Hús dagsins: Aðalstræti 63

p5230011.jpg

Á þessum merka degi Sveitastjórnarkosninga og Eurovision er það 107 ára hús sunnarlega í Innbænum sem er fyrir valinu hjá mér. En  Aðalstræti 63 reisti Lárus Thorarensen árið 1903 en húsið er einlyft timburhús með portbyggðu risi á steyptum kjallara. Bakatil er tvílyft bygging, sem hýsir forstofu og stiga milli hæða. Þá er annað anddyri á suðurgafli og svalir þar ofan á. Í upphafi stóð þetta hús eitt og sér austan Aðalstrætis, svo til í flæðarmálinu og í einhverri Innbæjargöngunni heyrði ég að það hefði verið kallað "Húsið á sléttunni". En það sem helst setur svip sinn á húsið er bogadregið útskot með lauklaga þaki á framhlið. Það mun þó vera seinni tíma viðbygging sem byggð var við þegar húsið var múrhúðað (forskalað) uppúr 1930. Var það annar eigandi hússins, Sigurður Flóventsson sem stóð fyrir þeim framkvæmdum. Húsið er einbýli og hefur verið (að ég held) alla tíð. Í kringum 2000 var húsið "tekið í gegn" en þá var múrhúð tekin af og það klætt bárujárni og komið í því sem næst upprunalegt horf auk þess sem skipt var um glugga en það hafði verið augnstungið* á sínum tíma. Nú er þetta hið glæsilegasta hús eins og sjá má á þessari mynd, sem ég tók sl. sunnudag, 23.maí 2010. 

*Augnstungið hús: Algengt var að sexrúðu- eða krosspóstum í eldri húsum væri skipt út fyrir einfaldari eða "nútímalegri" glugga og rammar utan um rifnir burt. Þetta var oftar en ekki gert um leið og húsið voru múrhúðuð. Þetta var kallað að augnstinga húsin. 


Hús dagsins: Aðalstræti 54: Nonnahús

p5230010.jpgEitt þeirra húsa sem mér hefur alltaf fundist að verði að taka fyrir, fyrst ég er að þessu á annað borð- eitt af þekktari gömlu húsum á Akureyri er Nonnahús. Enga hef ég nú átt mynd af því en dreif mig í góða veðrinu í dag og bætti úr því. En eins og væntanlega allir vita er húsið kennt við rithöfundinn, prestinn og heimsborgarann Jón Sveinsson eða Nonna (1857-1944). Hann mun hafa átt heima í þessu húsi frá 8 ára aldri þar til hann hélt utan til náms 1870, 12 ára gamall. Hann átti lengst af heima erlendis eftir það og varð raunar "heimsfrægur" fyrir ritverk sín en bækur hans munu hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál og húsið heimsækja aðdáendur Nonna hvaðanæva af úr heiminum. Þá má ekki gleyma sjónvarpsþáttaröðinni sígildu frá 1989 um Nonna og Manna þar sem stórsöngvarinn Garðar Thor Cortes sló í gegn í hlutverki Nonna. En Nonnahús er um 160 ára gamalt, talið byggt einhvern tíma á bilinu 1849-53 og mun fyrsti eigandinn hafa verið Jósef Grímsson. Húsið er dæmigert fyrir eldri gerð timburhúsa, einlyft með bröttu risi og hefur líkast til verið tjargað svart í upphafi. Einlyft bakbygging með skúrþaki  er nokkuð örugglega seinni tíma viðbygging og allt eins gæti ég trúað að miðjukvistur að framan hafi einnig verið settur á seinna. Páll Magnússon í Kjarna keypti af  húsið af Jósef 1858 og átti hann það þegar fjölskylda Nonna bjó þar. Húsið skipti oft um bæði eigendur og leigjendur fram á miðja 20.öld en þá var húsið orðið illa farið og þegar Zontaklúbbur Akureyrar fékk það að gjöf 1952 var það notað sem verkstæði og geymsla. Klúbburinn gerði húsið upp sem safn og var það opnað 1957 á 100 ára afmæli Nonna. Í húsinu eru ótal munir og bækur frá Nonna og auk þess gefur húsið ágætis mynd af því hvernig alþýðufólk í kaupstöðum bjó fyrir 100-150 árum. Nonnahús er alfriðað, í A-flokki. Eins og áður hefur komið fram í dag þá er þessi mynd tekin fyrr í dag, 23.5.2010. Fyrir þá sem vilja kynna sér húsið, safnið eða Nonna sjálfan og verk hans frekar bendi ég á heimasíðu Nonnahúss, hér.  


Gaman að þessu!

Simpson fjölskyldan hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því sýningar á henni hófust hér á landi fyrir tæpum 20 árum. Að íslensku mótmælin komi í þessum vinsælasta gamanþætti samtímans er náttúrulega bara frábært. Reyndar er þetta ekki í fyrsta skipti sem Ísland kemur við sögu í þáttunum en þess má t.d. geta að einn vinnufélagi Hómers, Carl Carlsson er íslenskur eða dvaldi a.m.k. hér á landi á æskuárum sínum. Mér finnst sérstaklega gaman að sjá hvernig teiknararnir ná gömlu íslensku húsunum. Á myndinni meðfylgjandi fréttinni má t.d. sjá í baksýn tvílyft hlaðið hús með risi og stórum miðjukvisti. Svipar mjög til algengrar gerðar steinsteypuhúsa hérlendis frá 1920-30. 
mbl.is Homer ber ábyrgð á hruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjöllur

Einhvern tíma heyrði ég að Volkswagen Bjallan væri mest framleiddi bíll sögunnar. Ekki þori ég að fullyrða að svo sé en eitt er víst að það er ansi mikið til af þessum þýsku eðalvögnum. Framleiðsla þeirra hófst um 1940 og nutu þeir fádæma vinsælda um allan heim áratugina á eftir. Hér eru nokkrar Bjöllur sem ég hef myndað. Efri tvær myndirnar eru teknar á árvissri sýningu Bílaklúbbs Akureyrar, 17.júní 2009. Á þeirri bláu sést greinilega ein sérstaða Bjöllunnar en í þeim var vélin aftur í þar sem kalla má skott, eða hvað? Mér finnst einhvernvegin að skott hljóti að þýða farangursrými en að vélin sé í húddinu. Þ.a. á Bjöllunni er húddið að aftan en skottið að framan. Silfraða Bjallan þótti mér alveg einstaklega glæsilega og varð hún á vegi mínum í eitt skipti í maí 2006 þegar ég var "úti að viðra myndavélina". Sú hvíta að neðan er árgerð 1967 og hefur verið í eigu sama manns frá upphafi og hefur staðið á þessum stað við Aðalstræti alla tíð. Ég er á því að hana ætti hreinlega að friða, rétt eins og gömlu húsin.

p6170243.jpg   p6170242.jpg

p6050027.jpgp5010017.jpg


Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 26

Eyrarlandsvegur 26, einnig kallað Breiðablik á stórafmæli á næp3060051.jpgsta ári en það er 99 ára, byggt 1911. Húsið hefur mörg einkenni norskra katalóghúsa. Einkennandi fyrir húsið er útskorið skraut og á því er sérstæður kvistur og útbygging nálægt horni þess sem gefa því glæsilegan og sérstakan svip. Upprunalegur eigandi hússins var Sigurður Hlíðar dýralæknir en hann mun ekki hafa byggt það heldur fengu hann og kona hans Guðrún Louise Guðbrandsdóttir það í brúðkaupsgjöf frá móður hennar sem var stórkaupmannsekkja úr Reykjavík. (Steindór Steindórsson 1993) Kom húsið tilhöggvið frá Noregi. Næstu eigendur hússins á eftir Sigurði voru m.a. þeir Guðmundur G. Bárðarson, átti húsið 1923-26 og Brynleifur Tobíasson sem bjó þar lengi á eftir. Báðir kenndu þeir við Menntaskólann á Akureyri, en þetta hús er einmitt staðsett skáhallt á móti skólanum. Þá mun Sigurður sjálfur einhverntíma hafa kennt við skólann. Nú er húsið í eigu Kaþólsku kirkjunnar og þar mun vera íbúð prests og kapella. Kaþólska kirkjan á einnig næsta hús, Hrafnagilsstræti 2 ( gafl þess sést t.v. á myndinni) og var það hús gert upp á hennar vegum fyrir ca. 5-10árum og þjónar nú sem kirkja. Þessi mynd er tekin 6.mars 2010. En þann dag brá ég mér í mikinn ljósmyndaleiðangur á leið frá kjörstað (þann dag var einmitt kosið um IceSave eins og allir muna), þar sem ég hafði tæmt það húsamyndasafn sem ég átti fyrir. Myndaði ég þar þetta hús, Gamla Skóla, Sigurhæðir og nokkur hús við Hafnarstræti. Húsamyndasafn mitt  frá Akureyri er þar með tæmt, en þó eru fáein sögufræg hús sem ég finnst mér verða að koma að fyrst ég er nú að þessu á annað borð. 

En hvenær læt ég staðar numið af húsum dagsins ? Í því er ekkert ákveðið. Hugsanlega segi ég það gott eftir 100 hús (þetta er 80.húsamyndin sem ég set inn). Eða eftir eitt ár, en 25.júní nk. verður þessi dálkur Hús dagsins eins árs. Svo geta hlutirnir undið uppá sig; ef ég set inn eitt hús þá finnst mér kannski ekki stætt á öðru en að setja annað, sem ég tel á e-n hátt "sambærilegt". En eitt er víst að ég mun tilkynna það hvenær ég hyggst láta staðar numið af Húsum dagsins. Einhverjir kíkja hér eflaust reglulega og og athuga hvort komið sé "nýtt" hús og leiðinlegt þætti mér að skilja þá eftir í óvissu um hvort og hvenær ný umfjöllun kæmi.

Heimild: Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.


Rafmagnslaust

Um kl. 21 varð "blackout" hér á Akureyri og komst rafmagn á um 22.45. Fyrst varð maður var við að eldhúsið datt út. Þá tékkaði maður á ganginum, stofunni og loks á lekaliðan. Þá á stigaganginum. Um leið og við komumst að raun um að allt fimm íbúða húsið var rafmagnslaust fékk ég símtal frá félaga mínum, búsettum handan Glerár en hjá honum hafði rafmagnið einnig farið. Svo heyrði ég gegn um símtöl að bærinn væri allur rafmagnslaus og Skagafjörður og Húnavatnssýslur líka. Í batterýisútvarpi heyrði ég svo í fréttunum hvers kyns var; bilun í landsneti og rafmagnslaust frá Hvalfirði til Hornafjarðar. Þetta var nokkuð sérstakt, enda gerist þetta (sem betur fer) afar sjaldan. En það er líka ágætt að vera stundum minntur á, hversu gríðarlega maður er nú háður er rafmagninu. p4210103.jpg


mbl.is Rafmagn ætti að koma fljótlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hús dagsins: Sigurhæðir

 Sigurhæðir teljast standa við Eyrarlandsveg 3 en framhlið þess ágæta húss snýr reyndar að Hafnarstrætinu, þar sem það stendur hátt í brekkunni ofan götunnar. p3060055.jpgSigurhæðir var reist sem íbúðarhús fyrir þjóðskáldið sr. Matthías Jochumsson árið 1903 en hann hafði verið búsettur á Akureyri frá 1886, nánar tiltekið í Aðalstræti 50.  Staðsetning hússins er sem áður segir sérstök, þarna hefur á sínum tíma verið stórkostlegt útsýni út og fram fjörðinn. Húsið er einlyft timburhús á steyptum kjallara, með portbyggðu risi og kvisti á miðju.   Matthías bjó í húsinu til dauðadags 1920 en næsti eigandi hússins Jónas Sveinsson breytti húsinu nokkuð, byggði kvisti á risið og breytti því í tvíbýlishús. Svokallað Matthíasarfélag tók sig saman um kaup á húsinu um 1960 og opnaði þar safn um skáldið sem Akureyrarbær fékk svo til umráða 1981. Munir frá Matthíasi eru nú á neðri hæð, og hefur verið leitast við að halda útliti og yfirbragði sem líkast því sem var hjá honum. Það reyndist raunar auðvelt, því þó nokkuð hefur varðveist af ljósmyndum t.d. af skrifstofunni hans. Skrifstofan er á neðri hæð og þegar komið er þar inn dettur manni helst í hug að Matthías hafi rétt skroppið frá í kaffi.  Þá er þarna bókasafn og borð úr stólar úr fórum skáldsins. Á efri hæð er skrifstofa og lítill salur undir súð en hún er raunar innréttuð sem íbúð. Síðastliðin misseri hafa verið margir viðburðir þarna, ljóðakvöld og fyrirlestrar en nánar má lesa um starfsemi Sigurhæða hér. Þessi mynd er tekin 6.3.2010.


Hús dagsins: Hafnarstræti 77

Hafnarstræti 77 er þrílyft steinsteypuhús með tiltölulega lágu risi, byggt árip3060053.jpgð 1923. Tveir turnar með lauklaga þaki á hornum hússins gefa því einstaklega skemmtilegan svip. Þeir munu þó vera seinni tíma viðbót við húsið, en líklega hefur þetta hús og það næsta, Hafnarstræti 79, sem sést hægra megin á myndinni verið einskonar "tvíburahús", en bæði eru húsin byggð 1923. Húsin eru reist á plássi sem skapaðist þegar brekkunni á bakvið var "mokað útí fjöru" en á þeirri uppfyllingu reis t.d. Hafnarstræti 82. Lengst af hefur húsið verið íbúðarhús, einhvern tíma var þarna klæðskeraverkstæði og ég man ekki betur en að þarna hafi verið gistiheimili fyrir einhverjum árum síðan. Frá 2008 hefur rútufyrirtækið  TREX haft aðsetur í húsinu og er afgreiðsla þess á 1.hæð en á þessum slóðum hefur verið miðstöð rútusamgangna við Akureyri svo áratugum skiptir. Þessi mynd er tekin 6.mars 2010. 


Akureyri International Airport

Ja, það skyldi þó ekki bara vera framtíðin. Síðustu daga í kring um helgina hefur verið heilmikið líf og fjör á Akureyrarflugvelli en hingað var millilandaflugi beint meðan Keflavíkurflugvöllur var lokaður. Stöðugur straumur var af heljarinar farþegaþotum og voru margir á ferðinni í kringum flugvöllinn þegar von var á þeim. Enda sjást þess konar vélar ekki hér á hverjum degi. Völlurinn virðist vera vel í stakk búinn fyrir millilandaumferð, enda nær flugbrautin nánast fram á Hrafnagil eftir lenginguna. Sennilega vantar uppá að stækka flugstöðina svo hún geti orðið fullburðug sem alþjóðaflugstöð. Önnur flugbraut yrði svo örugglega til bóta, en plássið á Hólmunum er nú reyndar ekki óþrjótandi. Önnur braut yrði líklega að liggja samsíða núverandi braut, því þó ég sé nú ekki flugfróður maður held ég að það væri afleitt að leggja braut þvert á fjörðinn. Vélin þyrfti þá að byrja ansi bratt klifur upp eftir Súlumýrum eða Vaðlaheiðinni strax og hún kæmist á loft. Efast um að slíkt væri mögulegt á stórum þotum. Með þessum flugvallarhugleiðingum set ég hér mynd þar sem sést vel yfir flugbrautina og athafnasvæði flugvallar (sést betur ef mynd er stækkuð), en ég klikkaði alveg á að vera með myndavélina þegar allar þoturnar voru hérna. Myndin er tekin 15.maí 2009.

p5150026.jpg


Hús dagsins: Hafnarstræti 86

Hafnarstræti 86 var reist 1903. Húsið er alls fjórar hæðir að meðtöp3060056.jpgldum kjallara og nokkuð sérstætt að gerð en að mörgu leyit dæmigert fyrir húsakynni efnafólks á þessum árum. Líklega hefur húsið komið tilhöggvið forsmíðað frá Noregi og síðan sett saman hér. Einkennandi fyrir húsið eru sérstæðir gluggapóstur og tveggja hæða svalir á suðurhlið með skrautrúðum og útskurði. Húsið var upprunalega timbur- eða panelklætt en hefur sennilega fengið bárujárnsklæðningu um 1920-30. Einn af fyrstu eigendum hússins hét Kristján Árnason og rak hann þar verslun sem kallaðist Eyjafjörður og hélst það nafn á húsinu lengi vel, en verslað var í húsinu í áratugi. Verslunarpláss var á fyrstu hæð og íbúðarrými á þeim efri.  Uppúr 1990 var húsið farið að láta nokkuð á sjá en hefur nú hlotið miklar endurbætur, bæði að utan sem innan. Nú eru að ég held þrjár íbúðir í húsinu, ein á hverri hæð. Myndin er tekin 6.mars 2010 en þá fór ég einmitt í gagngeran húsamyndunarleiðangur um þennan hluta Hafnarstrætis og neðri brekku.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • IMG_1930
  • IMG_1950
  • IMG_1939
  • IMG_1940 - afrit
  • IMG_1940

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 55
  • Sl. viku: 300
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 188
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband