Færsluflokkur: Bloggar

Vetur á Akureyri

Veturinn hefur svo sannarlega minnt á sig hér norðan heiða.  Hnédjúpur jafnfallinn snjór og á köflum mittisdjúpir skaflar og á bílastæðum eru fjallháir ruðningar. Á þrettándanum kom alvöru hvellur, stórhríð og skafrenningur, svo vart sá milli húsa og það stóð hann óvenju lengi; það var byrjað að hvessa strax á miðvikudagskvöld og allan fimmtudaginn var fjúk og skafrenningur. Það var samt bara forsmekkurinn af ósköpunum sem gengu yfir seinnipartinn og um miðnæturbil ætlaði allt um koll að keyra. Það lægði frekar með föstudagsnóttinni en hvasst var lengst af á föstudeginum. Þetta var semsagt ALVÖRU VEÐUR! Enda skyldi þetta eitthvað eftir sig af snjó. Hér eru nokkrar myndir sem ég tók í gær  af afrakstri stórhríðarinnar. P1110089 P1110087

T.v. Strætó á Glerárgötu að beygja inn í Miðbæ.  Grenitrén á Eiðsvelli á Oddeyri eiga fullt í fangi með fannfergið.

P1110088 P1110093

Annar strætisvagn á leiðinni norður Glerárgötu, til móts við hinn víðfræga skemmtistað Sjallann. Gönguljósin og strætóinn sýna glöggt hæðina á ruðningunum. Á myndinni t.h. er stórvirk vinnuvél að ljúka við ruðning göngugötunnar í Hafnarstræti.

Þannig að hér er nóg af snjónum sem er svo sannarlega hið besta mál. Happy


Hús dagsins: Aðalstræti 74

Aðalstræti 74 eru í raun tvö sambyggð hús.  Er þetta timburhús á lágum steinkjallara. Suðurhlutinn er einlyftur með PA230004háu risi og snýr N-S en norðurhlutinn er tvílyftur með lágu risi og snýr A-V. Flatur kvistur í kverkinni milli álmanna er sennilega seinni tíma viðbót. Þá gengur einlyft skúrbygging suður úr húsinu. En húsið reistu þeir Jón Sigurðsson (syðri hlutann) og Tryggvi Gunnarsson (nyrðri hlutann). Syðra húsið var reist 1857 en nyrðra húsið gæti verið eitthvað yngra. Skafti Jósepsson eignaðist allt húsið fyrir 1875 og rak prentsmiðju í syðri hlutanum og bjó í þeim nyrðri. Var húsið lengi vel kallað Skaftahús eftir honum. Þarna gaf hann út m.a.  blaðið Norðling á 8. og 9. áratug 19.aldar. Margir hafa búið í þessu þessa hálfu öðru öld. Þar á meðal Tryggvi Emilsson rithöfundur mun t.d. hafa búið þarna um 1920-30 við þröngan kost- enda voru bjuggu tvær fjölskyldur á efri hæðinni einni. Nú er húsið líkast til parhús. Á framhliðinni má sjá þrjár mismunandi gerðir gluggapósta- þverpósta á suðurhluta og T-pósta á norðurhluta og sexrúðupóstur er á kvisti. Þessi mynd er tekin 23.okt 2010.


Hús dagsins: Lækjargata 2, 2a og 2b.

pa230010.jpgFyrsti húsapistillinn á nýju ári 2011 fjallar um þrjú lágreist hús á horni Lækjargötu og Aðalstræti og teljast þau standa á lóð nr.2 við Lækjargötu. Þau eru semsagt neðst í Lækjargötunni, neðst í Búðargili eða Lækjargili eins og það er líka kallað. Elst þessara húsa er nr. 2a,  og er það eitt af allra elstu húsum Akureyrar. Er það til vinstri á myndinni, gult með rauðu þaki. Það mun reist um 1840 af Margréti Thorarensen. Er það einlyft timburhús með bröttu risi, af algengri gerð timburhúsa þess tíma. Er það í  stórum dráttum lítið breytt frá upphafi, en húsin Aðalstræti 6 og Lækjargata 2 voru hins vegar byggð við það síðar, hið fyrrnefnda nokkrum árum seinna. Lækjargata 2, bláa húsið fyrir miðri mynd, var hins vegar byggð löngu síðar eða 1894 af Stephan Stephanssyni en hann eignaðist Lækjargötu 2a á eftir Margréti sem bjó í húsinu til dánardags 1883. Upprunalega var húsið einlyft með háu risi ekki ósvipað 2a en nokkuð mjótt, gaflinn breiðari en langhlið sem er all sérstætt. Enda hafa húsin sennilega myndað eina heild í fyrstu, en seinna breytt í tvo eignarhluta. E.t.v. var nr.2 á sama tíma hækkað um eina hæð og fengið núverandi lag þ.e. tvílyft með lágu risi. Lækjargata 2b er einlyft, bárujárnsklætt timburhús með lágu portbyggðu risi, sem stendur bakvið nr. 2. Örmjótt sund, sennilega um 2m skilur að húsin. 2b var upprunalega hlaða, byggð skömmu fyrir 1900 en breytt í íbúðarhús um 1920. Öll þessi þrjú hús eru í dag einbýlishús og mynda þau ásamt Lækjargötu 4 og Aðalstræti 6 ansi skemmtilega heild þarna neðst í gilinu. Ekki er þetta einsleit heild heldur er hvert hús þvert á móti með sínum sérkennum- enda byggð á mismunandi tímum á 19.öld og fengið sinn skerf af stækkunum og breytingum. Allt viðhald og frágangur þessara húsa er til fyrirmyndar og mjög margir sem leggja leið sína til Akureyrar berja þessa húsatorfu augum. Hún stendur nefnilega beint á móti einni vinsælustu ísbúð landsins og einu af helsta aðdráttaröflum Akureyrar, nefnilega versluninni Brynju, sem er í Aðalstræti 3. Þessi mynd er tekin 23.október 2010. 


Gleðilegt nýtt ár. Hús ársins 2010.

Óska ykkur öllum nær og fjær gleðilegs nýs árs, 2011, og þakka fyrir það gamla. Þakka innlit hér og athugasemdir, það er gaman að vita til þess að einhver hefur áhuga á því sem ég hef fram að færa. Hvort heldur er umfjöllun um hús, fjöll, bíla eða bara hvað sem er.

En í tilefni áramóta þykir mér ekki úr vegi að útnefna Hús Ársins 2010 hér á síðunni. Það er í mínum huga ekki vafamál hvaða bygging ætti að hljóta þann titil.  Hún var fullgerð og tekin í notkun á árinu 2010 og hefur hlotið mikla athygli. Allir hafa á þessari byggingu skoðun enda er þetta gríðarstór og áberandi bygging sem stendur á einum rótgrónasta og fjölfarnasta stað Akureyrar. Þarna hafa farið fram hver stórviðburðurinn, tónleikar, leiksýningar o.m.fl. á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru frá vígslu hússins 28.8. 2010. Ég er að sjálfsögðu að tala um Menningarhús okkar Akureyringa, Hof. En hér er mynd af því frá vígsludegi sl. sumar.

P8280034

Gleðilegt nýtt  ár og takk fyrir það gamla Smile


Jólakveðja

Óska ykkur öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þakka viðtökurnar, innlitin og athugasemdir hérna á síðuna, gaman að vita að einhverjir hafa áhuga á því sem ég hef hér fram að færa.  Meðfylgjandi eru tvær jólalegar myndir frá Kaupfélagshorninu svokallaða, teknar á Vetrarsólstöðum 21.12.2010.

pc210029_1049914.jpg     pc210030.jpg

 Gleðileg jól og farsælt nýtt ár.


Fyrir og eftir; 6 mánuðum síðar

p6190097.jpg  pc210028.jpg

Hafnarstræti 86a hefur fengið stórglæsilega yfirhalningu á níræðis afmælisári sínu, en húsið var reist 1920 af Jóhanni Ragúels. Myndirnar eru teknar með 185 daga millibili; 19.6. og 21.12. 2010. 

Að kvöldi 19.júní sl. var ég á ferðinni með myndavélina og smellti þá myndum af Hafnarstræti 86a (90) og Brekkugötu 5 (102). Þá stóðu yfir viðgerðir á báðum húsunum, annað húsið var í mjög slæmu ástandi, hafði verið yfirgefið í nokkur ár og hafði m.a. orðið fyrir tjóni af völdum vatnsleka. Nú, sex mánuðum síðar datt mér í hug að mynda sömu hús og sjá árangurinn. Að utan virðist Hafnarstræti 86a vera nánast fullklárað en eftir er að byggja það upp að innan. Rifnar voru stigabygging að aftan og óhrjálegur skúr á norðurhlið en byggðar glæsilegar svalir til suðurs. Á Brekkugötu 5 er komin ný borðaklæðning og nýir gluggar og efri hæðir virðast hýsa skrifstofur. Í báðum tilfellum hefur viðgerð húsanna tekist með sannkölluðum glæsibrag og þessi tvö hús til mikillar prýði sem aldrei fyrr.

p6190089.jpg  pc210027.jpg

Brekkugata 5, byggt 1908, í miðri yfirhalningu 19.júní og eftir viðgerðir 21.desember 2010.


Í felum

Ég kíkti út um tuttugu mínútur í átta í morgun til að sjá tunglmyrkvann. En á "mínu svæði" var mikill skýjabakki í vestri og ekki sást í tungl og svo um hálfníuleytið var komin hríðarmugga þannig að alltaf var tunglið í felum. Þannig að ekki sá ég beinlínis neitt þó vissulega hafi maður kíkt. Spurning hvort tunglmyrkvinn hafi sést einhversstaðar á Akureyri eða í nágrenni...?
mbl.is Tunglmyrkvinn í beinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hús dagsins: Aðalstræti 62

 pa230005.jpgAðalstræti 62 reisti Hallgrímur Kristjánsson gullsmiður árið 1850. Er það nokkuð hefðbundið að gerð fyrir hús þess tíma, einlyft með bröttu risi, dyr fyrir miðju og gluggar sitt hvoru megin við þær. Húsið er klætt steinblikki og bárujárni á þaki og í því eru nýlegir sexrúðugluggar Í Akureyrarbók Steindórs Steindórssonar (1993) er þetta hús sagt eitt af fáum eldri húsum sem enn standa lítið breytt frá upphafi og nefnt að þar séu enn upprunalegar hurðir, yfir 140 ára gamlar. Hafi þeim ekki verið skipt út gildir hið nákvæmlega sama- nema hvað hurðirnar eru þá orðnar 160 ára. Sennilega hefur lítið sem ekkert verið byggt við húsið. Húsið hefur tiltölulega sjaldan skipt um eigendur miðað við aldur var t.d. í eigu sama manns frá 1930-80 og dóttur hans eftir það, og er hún eigandi þess þegar áðurnefnd er Akureyrarbók er rituð 1993. Þessi maður var Ármann Dalmannsson, forstjóri og mikill skógræktarfrömuður og mun hann hafa ræktað lóðina upp að mestu. En hún er víðáttumikil og hana prýðir mikill og smekklegur trjágróður en slíkt er alls ekki óalgengt með húsin í Fjörunni. Bæði gróskumikill garðurinn og húsið eru til mikillar prýði í umhverfinu sem er svo sannarlega ekki af verri endanum- en margir telja Fjöruna og Aðalstrætið einn mest aðlaðandi stað Akureyrar, þar sem gömlu húsin og grónu garðarnir standa undir snarbrattri Bæjarbrekkunni. Ekki spillir að viðhald bæði húsanna og lóðana er nær undantekningalaust fyrsta flokks. Gatan er líka vel staðsett, því allir sem eiga leið til eða frá Flugvelli eiga leið þar framhjá og einnig blasir hún við öllum sem eiga leið um þjóðveg 1 austan að. Þessi mynd er tekin 23.okt. 2010. 

Heimild: Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.

 


Hvítt um að litast

Þessar myndir bæta svosem litlu við fréttina en gefa einhverja mynd af skyggninu. Þær eru teknar núna laust um klukkan eitt norðarlega á Eyrinni við Grenivelli og við verslun Hagkaups. Þessi hvellur bætir einhverju við snjóalögin frá síðasta mánuði en þau voru nánast upp urin eftir miklar hlákur og "hitabylgju". Og m.t.t. þessarar sendingar af snjó þá ætla ég að fullyrða það að jólin verði hvít hér fyrir norðan Smile

.pc170025.jpg  pc170024_1048589.jpg pc170026.jpg


mbl.is Vonskuveður á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daginn fer fljótlega að lengja...

Einhvern vegin dettur mér í hug að þetta sé ekki tilviljun, að þessi tillaga komi á u.þ.b. 7. stysta degi ársins, þ.e. viku fyrir vetrarsólstöður.  En eftir það liggur leiðin víst uppávið og að tveim mánuðum liðnum verður farið að daga um svipað leyti og vinnudagur hefst um klukkan 8. Myrkir morgnar eru þannig eitt af örfáum "vandamálum" sem lagast af sjálfu sér. Á þessum tíma árs finnst mörgum það vissulega ónotalegt að vakna um sjöleytið- ef ekki fyrr, í svartamyrkri vitandi það að það mun ekki birta næstu 3-4 klukkustundirnar. En því miður er það líka svo að lengd dagsbirtu er ekki hægt að breyta- ef við látum daga seinna þá færist kvöldið að sama skapi fram og myrkvar fyrr. Og hvort er betra eða verra- það er svo aftur  álitamál. 


mbl.is Vilja seinka klukkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Skjámynd 2025 06 06 102451
  • Skjámynd 2025 06 06 102436
  • Friðbjarnarhús
  • P7100132
  • P7100133

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 339
  • Frá upphafi: 449000

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 203
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband