24.2.2015 | 08:57
Hús dagsins: Ránargata 3
Í síðustu færslu tók ég fyrir Ránargötu 1. Númer 2 fjallaði ég um fyrir rúmum tveimur
árum ásamt Eiðsvallagötu 7 og því færi ég mig að næsta húsi, þ.e. Ránargötu 3.
Ránargötu 3 reisti Soffía Sigurðardóttir árið 1931 eftir teikningum Halldórs Halldórssonar. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með háu risi og miðjukvisti á bakhlið. Gluggar eru með einföldum lóðréttum póstum, en bárujárn er á þaki. Gert er ráð fyrir svölum út frá miðjukvisti á bakhlið. Upprunalega og lengst af var húsið tvíbýlishús, voru þá íbúðir á neðri hæð annars vegar og efri hæð og risi hins vegar. Að ytra byrði er húsið að mestu leyti óbreytt frá upphafi. Gluggum hefur þó verið breytt, enda þekktust póstar af þeirri gerð sem nú eru í húsinu ekki árið 1931. Kvistur kom mjög snemma á húsið en leyfi fyrir honum var gefið út í ársbyrjun 1932, hugsanlega meðan húsið var enn í byggingu eða fokhelt. Húsið var allt "tekið í gegn" um 2007 en þá var því breytt úr tvíbýli í einbýlishús og nokkrar breytingar gerðar á innra skipulagi hússins. Því má draga þá ályktun að húsið sé allt eins og nýtt að innan en það er einnig vel út lítandi að utan. Ránargata 3 er einfalt og látlaust og gerð og fellur vel að götumyndinni. Það er í hópi elstu húsa við Ránargötuna. Þessar myndir er tekin síðasta dag janúarmánaðar 2015. Neðri myndin sýnir bakhlið hússins með kvistinum en sú hlið snýr að baklóð Norðurgötu 30.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1930-35. ( Fundir dags 5.10.´31 og 11.1.´32.) Óútgefið, aðgengilegt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Landupplýsingakerfi Akureyrarbæjar- sjá tengil hér í hliðarstiku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2015 | 14:33
Hús dagsins: Ránargata 1
Ránargata er vestust og elst þvergatnanna sem liggja út frá Eiðsvallagötu en liggur samsíða Norðurgötu alla leið upp að Grenivöllum. Gatan tók að byggjast á 4.áratug 20.aldar og fyrstu byggingarleyfin vegna húsa við Ránargötu voru gefin út 1930. Í Manntali 1930 eru hinsvegar engir íbúar skráðir við götuna. Gatan er að mestu byggð á aldarfjórðungnum 1930-55, yngri húsin ofar. Eyrarvegur sker götuna og hef ég ákveðið að sú gata verði markalína umfjöllunarinnar hér.
Steingrímur Eggertsson og Kristján Kristjánsson fengu byggingarleyfið haustið 1930 og ári síðar reistu þeir húsið, en teikningarnar gerði Halldór Halldórsson. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með lágu risi, ekki ósvipað mörgum húsum í nágrenninu. Ef húsbyggingarsaga þessa svæðis er skoðuð virðist sem mikið hafi verið byggt árin 1930 og 31, en mun minna næstu árin á eftir. ATH. Þessi fullyrðing er einungis byggð á fljótlegum ályktunum höfundar en ekki studd neinni rannsókn og ber að taka með þeim fyrirvara. Fyrstu árin var einnar hæðar útbygging að norðan en árið 1934 var byggð hæð ofan á hana og húsið væntanlega þá fengið lag sem það nú hefur. Lítil viðbygging var einnig reist vestan megin enn seinna. Sexskiptir eða tvíbreiðir krosspóstar eru í gluggum hússins. Húsið er reist sem íbúðarhús, en sennilega var flutt inn í það eftir áramótin 1931 því enginn íbúi er skráður í húsinu 1.desember 1930- frekar en í nokkru húsi við Ránargötuna. Upprunalega voru tvær íbúðir í húsinu, hvor á sinni hæð og skiptust þær í eldhús, dagstofu og tvö herbergi sem skrifuð er Sv.st. á teikningum og geri ég ráð fyrir að það standi fyrir svefnstofa. Ránargata 1 er skemmtilegt, einfalt og látlaust hús. Það sem helst setur svip sinn á húsið er m.a. snoturt dyraskýli á ofan við framdyr. Myndin er tekin í vetrarsólinni laugardaginn 31.janúar 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35.
Manntal á Akureyri 1930. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt 13.11.2016 kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2015 | 13:50
Öskudagurinn á Glerártorgi
Ég átti leið um Glerártorg, helsta verslunarkjarna okkar Norðanmanna laust fyrir hádegi og einu sinni sem oftar var myndavélin með í för. Ég er, líkt og flestir nú orðið, alltaf með myndavél á mér í símanum en ég nota hana spart. Eiginlega ekki neitt- því fyrir mér er síminn bara til hringinga og skilaboðasendinga. En alls konar fígúrur voru á ferðinni þarna og hér koma nokkrar svipmyndir.
Bloggar | Breytt 19.2.2015 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2015 | 18:06
Norðurgata að Eyrarvegi
Ég hef sett mér það markmið að taka fyrir nánast hvert einasta hús á reitnum Norðurgata- Eyrarvegur- Ægisgata- Eiðsvallagata. Byggingarsögulega má í grófum dráttum skipta Oddeyrinni í þrjú hverfi. Elsti hlutinn og um leið sá er byggðist upp á lengstum tíma er syðsti hlutinn frá Strandgötunni að Eiðsvallagötunni en þar eru hús byggð frá 1873- 1930. Milli Eiðsvallagötu og Eyrarvegar eru hús byggð að mestu leiti hús frá fjórða áratugnum en nyrsti hlutinn er að mestu leyti byggður eftir 1945. Hér fjalla ég helst um gömul hús og miða ég þar almennt við fyrri hluta 20.aldar. (Að sjálfsögðu með undantekningum). Því mun ég láta staðar numið við Eyrarveg í þessari skipulögðu gatnaumfjöllun hér, en að sjálfsögðu er ekki loku fyrir það skotið að taki eins og eitt og eitt hús á Völlunum, Eyrarvegi eða Norðurgötu 40+ síðar meir. En neðan við Eyrarveg standa eftirfarandi hús við Norðurgötu:
Norðurgata 1 (1900)
Norðurgata 2 (1897)*
Norðurgata 2b (1911)
Norðurgata 3 (1899)
Norðurgata 4 (1897)
Norðurgata 6 (1898)
Norðurgata 8 (1933)
Norðurgata 10 (1926)
Norðurgata 11 (1880)**
Norðurgata 12 (1926)
Norðurgata 13 (1886)
Norðurgata 15 (1902)
Norðurgata 16 (1926)
Norðurgata 17 (1880)**
Norðurgata 19 (1920)
Norðurgata 26 (1926)
Norðurgata 28 (1924)
Norðurgata 30 (1923)
Norðurgata 31 (1926)
Norðurgata 32 (1930)
Norðurgata 33 (1927)
Norðurgata 34 (1930)
Norðurgata 35 (1939)
Norðurgata 36 (1930)
Norðurgata 37 (1933)
Norðurgata 38 (1929)
Norðurgata 40 (1946)
* Í umfjölluninni um Norðurgötu 2 fylgir einnig umfjöllun um Strandgötu 23
** Pistlarnir um Norðurgötu 17 og 11 eru tveir fyrstu sem birtust á þessari síðu og eru mjög stuttaralegir. Hér eru ítarlegri greinar um þau hús en þá skrifaði ég fyrir vef Akureyri Vikublað:
Hér kemur örlítil tölfræði sem ég tók saman mér til gamans:
Þetta er ill læsileg í þeirri upplausn sem þetta kemur fyrir hér í færslunni en þarna er reiknað út að meðalaldur húsanna sem standa við Norðurgötuna neðan Eyrarvegar árið 2015 er 98,56ár (Ath. horfin hús eru ekki með í þessum reikningum). 3 hús eru byggð á 9.tug 19.aldar, 5 á 10.áratugnum, 2 á 1.áratug 20.aldar, 1 á 2.áratug 20.a. 10 á 3.áratugnum. 6 á þeim fjórða og eitt hús, nr. 40 er byggt á 5.áratugnum. Við Norðurgötuna standa skv. þessu 8 hús sem byggð eru fyrir aldamótin 1900.
Norðurgatan telur upp í 60 en eins og áður sagði ætla ég að láta staðar numið í skipulagðri umfjöllun hér, þar sem ég dreg Eyrarveginn sem markalínu. En hér eru hins vegar svipmyndir úr ofanverðri Norðurgötunni:
Hér er horft til suðurs við mót Norðurgötu og Grenivalla. Vinstra megin sjást hús nr. 56 og 54 en trjáskrúð skyggir á neðri hús. Norðurgata 38 er þarna áberandi í fjarska með sínn rauða lit. Hægra megin eru 49. 47, 45 og 43. Myndin er tekin á miðnætti á Sumarsólstöðum 20.júní 2012.
Þessi mynd er tekin frá mótum Eyrarvegar og Norðurgötu og hér sjást Norðurgata 42, 44, 46 og einnig má greina þarna nr. 48 og 50 gegn um haustlaufaþykknið. Myndin er tekin á þeirri skemmtilegu dagsetningu 10.október 2010 eða 10-10-10 ;)
Bloggar | Breytt 3.3.2015 kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2015 | 13:38
Hús dagsins: Norðurgata 40
Það er ekki ofsögum sagt að á Oddeyrinni um miðja síðustu öld hafi verið blómlegt verslanalíf. Hverfisverslanir voru þó nokkrar ásamt fjölmörgum sérverslunum enda þekktust stórmarkaðir á borð við Krónuna, Bónus eða Nóatún ekki þá. Á austurhorni Norðurgötu og Eyrarvegar stendur Norðurgata 40, sem er eitt margra húsa sem áður hýstu hverfisverslun, þó ekki sjáist greinilega merki þess í dag (engir stórir búðargluggar t.d.). Húsið reisti Ragnar Jónsson kaupmaður árið 1946. Varðveittar eru teikningar af húsinu frá 22.ágúst 1945 undirritaðar af G. Tómassyni en ekki er ljóst fyrir það G. stendur. Einnig eru járnateikningar eftir Halldór Halldórsson frá maí 1946. En húsið er tvílyft steinsteypuhús með valmaþaki og horngluggum í anda Funkis- stefnunnar. Tröppur eru uppá efri hæð og inngangur á vesturhlið þ.e. Hliðinni sem snýr að Norðurgötu. Gluggar eru með einföldum póstum. Húsið er ekki ósvipað t.d. Eiðsvallagötu 6 og 8 í stórum dráttum en hús með þessu lagi voru ekki óalgeng á þessum árum. Að utan hefur húsið verið einangrað og klætt báruðu plasti sk. "lavella" frá Svíþjóð.(áb. 30.3. ´15 frá Einari í Norðurgötu 38) Neðri hæðin var verslunarrými frá upphafi en 12.ágúst 1947 birtist eftirfarandi auglýsing í Alþýðumanninum:
Undirritaður hefir opnað nýja verzlun í húsinu NORÐURGÖTU 40 undir nafninu HEKLA". Þar fást flestar vörur: Matvörur, hreinlætisvörur, sælgæti, öl og gosdrykkir o. fl. Lítið inn og athugið verð og gæði, og afgreiðslu verzlunarinnar. Akureyri 5.ágúst 1947. Anton Ásgrímsson.
Verslunin í Norðurgötu 40 kallaðist Tonabúð í daglegu tali. Árið 1955 er Kaupfélag Verkamanna hinsvegar komið með útibú í þetta pláss og var þarna fram eftir 7.áratugnum.Húsið hefur síðustu áratugi verið íbúðarhús, ein íbúð á hvorri hæð. Húsinu er mjög vel við haldið og lítur vel út og lóð hefur einnig verið sinnt af alúð og natni. Myndin er tekin fjórða janúar 2015.
Heimildir eru fengnar af Landupplýsingakerfi Akureyrar (sjá tengil hér í hliðarglugga) og vísað er í heimildir af timarit.is í texta með tenglum.
Bloggar | Breytt 31.3.2015 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2015 | 19:22
Hús dagsins: Norðurgata 38
Norðurgötu 38 reistu Jón Sigurðsson og Rannveig Sigurðardóttir árið 1929 eftir teikningum Halldórs Halldórssonar. Í Manntali 1930 sést að í húsinu eru tvær íbúðir í húsinu en þá búa þar áðurnefnd Jón og Rannveig ásamt fjórum börnum sínum og Júlíus Júlíusson og Margrét Sigtryggsdóttir ásamt fimm börnum. Þá eru skráðir í húsinu tveir leigjendur þannig að alls bjuggu hér alls 15 manns. Þess má geta að síðan hefur verið byggt við og húsið og það stækkað verulega ! Húsið hefur um nokkurt árabil verið útvörður byggðarinnar á Eyrinni í norðri en næstu hús norðan við voru ekki reist fyrr en eftir 1940. En Norðurgata 38 er tvílyft steinsteypuhús með háu risi og stórum kvistum. Þá er einnig tvílyft viðbygging austan á húsinu og er hún með lágu risi. Krosspóstar eru í gluggum en stór stofugluggi er á suðurhlið viðbyggingar. Þá er einnig lítill inngönguskúr á norðurstafni. Fyrst var húsinu breytt verulega árið 1964 en þá var viðbyggingin aftan til reist en árið 1986 voru kvistirnir stóru settir á þakið. Kvistirnir setja mikinn svip á húsið, en þeir eru af þeirri gerð sem ég hef stundum heyrt kallaða Hafnarfjarðarkvisti. Húsið er nokkuð dæmigert steinhús frá 3.áratug síðustu aldar og lítur vel út; virðist í góðu standi. Það er svipað gerðar og Norðurgata 36 hvað varðar hæð og byggingarlag og sömu sögu má segja um næsta par sunnan við. Þessi hús gefa götumyndinni skemmtilegan svip. Myndin er tekin 4.jan. 2015.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri
Bloggar | Breytt 14.2.2015 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2015 | 00:46
Hús dagsins: Norðurgata 37
Norðurgata 37 stendur á horni Eyrarvegar og Norðurgötu, vestan megin. Sögu hússins má rekja til ársins 1933, en þann 16.janúar þ.á. fékk Árni Jónatansson leyfi til að byggja á lóð Ólafs Ágústssonar sem jafnframt afsalaði lóðinni til Árna. Þau skilyrði sem sett voru varðandi byggingarleyfið var að ekki skyldu vera útitröppur við húsið, forstofuinngangur á NA-horni og gluggar í kjallara á suðurstafni skyldu vera beint niður af gluggum efri hæðar. Ekki fylgir sögunni hvers vegna þessi skilyrði voru sett. En Norðurgata 37 er einlyft timburhús á háum kjallara og með lágu risi. Það er múrhúðað að utan eða forskalað sem kallað er og gluggar eru nýlegir, án pósta. Lóðin hefur fengið mikla yfirhalningu síðustu ár, steypt upp og reist ný girðing en einnig er við húsið bílskúr, sambyggður skúrum á nr. 35 og Eyrarvegi 20 en sú lóð liggur að Norðurgötu 37 í vestri. Húsið hefur einnig hlotið miklar endurbætur og virðist í góðu standi. Á suðausturhorni hússins hangir skemmtileg, útskorin kýr, sem lætur ekki mikið yfir sér en er býsna skrautleg og á móti hangir númer hússins hangir á hinu horninu. Lengi vel var sérstakur umbúnaður um útidyr, lítið timburskýli, um 1x1,5m að stærð sem náði út á gangstétt og voru þar ytri útihurðir og þrep niður að útidyrum. Þessi bygging var fjarlægð 2011. Ein íbúð er í húsinu. Þessi mynd er tekin 4.jan. 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35 nr 689, 16.jan.1933.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri
Bloggar | Breytt 8.3.2015 kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 91
- Sl. sólarhring: 95
- Sl. viku: 319
- Frá upphafi: 445871
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 206
- Gestir í dag: 48
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar