30.5.2021 | 18:47
Svona á að gera þetta !
Á mótum Tryggvabrautar og Hvannavallareit eða hinum svokallaða Hvannavallareit, á móts við Glerártorg, stendur til að reisa nýja verslun Krónunnar. Stefnt er að opnun hennar haustið 2022. Til þess að rýma fyrir nýbyggingunni þurftu eldri byggingar að víkja, m.a. áttræðir herbraggar. En í þessu tilfelli er það aldeilis ekki svo, að húsin séu mölvuð niður á dagparti, mokað á vörubílspall og sturtað í landfyllingu. Onei, braggarnir voru skrúfaðir í sundur, part fyrir part og bárujárnsplötu fyrir bárujárnsplötu og verða endurreistir á vegum verktaka. Þá var þarna einnig vöruskemma, hlaðið stálgrindarhús byggt 1962, en hana munu bændur nýta á Steinsstöðum í Öxnadal. Ég tel það ætíð fagnaðarefni, ef hægt er að komast hjá algjöru niðurrifi eldri bygginga, er mjög eindreginn húsverndunarsinni. Auðvitað er það svo, að aldrei er hægt að varðveita öll hús skilyrðislaust og koma þar til ýmsar ástæður. En þurfi hús nauðsynlega að víkja, á að leita allra leið til þess, að flytja þau og að þau öðlist "framhaldslíf" á nýjum slóðum. Líkt og tilfellið er hér. Þarna eru ekki einungis sjónarmiðin um varðveislu eldri mannvirkja, heldur er ekki síður um að ræða stórfellda endurnýtingu á nýtilegu efni. Stórkostlegt!
Braggarnir teknir niður þ. 9. maí. sl.
Hér er verið að taka niður fyrrum vöruskemmu KEA, 20. maí 2021.
Hér má sjá Húsakönnun um Hvannavallareitinn. Þar er einmitt lagt til, að braggarnir verði teknir niður og varðveittir annars staðar.
Hér má sjá vöruskemmuna (26. jan. 2014) og braggana (14. okt. 2019).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.5.2021 | 14:14
Hús dagsins: Norðurgata 45
Norðurgötu 45 reisti Finnur Daníelsson árið 1954 en lóðina fékk hann haustið 1953. Byggingaleyfið fékk hann þann 10. júní 1954 en ekki er um frekari lýsingu á húsinu að ræða í bókunum bygginganefndar. Teikningarnar gerði Stefán Reykjalín.
Norðurgata 45 er tvílyft steinhús með háu valmaþaki. Útskot eru norðanmegin á fram- og bakhlið og svalir til suðurs áfastar þeim. Í gluggum eru breiðir krosspóstar, bárujárn á þaki og steining á veggjum. Á svölum á framhlið eru steypt skraut, fjórir ramma með þrískiptu merki, sem minnir á spaða vindmyllu og setur það skemmtilegan svip á húsið, ásamt þykkum steyptum ramma utan um stigahúsglugga á framhlið.
Ef Norðurgötu 45 er flett upp á timarit.is koma 26 niðurstöður, það eru hinar ýmsar tilkynningar og auglýsingar frá hinum fjölmörgu íbúum hússins gegnum tíðina. Finnur G.K. Daníelsson (1909-1999), frá Vöðlum í Önundarfirði, sem byggði húsið var lengst af sjómaður og skipstjóri á hinum ýmsu bátum og skipum. Síðar starfaði hann sem fiskmatsmaður og við skrifstofu á bifreiðaverkstæðinu Baug, sem var til húsa þar sem nú er verslun Hagkaupa, yst við Norðurgötu. Hann var á efri árum nokkuð ötull við að birta hinar ýmsu sögur af sjómannsferli sínum m.a. í Sjómannablaðinu og Víkingi. Kona Finns var Guðmunda Pétursdóttir frá Skagaströnd, lengi vel umboðsmaður happdrættis DAS á Akureyri. Bjuggu þau hér í rúma þrjá áratugi. Hafa síðan ýmsir átt hér heima, en öllum auðnast að halda húsinu vel við í hvívetna.
Norðurgata 45 er látlaust en glæst hús og nokkuð skrautlegt. Það er í mjög góðri hirðu og til mikillar prýði. Það sama á við um steyptan vegg með járnavirki, sem aðskilur lóð og götu. Tvær íbúðir eru í húsinu, ein á hvorri hæð. Þar sem höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um Norðurgötu norðan Eyrarvegar liggur ekki fyrir hér hvort húsið hafi varðveislugildi. Það er hins vegar álit þess sem þetta ritar, að öll Norðurgatan skuli njóta óskoraðs varðveislugildis. Þ.á.m. hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. Öld, norðan Eyrarvegar. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr. 1179, 9. okt. 1953. Fundur nr. 1248, 10. júní 1954. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2021 | 14:05
Hús dagsins: Norðurgata 43
Árið 1946 fékk Tryggvi Gunnarsson lóð og byggingarleyfi við götu norðan Eyrarvegar (Víðivelli). Fékk hann að reisa tveggja hæða hús úr steinsteypu, þak og loft efri hæðar úr timbri. Stærð hússins 10x8,5m. Húsið reisti Tryggvi eftir eigin teikningum.
Norðurgata 43 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki.Krosspóstar eru í gluggum, bárujárn á þaki og veggir múrsléttaðir. Svalir eru til suðvesturs og horngluggar, í anda funkisstíls til suðurs.
Tryggvi Gunnarsson, sem byggði húsið, var skipasmiður og starfaði lengst af á Skipasmíðastöð KEA. Hann teiknaði og stjórnaði fjölmargra báta, þ.á.m. hinum valinkunna Húna II árið 1963. Hann var kvæntur Stellu Sigurgeirsdóttur og bjuggu þau hér um árabil, en húsið hefur nokkrum sinnum skipt um eigendur og íbúa, svo sem gengur og gerist á þremur aldarfjórðungum. Norðvestanmegin á lóðinni stendur bílskúr, byggður 1959 eftir teikningum Guðlaugs Friðþjófssonar. Húsið var lengst af einbýlishús en var fyrir fáeinum árum breytt í gistiheimili með nokkrum herbergjum.
Norðurgata 43 er látlaust en glæst hús í mjög góðri hirðu, sem lóðin og umhverfi þess. Sunnan við húsið stendur gróskumikill heggur, sem fyrrihluta sumars skartar hvítum blómum. Á lóðinni er einnig mjög ræktarlegt grenitré. Klifurjurt, sem síðuhafi kann víst ekki að tegundagreina, á suðurvegg hússins er einnig til mikillar prýði. Lóðin er girt miklum steinvegg með skrautlegu járnavirki, sem væntanlega er frá svipuðum tíma og húsið var byggt og einnig vel við haldið. Höfundi er ekki kunnugt um að húsakönnun hafi verið unnin um þennan ysta hluta Norðurgötu og þekkir því ekki til hugsanlegs varðveislugildis. En húsið er svo sannarlega varðveisluvert eins og þau flest öll, á þessum slóðum. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1044, 23. feb. 1946. Fundur nr. 1051, 26. apríl 1946. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2021 | 18:10
Hús dagsins: Norðurgata 41
Á reitnum sem afmarkast af Eyrarvegi í suðri, Sólvöllum í vestri, Víðivöllum í norðri og Norðurgötu í austri standa fjölmörg sams konar hús, parhús með lágu risi. Þessi byggð eru hús sem Byggingafélag Akureyrar reisti á fimmta áratug 20. aldar, eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar og Bárðar Ísleifssonar og voru ætluð sem verkamannabústaðir. Árið 1939 fékk Byggingafélag Akureyrar einfaldlega allar lóðir norðan Fjólugötu og við Eyrargötu, við norðurmörk þéttbýlis Oddeyrar. Byggingafélaginu var að eigin ósk veittur langur frestur til að á lóðunum og á áratug eða svo ris húsin risu eitt af öðru. Tvö hús af þessari gerð standa við Norðurgötuna, á milli Eyrarvegar í suðri og Víðivalla í suðri, Norðurgata 39 og 41 og voru þau byggð 1946-47. Nyrðra húsið, nr. 41 stendur á horni Norðurgötu og Víðivalla.
Norðurgata 41 er einlyft steinhús með lágu risi, krosspóstum í gluggum og með steiningarmúr á veggjum. Húsið er parhús og telst suðurhlutinn 41a og norðurhlutinn 41b. Byggt var við norðurhlutann árið 2000 eftir teikningum Haraldar S. Árnasonar. Á vesturmörkum lóðar eru einnig bílskúrar.
Ef heimilisfanginu Norðurgötu 41 er flett upp á gagnagrunninn timarit.is koma upp 42 niðurstöður. Þar má sjá nöfn ýmissa sem búið hafa hér í gegnum tíðina en á meðal fyrstu íbúa hússins voru Gunnar Árni Sigþórsson múrarameistari og Kamilla Karlsdóttir. Húsið er í mjög góðri hirðu og allt umhverfi þess hið snyrtilegasta. Á lóðarmörkum norðanmegin er steyptur kantur, væntanlega frá svipuðum tíma og húsið var byggt en sunnanmegin er nýleg skrautleg timburgirðing. Ekki hefur verið unnin húsakönnun fyrir þetta svæði en í greinargerð um Rammahluta Aðalskipulags Oddeyrar eru taldar upp áhugaverðar heildir, þ.á.m. áhugaverð smágerðra parhúsa við Víðivelli og Eyrarveg. Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson o.fl. 2017: 12). Þessi hús tilheyra raunar þeirri heild enda þótt þau standi við Norðurgötu. Húsin tilheyra í raun tveimur áhugaverðum heildum, annars vegar parhúsahverfinu kennt við Eyrarveg og Víðivelli og hins vegar fjölbreyttri og skemmtilegri götumynd Norðurgötu. Myndin er tekin á sumardaginn fyrsta, 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 841, 26. ágúst 1939. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Manntalsspjaldskrá fyrir Akureyri. 1941-50. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. 2017. Rammahluti Aðalskipulags Akureyrar. Oddeyri. Tillaga. Pdf-skjal á https://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Oddeyri/Rammahluti/170425_oddeyri_tillaga.pdf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2021 | 12:05
Hús dagsins: Norðurgata 44
Norðurgötu 44 reisti Þorsteinn Sigurbjörnsson árið 1946. Hann fékk lóðina og leyfi til þess að reisa hús á tveimur hæðum úr steinsteypu með valmaþaki úr timbri, að stærð 10,7x8,2m. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson.
Norðurgata 44 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Veggir eru með steiningarmúr, bárujárn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar í gluggum. Austanmegin á suðurhlið er útskot með svölum til suðvesturs á efri hæð.
Þorsteinn Sigurbjörnsson, sem reisti húsið var fæddur á Fagrabæ í Grýtubakkahreppi og vann lengst af sem kokkur á hinum ýmsu skipa. Hann var kvæntur Sigríði Guðnadóttur frá Meðalheimi á Svalbarðsströnd. Þau bjuggu hér í um hálfa öld, en Þorsteinn lést 1994 og Sigríður árið 2001. Húsið er að mestu leyti óbreytt frá upphafi, en það er ekki óalgengt þegar sömu eigendur voru frá upphafi um áratugaskeið. Í upphafi virðist húsið hafa verið einbýlishús en nú eru í því tvær íbúðir, ein á hvorri hæð.
Norðurgata 44 er látlaust en glæst hús og í mjög góðri hirðu. Á því er t.d. nýlegt þakjárn. Suðvestanvið húsið er verklegur sólpallur úr timbri og á lóðarmörkum er steyptur verkur með járnavirki, sem móðins var um miðja 20. öld og eru mikil prýði. Höfundi er ekki kunnugt um húsakönnun hafi verið unnin fyrir þetta svæði eða að húsið hafi varðveislugildi. Af öðrum mannvirkjum á lóðinni má nefna bílskúr á norðausturhorni, sem Þorsteinn og Sigríður byggðu um 1962 en bílskúrinn teiknaði Páll Friðfinnsson. Allt er húsið, umhverfi þess og lóð vel frágengið og snyrtilegt og til mikillar prýði. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1045, 1. mars 1946. Fundur nr. 1051, 26. apríl 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.5.2021 | 17:30
Hús dagsins: Norðurgata 39
Á reitnum sem afmarkast af Eyrarvegi í suðri, Sólvöllum í vestri, Víðivöllum í norðri og Norðurgötu í austri standa fjölmörg sams konar hús, parhús með lágu risi. Þessi byggð eru hús sem Byggingafélag Akureyrar reisti á fimmta áratug 20. aldar, eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar og voru ætluð sem verkamannabústaðir.
26. ágúst 1939 fékk Byggingafélag Akureyrar einfaldlega allar lóðir norðan Fjólugötu og við Eyrargötu. Á þeim tíma markaði Fjólugata nokkurn veginn endimörk þéttbýlis Oddeyrar í norðri en umrædd Eyrargata, næsta gata norðan við, hlaut síðar nafnið Eyrarvegur. Byggingafélagið vildi að ekki yrði skylt að byggja þar fyrr en að 10 15 árum liðnum. Orðið var við þessu, en húsin risu eitt af öðru á næsta áratug. Norðurgata 39 og 41 voru byggð 1946-47.
Norðurgata 39 er einlyft steinhús með lágu risi, krosspóstum í gluggum og með steiningarmúr á veggjum. Húsið er parhús og telst suðurhlutinn 39a og norðurhlutinn 39b.
Á meðal fyrstu íbúa hússins voru þau Jón A. Jónsson málarameistari, ættaður úr Skagafirði og Hörgárdal og Hjördís Stefánsdóttir frá Haganesi við Mývatn. Þau munu hafa flutt inn í 39a árið 1946. Húsið mun næsta lítið breytt frá upphafi og er í góðri hirðu. Hafa síðan margir búið í húsinu um lengri eða skemmri en öllum eigendum auðnast að halda húsinu og umhverfi þess mjög vel við. Húsið er a.m.k. í afbragðs hirðu. Árið 2001 var byggður bílskúr, eftir teikningum Árna Gunnars Kristjánssonar, við norðvesturhorn hússins. Höfundi er ekki kunnugt um varðveislugildi hússins, en húsið er annars vegar hluti umfangsmikillar samstæðar heildar verkamannabústaða frá fimmta áratug 20. aldar og hins vegar götumyndar Norðurgötu. Myndin er tekin þ. 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 841, 26. ágúst 1939.
Manntalsspjaldskrá fyrir Akureyri. 1941-50. Hvort tveggja varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2021 | 13:13
Hús dagsins: Norðurgata 42
Á næstu vikum mun ég taka fyrir ysta og yngsta hluta Norðurgötu á Oddeyrinni, þ.e. þann hluta götunnar sem liggur norðan Eyrarvegar. Þann 22. apríl sl. brá ég mér í göngutúr með myndavélina og ljósmyndaði þau hús og svo var kíkt á kortavef Akureyrar, þar sem ég sá oftast nær hverjir byggðu og þá var arkað upp á Héraðsskjalsafn og umræddum nöfnum flett upp. Og svo vindur það upp á sig; fyrst ég tek fyrir ysta hluta Norðurgötu er auðvitað ekki nema sanngjarnt, að samliggjandi hlutar Ránargötu og Ægisgötu verði einnig til umfjöllunar seinna meir. Hér er Norðurgata 42.
Nöfnin Magnús og Jóhann þekkja flestir landsmenn sem dúett tveggja frábærra tónlistarmanna, sem skemmt hafa þjóðinni með óviðjafnanlegum lagasmíðum í hálfa öld. Það voru hins vegar aðrir tveir Magnús og Jóhann sem reistu Norðurgötu 42 fyrir þremur aldarfjórðungum. Þeir Jóhann Sigurðsson og Magnús Stefánsson reistu húsið árið 1946, eftir teikningum hins fyrrnefnda. Lóðina fékk Jóhann þann 1. mars það ár og rúmum mánuði síðar fékk hann, ásamt Magnúsi, byggingarleyfi. Fengu þeir að reisa steinsteypt hús, eina hæð á háum kjallara og með valmaþaki, 10,9x8,5m auk útskots að norðan, 2,5x5,7m.
Magnús Stefánsson (1907-2000) var fæddur á Kambfelli í Djúpadal og starfaði lengst af á efnaverksmiðjunni Sjöfn, m.a. sem verkstjóri. Hann var kvæntur Guðrúnu Björgu Methúsalemsdóttur (1916-2005), frá Tunguseli á Langaseli. Jóhann Sigurðsson (1910-2001) var úr Svarfaðardal, fæddur og uppalin á Göngustöðum. Hann starfaði sem smiður, kom m.a. að byggingu loftskeytastöðva víða um land, m.a. á Heiðarfjalli og Gufunesi en starfaði síðar við viðhald og smíðar hjá Sambandsverksmiðjunum. Eiginkona Jóhanns var Brynhildur Klara Kristinsdóttir (1915-2003) frá Jörva á Húsavík. Bjuggu þau í húsinu um áratugaskeið, Magnús og Guðrún allt fram undir aldamót. Mun íbúðaskipan óbreytt frá upphafi, ein íbúð á hvorri hæð.
Enda þótt húsið sé sagt ein hæð á kjallara í byggingarleyfi er líkast til óhætt að fullyrða, að húsið sé tvílyft. Það er með lágu valmaþaki, einföldum póstum í gluggum, bárujárni á þaki og sléttum múr á veggjum. Á efri hæð eru svalir til suðvesturs. Húsið er líkast að mestu óbreytt frá upphafi og er í mjög góðri hirðu.
Húsið er hluti nokkuð langrar og heilsteyptrar raðar tveggja hæða steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. öld. Sú götumynd má segja að sé ysti kaflinn í kaflaskiptri og áhugaverðri götumynd Norðurgötu, sem er ein lengsta gatan á Oddeyri og byggð á afar löngum tíma. Þar má finna timburhús frá síðari hluta 19. aldar og nokkrar gerðir steinhúsa frá 3., 4. og 5. áratug 20. aldar. Eiginlega má segja, að gatan sé eins og safn um mismunandi húsagerðir frá þessu tímabili. Því er það skoðun síðuhafa, að gjörvöll Norðurgatan eigi að njóta óskoraðs varðveislugildis eða jafnvel friðunar (þó síðuhafa sé kunnugt um, að ekki tíðkist að friða heilar götur).Ekki liggur fyrir húsakönnun fyrir þennan ytri hluti Oddeyrar, svo höfundur viti til, svo ekki er honum kunnugt um varðveislugildi hússins. Framan við húsið stendur mjög gróskumikið reynitré. Er það til mikillar prýði, líkt og húsið og lóðin í heild sinni. Myndin er tekin á sumardaginn fyrsta, 22. apríl, 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1044, 1. mars 1946. Fundur nr. 1050, 12. apríl 1946.
Bloggar | Breytt 2.5.2021 kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.7.): 1
- Sl. sólarhring: 63
- Sl. viku: 279
- Frá upphafi: 451410
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 198
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar