Hús dagsins: Galtalækur

Galtalækur stendur uppi á hól, nokkurn veginn lóðbeint á móti flugstöðvarbygginguP2060988 Akureyrarflugvallar. Sunnan hússins rennur Galtalækurinn um Grásteinsgil.  Áður bar mikið á Galtalæk þegar ekið var um Drottningarbrautin við Flugvöllinn, en hóllinn, gilið og húsið er að mestu hulið skógi. (Það er líklega orðið óhætt, að tala fullum fetum um skóg í syðstu brekkum bæjarins).

     Galtalækur, sem stendur tæpa 3 km frá Miðbænum, er steinsteypt, járnklætt hús, vesturálma einlyft með með háu en aflíðandi risi og snýr stafni mót austri en vesturálma, sem einnig er með háu risi, er háreistara og snýr stöfnum norður-suður. Fjöldi póstlausra glugga setja nokkurn svip á framhlið en sjá má í hendi sér, að húsið er „fyrrverandi“ fjós og hlaða.

Í Byggðum Eyjafjarðar má ráða, að upphaf Galtalækjarbýlisins megi rekja til ársins 1908 er Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ræktunarfélagsins hóf þar búskap, smáan í sniðum. Galtalækur mun byggður úr landi Nausta. Það var síðan árið 1916 sem Ræktunarfélagið keypti af honum Galtalæk og hóf þar kúabúskap. Drjúgan hluta 20. aldar, eða allt til 1974, hafði Ræktunarfélagið og síðar Tilraunaráð ríkisins mikil umsvif á Galtalæk. Var þar rekin tilraunastöð og fór þar fram mikil uppbygging. Árið 1924 var m.a. reist á Galtalæk veglegt steinsteypt fjós og 1954 var íbúð fjósameistara, sem fluttist á Mela, breytt í fjós.  Þá hafði Tilraunaráðið eignast bæði Mela og Háteig en síðarnefnda býlið var íbúð framkvæmdastjóra.

     Var það einmitt framkvæmdastjórinn, Árni Jónsson, sem stóð fyrir byggingu fjóss og hlöðu árið 1961, sem enn standa. Upprunalegar teikningar er ekki að sjá á landupplýsingakorti Akureyrarbæjar, en þar má hins vegar sjá járnateikningar eftir Ásgeir Markússon. Húsið var að hluta til byggt á grunni gamla fjóssins. Rúmaði fjósið 40 mjólkurkýr og 6-8 kálfa (sjá nánar tengil: ítarleg viðtal við Árna Jónsson í Íslendingi, 15. des. 1961). Í hinu nýja og vandaða fjósi voru kýr fram til ársins 1974 (reyndar var hlé á kúabúskap Tilraunaráðsins 1965-´69). Fluttist þá starfsemin út að Möðruvöllum í Hörgárdal. Keypti Akureyrarbær eignirnar og árið 1975 komst húsið í eigu Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri, gegn um makaskipti við bæinn. Björgunarsveitin innréttaði í fjósinu í félagsheimili og stjórnstöð. Húsið var aðsetur sveitarinnar í nær aldarfjórðung, en hún sameinaðist Hjálparsveit Skáta og Sjóbjörgunarsveitinni Súlum undir nafni hinnar síðasttöldu haustið 1999. (Gaman að geta þess, að húsnæði Hjálparsveitar Skáta var einmitt líka í gömlu fjósi, að Lundi).   

     Árið 2001 var húsinu breytt í íbúðarhús eftir teikningum Haraldar Árnasonar. Vesturálman varð íbúðarrými en austurálma (hlaðan) bílskúr. Er húsið nú einbýlishús. Galtalækur er reisulegt og glæst hús, með hið skemmtilega byggingarlag fjóss og hlöðu, og stendur á áberandi stað. Húsið er eitt af gömlu býlunum  torfunni sunnan Innbæjarins og eru þau öll prýði í skemmtilegu og grónu umhverfi. Þessi býli, (frá suðri til norðurs), Brunná, Galtalækur, Melar, Litli-Garður og Háteigur ættu auðvitað öll að njóta einhvers varðveislugildis. Galtalækur er umlukinn smekklegum trjágróðri. Myndin er tekin þann 6. febrúar 2021, en þess má geta, að vegna fyrrnefnds trjágróðurs var einkar snúið að finna frambærilegt sjónarhorn á Galtalækjarhúsið. 

Heimildir: Guðmundur Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 51
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 315
  • Frá upphafi: 420253

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 220
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband