð er á efstu hæðinni, en hún var innréttuð um 2018 eftir teikningum Árna Gunnars Kristjánssonar.

Fyrir fáeinum misserum fóru miklar endurbætur fram á efstu hæð hússins en að öðru leyti er það að mestu óbreytt frá upphafi. Húsið setur nokkurn svip á Miðbæinn og er í ágætu samræmi við nærliggjandi byggingar, hvað varðar stærð og útlit. Það tekur þátt í sameiginlegri sexhyrndri götumynd efsta hluta Strandgötu, Ráðhústorgs, Skipagötu og Hofsbótar, sem á uppruna sinn í fyrsta Aðalskipulagi Akureyrar frá 1927. Húsið er ekki talið hafa verulegt varðveislugildi í Húsakönnun 2014, enda á það yfirleitt ekki við um hús á þrítugs- eða fertugsaldri. Kannski mun Hofsbót 4 hljóta varðveislugildi þegar líða tekur á þessa öld...Myndin er tekin þann 19. janúar 2020.

Heimildir: Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf

Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll. Mér finnst þetta nú frekar ljótt hús, en ekki samt eins slæmt og Strandgata 3 (Sjóvár-húsið), fyrst og fremst af því hve hátt það er og byrgir útsýnið frá Ráðhústorgi. Ég varð hissa á því þegar svona hátt hús var byggt þarna. Hvernig væri að taka það fyrir bráðlega?

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 29.3.2021 kl. 00:32

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Þetta er nokkuð frábrugðið umræddri röð að gerð, það er rétt. Hönnun næsta hús sunnan við, Sparisjóðshússins (Skipagötu 9) virðist taka frekar mið að Skipagötu- Ráðhústorgsröðunum- þótt verulega frábrugðið sé. Sjóvárhúsið er einmitt dálítið mikið hærra og umfangsmeira en nærliggjandi hús- ég tók það einmitt stuttlega fyrir á upphafsárum þessarar síðu (https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/975016/)  og tefldi þar saman andstæðunum, nr.3 og 7. þar sem annars vegar er um að ræða sex hæða steinsteypt stórhýsi frá lokum 20. aldar og lágreist timburhús frá upphafi sömu aldar hins vegar. En ekki ólíklegt, að ég taki Sjóvarhúsið fyrir í eitthvað lengra máli á næstu dögum eða vikum...

Arnór Bliki Hallmundsson, 30.3.2021 kl. 14:42

3 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

PS. Afrita þarf tengilinn hér að ofan yfir í veffangastiku og fylgja honum eftir þar...það virðist ekki vera hægt að búa til tengla í athugasemdum...undecided

Arnór Bliki Hallmundsson, 30.3.2021 kl. 14:44

4 identicon

Takk f. þetta, ég er búin að skoða færsluna frá 2009. Þú segir að háhýsið hafi verið byggt 1998-2000, en ég er nokkuð viss um að það var byrjað að byggja það 1994. Ég man að ræddi þessa byggingu við gamla skólasystur sem ég heimsótti þá (og líka 1990 og 92), en næst þegar ég kom norður (1997 eða 99) var hún flutt suður.

En það er ekki að marka að skoða gamlar ljósmyndir, því ég forðast alltaf að láta hálfbyggð hús rata inná mynd hjá mér.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 31.3.2021 kl. 10:05

5 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl aftur.

Ég á því miður engar myndir í mínum fórum, sem sýna þetta svæði. Ég hins vegar flyt í bæinn snemmsumars 1997 og man þá eftir malarplani á þessum stað og bílastæði. Minnir að hjólabrettakappar hafi nýtt þetta svæði óspart. Man einhverjar deilur um vorið og sumarið 1998 en um veturinn hófst uppsteypa o.s.frv. Um jólin 1998 var upplýstur jólasveinn og sleði á byggingarkrananum þarna, sem ég sá út um gluggann í Gránufélagsgötu, þáverandi heimili mínu. (Hér eru teikningar dagsettar í okt ´98: https://gagnasja.akureyri.is/Teikningar/Strandgata/C8423.pdf )  Ég er hins vegar að reyna að rifja upp, hvaða hús það gæti verið á þessum slóðum sem byggt var um 1994. 1992-96 voru auðvitað byggð nokkur stórhýsi á Miðbæjarsvæðinu t.d. áðurnefnd Skipagata 9, "Pedróhúsið" (Skipagata 16) og stórhýsi á Torfunefi, Kaupangsstræti 1 (Hýsti eitt sinn RÚV, oft kennt við Subway, sem hefur verið þar frá því húsið var byggt. En þessi hús eru reyndar á allt öðrum stað í Miðbænum.

Arnór Bliki Hallmundsson, 1.4.2021 kl. 19:55

6 identicon

Sæll. Líklega er þetta misminni, stundum festast hlutir ekki rétt í minningunni. Ætli ég hafi ekki séð þetta 1999, og rætt þetta svo við konuna næst þegar við hittumst hér f. sunnan.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 2.4.2021 kl. 12:45

7 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Ég kannast við það, að minnið er víst ekki alveg óbrigðult og stundum renna nokkur ár saman í eitt. Og það þótt árin séu hvorki mörg né mjög langt um liðið...

Arnór Bliki Hallmundsson, 3.4.2021 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 46
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 326
  • Frá upphafi: 420299

Annað

  • Innlit í dag: 26
  • Innlit sl. viku: 221
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband