30.12.2015 | 08:40
Húsaanáll 2015
Í fyrrahaust tók ég upp á því að taka skipulega fyrir eldri götur bæjarins, hús fyrir hús, og hélt uppteknum hætti þetta árið. Fyrstu mánuði ársins einbeitti ég mér að götum á Oddeyrinni, byggðum á 4.áratug sl. aldar. Fyrsta "Hús dagsins" á árinu 2015 birtist þann 2.janúar á slaginu klukkan 11. (Þess má geta að þessir pistlar birtast yfirleitt ekki um leið og þeir eru skrifaðir. Yfirleitt hef ég þegar "for-ritað" þá í ritvinnslu og færi þá hingað inn fullskrifaða. Síðan læt ég líða nokkrar klukkustundir eða sólarhring og fer þá yfir m.t.t. málfars og ásláttarvillna. Þennan háttinn hef ég haft sl. 2 ár eða svo og sá sem rennir yfir pistlana síðustu 6 árin gæti mögulega greint aukinn metnað hjá höfundi í þeirri viðleitni að vanda til verka).
Fyrsta greinin var um Eiðsvallagötu 22. (1930). Birt 2.jan.
Eiðsvallagata 24 (1930) Birt 4.jan.
Eiðsvallagata 26 (1931) Birt 7.jan.
Eiðsvallagata 28 (1946) Birt 10.jan.
Eiðsvallagata 32 (1949) Birt 11.jan.
Í þessum skrifum leiðir ævinlega eitt af öðru. Ég ákvað að taka fyrir flest þau íbúðarhús á Oddeyrinni, sem
a) standa á reitnum sem afmarkast af Eiðsvallagötu í suðri og Eyrarvegi í norðri
b) eru byggð fyrir árið 1940 (yngri hús á könnunarsvæði fá vitanlega að fljóta með)
Næst á dagskrá var Norðurgatan að Eyrarvegi:
Norðurgata 28 (1924) Birt 17.jan.
Norðurgata 30 (1923) Birt 20.jan
Norðurgata 32 (1930) Birt 23.jan
Norðurgata 34 (1930) Birt 26.jan
Norðurgata 35 (1939) Birt 30.jan
Norðurgata 36 (1930) Birt 31.jan
Norðurgata 37 (1933) Birt 7.feb
Norðurgata 38 (1929) Birt 8.feb
Norðurgata 40 (1946) Birt 14.feb
Og ekki var hægt annað en að taka fyrir næstu tvær götur neðan við. Ég fór í myndagöngutúra um Ránargötu og Ægisgötu nokkra vetrardaga í froststillu þ. 31.jan en í hláku og sunnanátt 8. og 15.febrúar. Ein ófrávíkjanleg regla í þessu er sú að tilgreina ALLTAF dagsetningu mynda sem ég birti með færslunum. Þannig verða þessar myndir ekki aðeins heimildir um húsinu heldur einnig veðurfar!
Ránargata 1 (1931) Birt 20.feb
Ránargata 3 (1931) Birt 24.feb
Ránargata 4 (1932) Birt 3.mars
Ránargata 5 (1933) Birt 6.mars
Ránargata 6 (1932) Birt 8.mars
Ránargata 7 (1934) Birt 11.mars
Ránargata 9 (1934) Birt 15.mars
Ránargata 10 (1950) Birt 17.mars
Ránargata 11 (1971) Birt 20.mars
Ránargata 12 (1946) Birt 25.mars
Ránargata 14 (1985) Birt 28.mars
Við neðanverða Ægisgötu er mjög skemmtileg húsaröð eftir Tryggva Jónatansson...
Ægisgata 1 (1939) 4.apríl
Ægisgata 2 (1936) 7.apríl
Ægisgata 3 (1939) 10.apríl
Ægisgata 4 (1936) 13.apríl
Ægisgata 5 (1939) 15.apríl
Ægisgata 6 (1937) 17.apríl
Ægisgata 7 (1939) 18.apríl
Ægisgata 8 (1936) 19.apríl
Ægisgata 10 (1937) 20.apríl
Ægisgata 11 (1937) 21.apríl
Ægisgata 12 (1936) 22.apríl
Ægisgata 13 (1937) 23.apríl
Eins og sjá má "dældi ég út" pistlunum um Ægisgötuna vikuna 17.- 23.apríl. Þar má nefna að flestir þessa pistla voru löngu tilbúnir en þennan vetrarpart tók ég upp á því að skrifa aðeins á afmörkuðum tíma- líkt og margir rithöfundar venja sig á. Allir pistlarnir um Ægisgötu og Ránargötu eru nefnilega skrifaðir á sama tíma vikunnar í lok febrúar og mars! Nánar tiltekið: Allar greinarnar um Ægisgötu og Ránargötu eru skrifaðar milli kl 22 og 02 á nokkrum laugardagskvöldum síðari hluta febrúar og í mars, í öll skipti undir ljúfum tónum Næturvaktarinnar á Rás 2, í umsjón Guðna Más Henningssonar.
Með vorinu færði ég mig af Eyrinni og út í Glerárþorp og inn í Innbæ.
Kristnes í Glerárþorpi (1932) 3.maí
Aðalstræti 66 (1843) 18.maí
Aðalstræti 12 (1958) 9.júní
Eyri í Sandgerðisbót, Glerárþorpi (1927) 12.júní
Þann 25.júní voru liðin 6 ár frá því ég hóf að birta myndir og fabúlera um gömul hús hér á síðunni. Þann dag var hið 156 ára Gamla Apótek við Aðalstræti 4 kippt af grunni sínum og gerði ég því að sjálfsögðu skil hér. Þess má geta að húsið var flutt aftur á nýjar undirstöður þ. 13.október.
Segja má að hásumarið hafi verið helgað gömlum býlum á Brekkunni eða húsum sem eru umtalsvert eldri en nærliggjandi byggð. Þann 19.júní sl. var haldið upp á 100 ára kosningaréttar kvenna og að því tilefni var blásið til mikils fagnaðar í Lystigarðinum. Á leiðinni þangað myndaði ég tvö gömul grasbýli við Þórunnarstrætið:
Þórunnarstræti 97 (1926) 29.júní
Þórunnarstræti 89 (1927) 1.júlí
Yfirleitt er því þannig háttað hjá mér- að fyrst mynda ég hús- svo kíki ég á Héraðskjalasafn, timarit.is eða Landupplýsingakerfi og svo hefjast skriftir. Daginn sem ég birti færsluna um Þ97 lagði ég upp í göngutúr um Brekkuna, upp í Byggðirnar og niður Byggðaveg en þar myndaði ég eftirtalin hús:
Goðabyggð 7 (Vesturgata 9; Silfrastaðir) (1935) 8.júlí
Ásabyggð 16 (Vesturgata 13) (1935) 14.júlí
Þann 15.júlí átti ég leið upp í Lundahverfið. Á leiðinni niður á Eyri myndaði ég hús við Oddagötu auk Melshúsa og Þrúðvangs:
Hrafnagilsstræti 27 (Þrúðvangur) (1935) 20.júlí
Byggðavegur 142 (fyrrum íb.hús við Gefjun) (1898) 23.júlí
Ytra Melshús; Oddagata 3b (1905) og
Syðra Melshús; Gilsbakkavegur (1906) 26.júlí
Í ágúst tók ég fyrir elstu húsin við Fjólugötu á Oddeyri:
Fjólugata 1 (1933) birt 4.ágúst
Fjólugata 2 (1932) birt 8.ágúst
Fjólugata 3 (1933)birt 11.ágúst
Fjólugata 4 (1932)birt 14.ágúst
Fjólugata 5 (1933) birt 15.ágúst
Fjólugata 6 (1933) birt 18.ágúst
Fjólugata 7 (1934)birt 22.ágúst
Fjólugata 8 (1933) birt 23.ágúst
Fjólugata 9 (1934) birt 25.ágúst
Fjólugata 10 (1933) birt 29.ágúst
Í september var það síðan Laxagatan á ofanverðri Oddeyri:
Gránufélagsgata 7 (1912) 6.sept.
Laxagata 2 (1932) birt 13.sept.2015
Laxagata 3 (1933) birt 15.sept 2015
Laxagata 4 (1932) birt 17.sept 2015
Laxagata 5 (1933) birt 21.sept. 2015
Laxagata 7 (1943) birt 23.sept 2015
Laxagata 8 (1935) birt 26.9.2015
...inni í Innbæ stendur svo eitt hús sem áður stóð við Laxagötuna og sjálfsagt að það fylgdi í kjölfarið
Aðalstræti (1929) 2.okt.
Oddagötu á neðri Brekku tók ég fyrir í október. Gilsbakkavegur er nk. "systurgata" Oddagötunnar á nefinu á milli Grófargils og Skátagils og tók ég í kjölfarið fyrir þrjú elstu hús Gilsbakkavegar.
Oddagata 1 (1927) birt 11.okt.
Oddagata 3 (1927)birt 16.okt.
Oddagata 9 (1928) birt 21.okt.
Oddagata 7 (1933) birt 24 okt
Oddagata 11 (1927) birt 28.okt
Oddagata 15 (1946) birt 1.nóv
Gilsbakkavegur 1 (1923) 4.nóv
Gilsbakkavegur 1a (1935) 10.nóv
Gilsbakkavegur 5 (1926) 13.nóv
Síðustu sex vikurnar hef ég tekið eftirfarandi hús fyrir:
Hólabraut 17 (1933) 17.nóv
Gránufélagsgata 23 (1934) 25.nóv
Gránufélagsgata 16 (1926) 29.nóv
Brekkugata 13 (1904) 6.des
Jaðar í Glerárþorpi (1915) 13.des
Aðalstræti 3; ísbúðin Brynja (1946) birt 19.des.
Ég ákvað að setja "Hús dagsins" í jólafrí fram yfir áramót en fyrsti húsapistill birtist væntanlega í fyrstu viku ársins 2016. Á nýju ári mun ég að mestu halda mig við Neðri Brekku og Miðbæ, Bjarmastígur, Brekkugata og Oddeyrargata verða líklega nokkuð í sviðsljósinu hjá mér fyrstu mánuði nýs árs. Hvenær ég fæ endanlega nóg af þessu og set punktinn við umfjöllunina er engin leið að vita- ég sé a.m.k ekki fram á það á næstunni.
En svona lítur tölfræði ársins út.
Árið 2015 skrifaði ég um 87 hús.
Meðalaldur þeirra var tæp 83 ár en það rímar ágætlega við þá staðreynd að flest húsanna voru byggð 1933 (12hús) og 1932 ( 8 hús ). Langflest "Húsa dagsins" voru byggð á bilinu 1927 til 1946.
(Vitaskuld er fyrirvari á byggingarárum og skal þessari tölfræði ekki tekið sem heilögum vísindum- hún er aðeins til glöggvunar og gamans. Þess má geta, að sé byggingarleyfi húsa getið síðla hausts (okt-des) í fundargerðum Bygginganefndar, reikna ég byggingarár sem næsta ár á eftir)
Lauslega áætlað gekk ég árið 2015 um 65 km um götur Akureyrar með myndavélina fyrir húsamyndatökur og þá tel ég aðeins myndatúra. Oft er ég með myndavélina meðferðis þó ég fari annarra erinda.
Að öðru leyti óska ég öllum lesendum gleðilegs nýs árs og þakka innlit og góðar viðtökur á árinu. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir við greinarnar er upplagt að senda skilaboð í Gestabók hér til hliðar, eða í pósti á hallmundsson@gmail, og svo er ég auðvitað á Facebook. Því miður rennur athugasemdafrestur við hverja grein út á tveimur vikum og kann ég ekki að eiga við það. Þessir pistlar eru að sjálfsögðu ekki meitlaðir í stein- það er eðli veraldarvefjarins.
Bloggar | Breytt 16.7.2019 kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2015 | 12:51
Jólakveðja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2015 | 16:26
Hús dagsins: Aðalstræti 3; Verslunin Brynja
Brynjuísinn er fyrir löngu orðinn eitt af "vörumerkjum" Akureyrar og sennilega eru þeir margir sem VERÐA að fá sér Brynjuís í hvert sinn sem þeir heimsækja Akureyri. (Svipað og ég VERÐ helst alltaf að fara í Geisladiskabúð Valda á Laugavegi í Reykjavíkurheimsóknum ). En þessi nafntogaða ísbúð stendur nyrst við Aðalstrætið, skammt undan kjafti Búðargils.
Enda þótt Aðalstræti 3 sé tæplega 70 ára gamalt er það í hópi yngstu húsa við Aðalstrætið. Húsið reistu þeir Steinþór Jensson og Þorvaldur Jónsson árið 1946 eftir teikningum Stefáns Reykjalín. Sá fyrrnefndi hafði keypt verslunarrekstur Brynju sem þá var í Aðalstræti 2. Lóðin hafði þá verið óbyggð í rúma 3 áratugi en þarna stóðu áður geymsluhús sem eyðilögðust í Bæjarbrunanum 1912. Húsið, sem tekið hefur nokkrum breytingum frá upphafi er tvílyft steinsteypuhús með lágu valmaþaki. Byggt var við húsið að norðan um 1988 og verslun stækkuð en um 2002 var byggður bílskúr við sömu hlið. Á þaki viðbygginga eru svalir og sólskáli einnig eru svalir á efri hæð götumegin og þar undir lítið port þar sem finna má bekki, ætlaða viðskiptavinum verslunarinnar. Í gluggum eru einfaldir lóðréttir póstar, tiltölulega nýlegir. Sem áður segir hefur húsið verið verslunarhús frá upphafi en verslunin Brynja er raunar sjö árum eldri en húsið sjálft, var stofnuð í Aðalstræti 2, húsinu skáhallt á móti árið 1939. Íbúð er á efri hæð hússins en verslun og allt sem henni tilheyrir (lager, kaffistofa o.fl.) á neðri hæð. Gengið er í verslun að vestan það er frá götu en á suðurhlið er inngangur fyrir íbúðina.
Verslunin sem slík hefur auðvitað tekið ýmsum breytingum gegn um tíðina, bæði stækkað og innréttingum breytt en ísinn góði mun hafa fylgt nafni Brynju um langan aldur, og í þessu riti segir að uppskriftin sé frá 1952. Brynja er hins vegar ekki bara ísbúð heldur fást þar flestar matvörur, mjólk, kjötbúðingur, rauðkál í dós o.fl. Þannig er búðin sérleg "kaupmaðurinn á horninu-verslun" í Innbæinga og er hún ein örfárra matvöruverslana á landinu þar sem allt er afgreitt yfir borð. Þess má líka geta að þarna fást rafhlöður, ég hef t.d. oftar en einu sinni bjargað mér um þær í Brynju í myndaleiðöngrum um Innbæinn þegar vélin reynist straumlaus. Húsið og allt umhverfi þess og frágangur er með snyrtilegasta móti og til mikillar prýði; mikið listaverk er á framhlið þar sem gengið er inn í verslunina. Á góðviðrisdögum er búðin oftar en ekki troðfull og jafnvel röð út á stétt enda Brynjuísinn einstaklega heppilegur á sólardögum. Sjálfur er ég í hópi þeirra sem finnst Brynjuísinn einn sá besti og það er raunar algengara en hitt að ég láti undan freistingunni að fá mér einn slíkan þegar ég á leið um Innbæinn. Þessi mynd er tekin þann 14.júní sl. sumar.
Heimildir: Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Sjá tengil í texta hér að ofan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2015 | 15:30
Hús dagsins: Jaðar í Glerárþorpi; Stórholt 8
Á lóð númer 8 við Stórholt stendur nýlegt (byggt 1990) og reisulegt steinsteypt einbýlishús. Það er byggt eftir teikningum Aðalgeirs Stefánssonar. En á bakvið það hús, nánast í hvarfi séð frá götunni stendur hinsvegar elsta hús götunnar og raunar eitt af elstu húsum Glerárþorps. Er það húsið Jaðar. Húsið á 100 ára afmæli í ár en það mun byggt 1915.
Þar sem Glerárþorp varð ekki hluti af Akureyri fyrr en 1955 koma gömlu býlin þar ekki við sögu í fundargerðum Bygginganefndar Akureyrarbæjar. Ekki er talið fullljóst hvenær húsið er byggt en samkvæmt Steindóri Steindórssyni (1993:137) er húsið byggt 1915, en fyrst mun byggt á Jaðri árið 1908 (sama heimild: 92). Hér miða ég við byggingarárið 1915. Í manntali árið 1920 er tvíbýlt á Jaðri í Glæsibæjarsókn- sem ég geri ráð fyrir að sé þetta hús. Annars vegar búa þau Einar Maríus Sigurjónsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir og hins vegar Eðvarð Viggó Guðbrandsson og Guðlög Steingrímsdóttir á Jaðri. Því er ekki óvarlegt að áætla að þau hafi reist húsið- en sá fyrirvari er á því að manntalið er tekið fimm árum eftir (ætlaða) byggingu hússins. Jaðar er einlyft steinsteypuhús (eða forskalað timburhús) með lágu risi. Einfaldir póstar eru í gluggum og bárujárn á þaki og stendur húsið á lágum grunni. Líkast til er húsið lítið sem ekkert breytt frá upphafi að ytra byrði en gluggapóstar kunna að hafa verið öðruvísi í upphafi. Nú er húsið nýtt sem geymsla en ekki hefur verið búið í því um árabil. Húsið virðist í nokkuð góðu standi og er einfalt og látlaust að gerð. Grunnflötur hússins er líklega um 6x10m. Ef Jaðri í Glerárþorpi er flett upp á timarit.is koma ekki upp neinar auglýsingar um starfsemi eða verslun. En eins og gengur og gerist með 100 ára hús er mikil saga bakvið það, þó ekki sé hún skráð nema á blöð eða vef.
Húsið er e.k. "leyndarmál Stórholtsins" því hér er um að elsta hús götunnar, og sést það ekki frá götu. Jaðar fagnar aldarafmæli á þessu ári, sem lýkur eftir tæpar þrjár vikur þegar þetta er ritað, og er raunar eitt af elstu húsum Akureyrar norðan Glerár. Það er mitt álit öll gömlu býlin í Glerárþorpi eigi skilyrðislaust að friða- og hananú og þar Jaðar að sjálfsögðu ekki undanskilinn.
Sem áður segir virðist húsið í ágætu standi og sama má segja um umhverfi þess. Sunnan við húsið standa tvö gróskumikil silfurreynitré, sem hljóta að vera áratugagömul. Myndirnar með færslunni eru teknar fyrsta dag vetrar, laugardaginn 24.okt. 2015.
Stórholt 8, einbýlishús frá 1990. Sér í norðurstafn Jaðars á bakvið. E.t.v. mætti kalla þetta hús nýja íbúðarhúsið að Jaðri.
Heimildir: Minjastofnun í samvinnu við Hönnun Skipulag (2012). Húsakönnun- Akureyrarbær- Stórholt-Lyngholt. Unnið fyrir Skipulagsdeild Akureyrarbæjar. Aðgengilegt sem pdf -skjal á vefnum. Sótt 13.12.2015 á slóðina http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Storholt_husakonnun.pdf
Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Bloggar | Breytt 16.7.2019 kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2015 | 15:19
Hús dagsins: Brekkugata 13
Síðla árs 1903 var Stefáni Þórarinssyni leyft að byggja hús 12 x16 að stærð (líkast til átt við álnir) norðan við hús Frímanns Jakobssonar (þ.e. Brekkugötu 11). Stefán átti að undirgangast skilyrði vegna götulagningar en ekki kemur fram hver þau skilyrði voru. En Stefán reisti húsið Brekkugötu 13 árið 1904, mögulega í félagi við Hallgrím Kristjánsson en þeir eru skráðir íbúar í húsinu ásamt fjölskyldum sínum árið 1910 en íbúafjöldi hússins það ár er alls 24. Húsið hefur þannig verið parhús frá upphafi.
Brekkugata 13 er tvílyft timburhús með lágu risi og stendur það á háum steinsteyptum kjallara. Á framhlið er húsið klætt steinblikki en panelklæðning á parti en norðurstafn er steyptur og múrsléttaður. Á bakhlið er stigabygging og útbygging við norðurstafn, en auk þess er inngönguskúr á norðurhlið. Bárujárn er á þaki og krosspóstar í gluggum.
Árið 1918 er húsið virt og sagt tvílyft timburhús með lágu risi og á háum steinsteyptum kjallara. Þak er járnklætt. Norðurhluti sem er í eigu Hallgríms Kristjánssonar er sagður 6 herbergi auk geymslu, lóð 329 fermetrar að stærð en suðurhlutinn er sjö herbergi og geymsla, lóð 262 fermetrar. Sá hluti er þá eign Jakobs Stefánssonar verkamanns. Hvor hluti fyrir sig er sagður 5x7,5m og hvorri eign tilheyrir hálfur skúr 3,5x2m og sameiginlegar tröppur, allar að stærð 3,5x1,3m. Alls er húsið virt á kr. 8100, norðurhluti á 4100kr. Inngangur var fyrir miðju. Árin 1936-37 var byggt við húsið til norðurs, það lengt um tvö gluggabil og var sú bygging breiðari en upprunalegt hús. Hönnuður þeirra breytinga var Stefán Reykjalín. Fékk húsið þá að mestu það lag sem það nú hefur, en forstofubygging kom raunar enn síðar. Stigabyggingin hefur að öllum líkindum verið frá upphafi- og líkast til er sú bygging hálfi skúrinn sem fram kemur í virðingunni frá 1918.
Um áratugaskeið hefur verið verslun og þjónusta í kjallara- og er enn í dag og fletti maður heimilisfanginu upp á timarit.is koma 368 niðurstöður. Með þeim elstu eru auglýsingar frá 1917 þar sem Hallgrímur Kristjánsson verslaði með málningu, loftrósettur og fleira er að byggingum lýtur. Þarna var m.a. rakarastofa og skósmiðir störfuðu þarna um áratugaskeið, Oddur Jónsson frá 1956 og síðar tók Halldór Árnason eða Dóri skó við rekstrinum. Hér er skemmtilegt við viðtal við Halldór frá árinu 2000. Nú er húsgagnaverkstæðið Mublur rekið í kjallara hússins. Á hæðum eru íbúðir og er húsið parhús líkt og í upphafi. Þrjár íbúðir eru í húsinu, tvær í norðurhluta og ein í þeim syðri. Húsið er orðið 100 ára gamalt- og ellefu árum betur þegar þetta er ritað- og telst því friðað skv. Þjóðminjalögum. Fyrir um 10-15 árum var það orðið nokkuð hrörlegt en hefur á síðastliðnum árum hlotið þó nokkrar endurbætur, nýlega málað og lítur mjög vel út og virðist í frábæru standi. Lóðin er nokkuð stór og vel gróin, líkt og margar nærliggjandi lóðir. Á suðausturhorni lóðar við götu stendur stórt og gróskumikið tré, sem ég myndi giska á að væri gráreynir eða silfurreynir. Myndirnar með þessari færslu eru teknar þann 24.júlí sl. sumar, að neðan má sjá áðurnefnt tré.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1902-21. Fundur nr. 261 12.nóv. 1903.
Manntal á Akureyri 1910
Fasteignamat á Akureyri 1918, virðingar á fasteignum unnar 1916-17.
Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 131
- Sl. sólarhring: 206
- Sl. viku: 490
- Frá upphafi: 446081
Annað
- Innlit í dag: 104
- Innlit sl. viku: 341
- Gestir í dag: 104
- IP-tölur í dag: 102
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar