9.6.2015 | 00:08
Hús dagsins: Aðalstræti 12. (Jensensbaukur og Hótel Akureyri)
Hvert einasta gamla hús geymir mikla sögu. En sömu sögu má að sjálfsögðu segja um lóðirnar sem húsin standa á, því að öllu jöfnu er saga þeirra sú sama eða jafnvel enn lengri því stundum er ekki um fyrsta hús að ræða. (Og stundum er því jafnvel öfugt farið- þegar hús hafa verið flutt á lóðirnar). En það er einmitt tilfellið með Aðalstræti 12 í Innbænum. Þar stendur nú fjórða húsið en þarna var upprunalega torfbær, en þarna stóðu mikil og merk stórhýsi sem bæði urðu eldi að bráð. Hér mun ég auk þess að minnast á núverandi hús fara stuttlega yfir sögu fyrirrennara þess á lóðinni.
Aðalstræti 12 er tvílyft steinsteypuhús, byggt árið 1957 af Jóni Antonssyni. Höfundur teikninga er Mikael Jóhannsson. Húsið er með háu risi og stendur á lágum grunni og snýr í N-S en þó er kvistur eða stafn eða álma sem snýr í austur, þ.e. að götu. Í gluggum eru þrískiptir lóðréttir póstar með tveimur mjóum bilum með opnanlegum fögum við jaðra og bárujárn á þaki. Svalir eru á suðurhlið hússins á annarri hæð. Húsið er líkast lítið breytt frá upphafi að ytra byrði og er í góðu standi. Þrjár íbúðir eru í húsinu, á hvorri hæð og í risi. Þessi mynd er tekin þann 14.maí 2015.
En steinhúsið á Aðalstræti 12 er sem áður segir ekki fyrsta húsið sem reis á lóðinni. Þarna stóð torfbær á 19.öld sem Lauritz H. Jensen keypti árið 1859. Ekki fer fleiri sögum af torfbæ þessum en ljóst er að Lauritz hefur rifið hann um 1865. Því árið 1866 reisti hann þarna mikið hús, einlyft timburhús með portbyggðu risi. Rak hann þar veitingahús en veitingaleyfi fékk hann þremur árum áður. Húsið þjónaði þessu hlutverki alla þá tíð sem það stóð. Kallaðist húsið Jensensbaukur og var Bauks nafnið dregið af iðn Jensens, en hann var beykir. Árið 1885 stækkaði Jensen húsið, hugsanlega hefur hann þá byggt kvist á húsið. En á mynd sem finna má m.a. í bók Steindórs Steindórssonar (1993: 26) sést að húsið var einlyft með háu porti og aflíðandi risi og miðjukvisti. Dyr voru á miðri framhlið. Krosspóstar voru á glugga jarðhæðar en einfaldir lóðréttir, skipt í miðju á efri hæð. Efri brún glugga efri hæðar námu við þakbrún og því má ímynda sér að efri hæðin hafi hálf verið undir súð og gluggar nokkuð neðarlega. Meðfylgjandi vatnslitamynd er máluð eftir myndinni í Akureyrarbókinni en hvað lit og umhverfi varðar tek ég mér skáldaleyfi. Ljóst er að húsið var ljósmálað. Húsið Jensens bauk hefur enginn núlifandi maður séð með berum augum. Því þann 19.desember 1901 kom upp eldur í húsinu og brann það til kaldra kola- ásamt þó nokkrum öðrum nærliggjandi húsum. Þá var eigandi hússins Vigfús Sigfússon veitingamaður en hann hafði keypt húsið og reksturinn árið 1898 og breytt nafninu í Hótel Akureyri. En Vigfús var aldeilis ekki af baki dottinn og á brunarústum hótelsins reisti hann eitt veglegasta og stærsta timburhús bæjarins.
Næsta hús á lóðinni, sem Vigfús reisti árið 1902 var tvílyft á háum grunni með tveimur turnum og miklum útbyggðum miðjukvisti með svölum. Þá voru einnig tveir litlir kvistir á framhlið, milli miðjukvists og turna. Það hús kallaðist Hótel Akureyri. Þarna var um ræða hús af svipaðri stærð og gerð og hús Menntaskólans á Akureyri og Samkomuhúsið. Svipuð timburstórhýsi stóðu einnig í fáein misseri efst við Strandgötu en þau brunnu öll í Oddeyrarbrunanum 1906. Gluggapóstar hússins virðast hafa verið áþekkir þeim í Samkomuhúsinu. Húsið reistu þeir Sigtryggur Jóhannsson og Jónas Gunnarsson byggingameistarar og var húsið plankabyggt, þ.e. Í stað hefðbundinnar grindar var húsið hlaðið úr þriggja tommu plönkum sem geirnegldir voru á hornum. Vigfús var jafnan nefndur Vigfús vert og á hans tíð var hér um að ræða eitt glæsilegasta og fullkomnasta hótel á landinu. Var þar oft mikið fjör mikið djammað og djúsað eins og það hefði kallast 100 árum síðar. Hótelrekstri lauk í húsinu um 1920 og var því þá breytt í fjölbýlishús. Þann 17.nóvember brann húsið til grunna og segir Steindór að þar hafi lokið sögu glæsilegasta hótels og húss sem reist hefur verið á Akureyri. Ég heyrði það í einni sögugöngu um Innbæinn að aðeins hefði munað nokkrum sekúndum að tekist hefði að bjarga húsinu. Menn voru komnir með slökkvidæluna að eldsupptökunum, sem voru glóðir í öskubakka. En skyndilega blés milli þylja og mikil súrefnissprenging sem og milliloftið fuðrað upp og menn orðið frá að hverfa í skyndi. En hér er ítarefni; samtímaheimild þar sem bruna Hótels Akureyri er lýst nokkuð skilmerkilega. Meðfylgjandi er grófrissuð mynd eftir undirritaðan sem sýnir Hótel Akureyri, húsið sem stóð á Aðalstræti 12 árin 1902- 1955. Til hliðsjónar hafði ég ljósmynd Hallgríms Einarssonar sem finna má í Akureyrarbók Steindórs á bls. 27.
Heimildir: Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Aðgengilegt á vefnum á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Innbaer/Innbaer_husakonnun.pdf
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri: höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Ekki man ég eftir hverjum þessi saga af slökkvistarfinu í Hótel Akureyri var höfð né hver sagði hana, hvort það var leiðsögumaður eða þátttakandi í sögugöngunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2015 | 21:41
Hafnarstræti: Innbær
Hafnarstræti er ein af lengstu götum Akureyrar (um 1500m) og jafnframt sú elsta. Hún nær frá Búðargili að Oddeyrinni og við hana stendur elsta hús bæjarins hið 220 ára Laxdalshús. Hafnarstræti liggur í Innbænum og Miðbænum og hér eru hús við þann hluta götunnar sem telst til Innbæjarins. Hér miða ég merki Innbæjar og Miðbæjar við Skjaldborg, Hafnarstræti 67 en vel gæti verið að einhverju séu ósammála þeirri skiptingu.
Hafnarstræti 5
Hafnarstræti 7
Hafnarstræti 9
Hafnarstræti 18 Thuliniusarhús
Hafnarstræti 20 Höepfners hús
Hafnarstræti 21
Hafnarstræti 23b
Hafnarstræti 49 Skátaheimilið Hvammur; Sýslumannshúsið
Hafnarstræti 53 Gamli Barnaskólinn
Hafnarstræti 57 Samkomuhúsið
Hafnarstræti 63 Sjónarhæð
Hafnarstræti 67: Skjaldborg
Hér eru einnig hús á lista sem ég hef enn ekki tekið fyrir en hyggst gera. Hér miða ég umfjöllunina við hús byggð fyrir miðja 20.öld, með nokkrum skekkjumörkum.
Meðfylgjandi mynd sýnir hina stórglæsilegu torfu við Hafnarstræti 29-41. Öll eru þessi hús byggð 1903-07 á vegum timburmeistarana Jónasar Gunnarssonar og Sigtryggs Jónssonar, með einni undantekningu þó sem H-31. Það hús er byggt 1999 og er hannað algjörlega með tilliti með útlits nærliggjandi húsa. Myndin er tekin að kvöldi 4.júlí 2009.
Bloggar | Breytt 21.1.2023 kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2015 | 08:51
Fyrir 9 árum
Fyrir réttum níu árum, 5.júní 2006, átti ég leið um Innbæinn og var með myndavélina, sem ég hafði nýlega fjárfest í. Ég ákvað að smella af nokkrum myndum af gömlum og merkum húsum en ég hafði í tæpan áratug haft ánægju og yndisauka af því að kynna mér sögu þeirra. Á níu árum getur ýmislegt gerst og hér birti ég myndir af Gamla Apótekinu við Aðalstræti 4 og Gamla Spítalanum, Aðalstræti 14 sem ég tók þann 5.júní 2006.
Hér eru nýlegar myndir til samanburðar, en þær eru teknar á Uppstigningadag, 14.maí 2015. Gamli Spítalinn hefur nú fengið andlitslyftingu eftir endurbætur sem staðið hafa í á annan áratug. Hvað Gamla Apótekið varðar sést að nokkuð hefur dregið til tíðinda, því endurgerð Gamla Apóteksins er hófst síðla vetrar og er nú í ferli. Forskalningin hefur verið fjarlægð sem og margt annað og er ég sannfærður um að innan nokkurra missera verður hér komið mikið glæsihýsi og bæjarprýði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2015 | 22:31
Hús dagsins: Aðalstræti 66
Ég minntist lítillega á þetta hús í færslu sem helguð var Aðalstræti 66a en ég tel Aðalstræti 66 verðskulda meiri umfjöllun hér en örfáar línur. En húsið er 172 ára gamalt eitt af elstu húsum á Akureyri, í fljótu bragði man ég aðeins eftir Lækjargötu 2a; Frökenarhúsi, Aðalstræti 52, Gamla Spítalanum og Laxdalshúsi sem eru eldri.
En Aðalstræti 66 reisti Grímur Laxdal bókbindari og veitingamaður árið 1843. Lengi vel var talið að Bertel Holm Borgen hafi reist húsið en það mun hafa verið misskilningur og segir Steindór Steindórsson (1993: 47) sýsluskjöl sanna að Grímur byggði húsið. Í upphafi var húsið einlyft með háu risi, líkt og tíðkaðist í húsbyggingum þess tíma en kvisturinn kom ekki á húsið fyrr en um 40 árum seinna. Grímur og kona hans Hlaðgerður Þórðardóttir ráku í húsinu veitingastað sem mun einn sá fyrsti á Akureyri. Auk þess var í húsinu eins konar sjúkra-gistiheimili en í skjóli þeirra Gríms og Hlaðgerðar gat fólk dvalist meðan beðið var eftir afgreiðslu héraðslæknis. Auk þessa bjó öll fjölskyldan í húsinu, sem var líklega nærri 6x8m að grunnfleti. Næsti eigandi hússins var Indriði Þorsteinsson gullsmiður en hann keypti húsið 1851 og átti það í tvo áratugi, uns Akureyrarbær keypti húsið undir skólahald árið 1872. Skóli var þá á neðri hæð en loftið til afnota fyrir þurfamenn. Ég gæti vel ímyndað mér að það sambúð skólabarna og þurfamanna hafi verið skrautleg og sérstök en ekki man ég neinar sögur þess efnis. Eitt árið eru íbúar loftsins skráðir m.a.Indriði tindur, Fjöru-Páll, Jón Háleggur, Björn Vosi, Jón askur og Jón mæða. Árið 1880 kaupir Sigurður Sigurðsson járnsmiður húsið af bænum en sú kvöð fylgdi, að a.m.k. helmingur loftsins skyldi enn leigt til þurfandi fólks. Sigurður stækkaði húsið, byggði útstæðan kvist á framhlið sem einnig er forstofubygging og einnig litla einlyfta byggingu bakatil. Fékk húsið þá það lag sem það hefur nú. Sigurður bjó í húsinu til dánardægurs, 1927 eða í nær hálfa öld. Síðan hafa margir átt eða búið í húsinu. Ekki virðist hafa verið nein viðamikil starfsemi í húsinu á 20.öldinni, alltént birtast ekki margar auglýsingar um iðnað eða þjónustu ef heimilisfanginu Aðalstræti 66 er slegið upp í timarit.is. Hér má að vísu sjá auglýsingu frá 1932 frá Mörthu Jóhannsdóttur sem tók að sér að stoppa í sokka og nærföt. Einhvern tíma var húsið klætt asbesti og þverpóstar settir í glugga. Á síðustu árum hefur húsið fengið mikla yfirhalningu og er á því ný timburklæðning og nýtt þakjárn og nýlegir sexrúðugluggar. Hér er fjallað um fyrirhugaðar endurbætur hússins í Degi í ársbyrjun 1994. Húsið var friðað skv. Þjóðminjalögum árið 1990. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin á Uppstigningardag, 14.maí 2015.
Heimildir: Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Aðgengilegt á vefnum á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Innbaer/Innbaer_husakonnun.pdf
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri: höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2015 | 10:19
Lífsvökvinn góði
Eitt er það sem ég get illa verið án og það er kaffið. Sennilega drekk ég á bilinu hálfan til einn lítra á dag af þeim indælisdrykk en kaffið hefur þann kost að vera sérlega ódýrt og aðgengilegt- ekki er t.d. óalgengt að fyrirtæki og stofnanir bjóði upp á frítt kaffi. Ég drekk langmest af þessu "venjulega" uppáhellta og er minna duglegur í latte, cappuchino eða frappó og hvaðþettanúalltheitir- leyfi mér slíkt þó endrum og eins. Það er í raun tilviljanakennt hvort ég fæ mér mjólk út í kaffi en oftast drekk ég það svart og sykur nota ég aldrei út í lífsexilírinn svarta. Oft lauma ég nokkrum kúmenkornum með í kaffisíuna þegar ég helli uppá en einnig er ágætt að setja teskeið af kanil með, það gefur góðan ilm og skemmtilegt bragð. En kaffið en vanabindandi svo um munar.
Ég hef frá 10 ára aldri reglulega farið í skátaútilegur í Fálkafell ofan Akureyrar, síðustu 12 árin sem foringi skátasveita. Þar er ekkert rafmagn og þ.a.l. engin kaffivél. En engu að síður ekkert mál að hella upp á kaffi með réttu græjunum en lengi vel hugsaði ég nú ekkert út í það. Að öllu jöfnu eru skátaútilegur frá föstudagskvöldi til hádegis á sunnudag. Það var lengi vel ekki óalgengt þegar skyggja tók á laugardögum í Fálkafellsútilegum að ég fyndi fyrir ónotum í maga og aðkenningu að hausverk. Rakti ég þetta til reykjarkófs og ólofts sem oft gat orðið þarna þegar kynt var með timbri ( og rusli) og oft ekki hirt um að loka kabyssu þegar lagt var í hana. En mér þótti hins vegar einkennilegt að strákarnir virtust aldrei kveinka sér undan neinu þessu líku og ekki Árni samforingi minn heldur (hann hefur aldrei drukkið kaffi). Þegar ég svo fann fyrir þessum nákvæmlega sömu einkennum á laugardagskvöldi í útilegu í Valhöll, sem er "reyklaus" skáli búinn öllum nútímaþægindum, rann upp fyrir mér ljós. Á þessum tímapunktum í útilegum þ.e. seinnipart laugardags hafði ég, sem að öllu jöfnu drakk 6-10 kaffibolla dag hvern, ekki innbyrt kaffidropa í sólarhring !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2015 | 16:25
Hús við Eyrarlandsveg
Þessi dægrin legg ég dálítið stund á það að gera færslur síðunnar aðgengilegar á fljótvirkan hátt með því að raða þeim upp eftir götum. Þetta hjálpar mér að sjá hvaða hús ég hef þegar tekið fyrir en einnig er ágætt að líta á sum þessi skrif aftur, því sum hef ég ekki lesið frá því ég birti þau hér. Oftar en ekki eru þau uppfull af alls konar ásláttar- og málfarsvillum sem ég veitti enga athygli fyrst. En hér eru færslur um hús við Eyrarlandsveg.
Eyrarlandsvegur er ein af þessum áberandi og glæsilegu eldri götum Akureyrar,
heitir eftir stórbýlinu Eyrarlandi sem lagði til stóran hluta bæjarlands Akureyrar sunnan Glerár. Gatan liggur frá Akureyrarkirkju og klífur á brekkubrúninni til suðurs uppá barma Barðsgils ofan Samkomuhússins og heldur svo áfram framhjá Menntaskólanum og Lystigarðinum að Sjúkrahúsinu, þar sem Spítalavegurinn steypist niður í Innbæinn.
Eyrarlandsvegur 8 (Æsustaðir) (1906)
Eyrarlandsvegur 12 (1923)
Eyrarlandsvegur 14 (1928)
Eyrarlandsvegur 16 (1928)
Eyrarlandsvegur 20 (1926)
Eyrarlandsvegur 22 (1926)
Eyrarlandsvegur 24 (1925)
Eyrarlandsvegur 25 (1970, Barð 1899-1969)
Eyrarlandsvegur 26 (1911)
Eyrarlandsvegur 27 (1928)
Eyrarlandsvegur 29 (1923)
Eyrarlandsvegur 31 (1923)
Eyrarlandsvegur 33 (1971)
Eyrarlandsvegur 35 (Fagrastræti 1) (1915)
Eftirfarandi byggingar standa einnig við Eyrarlandsveg:
Sigurhæðir (1903)
Gamli Skóli (1904) og Fjósið (1905)
Akureyrarkirkja (1940)
telst einnig standa við Eyrarlandsveg. Við Eyrarlandsveg 19 stóð einnig húsið Rósinborg en sökum þess að það var rifið rúmum 12 árum áður en ég fæddist hef ég ekki tekið mynd af því . Hér sést það hins vegar á mynd á myndasíðu Rúnars Vestmann. Barð hét einnig lítið hús sem stóð á Eyrarlandsvegi 25.
Meðalaldur þeirra húsa sem nú standa við Eyrarlandsveginn árið 2015 er 89,7 eða tæp 90 ár
Bloggar | Breytt 5.10.2019 kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2015 | 12:40
Hús dagsins: Kristnes í Glerárþorpi; Lyngholt 13
Gömlu býlin í Glerárþorpi eru yfirleitt auðþekkjanleg frá nærliggjandi húsum. Þau standa yfirleitt á skjön við húsaraðirnar og lóðir yfirleitt mikið stærri og byggingarlag þeirra er ævinlega frábrugðið næstu húsum, enda yfirleitt um miklu eldri hús að ræða.Heimildir um upprunasögu þessara húsa eru oft ekki auðfáanlegar eftir þeim leiðum sem ég hef farið. Bygginganefndafundargerðir fyrir Akureyrarbæ koma þar að litlu gagni því Glerárþorp varð ekki hluti af Akureyri fyrr en 1955. En með hjálp Landupplýsingakerfisins góða tókst mér að grafa upp byggingarár hússins hér á myndinni og fletti upp í Manntali sem tekið var tveimur árum fyrir skráð byggingarár hússins.
En húsið hér á myndinni, Kristnes, stendur í Glerárþorpi, rétt upp af norðurbakka Glerár um 100 metra frá Glerárbrú á Þjóðvegi 1. Húsið telst standa á lóðinni Lyngholt 13. Upprunalega var sett hús á Kristnesi árið 1908 og var um að ræða stýrishús af skipi og kallaðist húsið "Káetan" í daglegu tali. Núverandi hús er hins vegar byggt árið 1932. Á teikningum sem Árni Gunnar Kristjánsson gerði vegna endurbóta hússins 2004 kemur fram að engar teikningar séu til af húsinu. Íbúar á Kristnesi árið 1930 voru þau Tryggvi Þórðarson verkamaður og Oddný Þorsteinsdóttir og börn þeirra. Mér þykir því freistandi að draga þá ályktun að Tryggvi og Oddný hafi staðið fyrir byggingu Kristness árið 1932. Húsið er einlyft steinsteypuhús á lágum grunni og með háu risi og á framhlið eru tveir smáir kvistir. Á norðvesturhlið er einlyft viðbygging með skúrþaki. Bárujárn er á þaki hússins og nýlegir krosspóstar í gluggum. Líkt og gengur og gerist með eldri hús Glerárþorps var hér búrekstur nokkur og þarna hafa m.a. verið kýr (hér auglýsir Tryggvi Þórðarson "Ung vorbær kýr" sumarið 1949 ). Ekki veit ég hvenær búskapur hefur lagst hér af en gatan Lyngholt byggðist að mestu á 7.áratugnum og með þéttbýlismyndun í Glerárþorpi var búskapi á smábýlunum þar væntanlega sjálfhætt. Fyrir um áratug var Kristnes allt gert upp, þak m.a. endurnýjað frá grunni sem og gluggar og hurðir og kvistir byggðir á þakið. Því er húsið í raun eins og nýtt. Ekki er hægt að segja annað en að endurbætur hafi heppnast vel og nú er húsið til mikillar prýði og sóma í götumyndinni. Þessi mynd er tekin á öðrum degi páska, 6.apríl 2015.
Heimildir: Árni Gunnar Kristjánsson (2004). Byggingarnefndarteikning Lyngholt 13. Sótt 3.5.2015 gegn um Landupplýsingakerfi Akureyrarbæjar.
Manntal 1930. Varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2015 | 18:25
Hús við Aðalstræti
Aðalstræti er ein elsta og merkasta gata Akureyrar. Hún er ein helsta gata Innbæjarins, eða kannski réttara sagt Fjörunnar, og liggur undir snarbrattri Brekkunni sem nú er að mestu skógi vaxin. Ég hef tekið hana fyrir að stórum hluta en fáein hús á ég þar eftir og hjálpar þessi listi mér við að finna út úr því hver þau hús eru. Elstu pistlarnir mínir eru frá sumrinu 2009 en húsin við Aðalstrætið hef ég tekið jöfnum höndum við og við frá upphafi þessarar síðu. Elstu greinarnar eru stuttar og minna af upplýsingum sem koma fram þar en síðar fór ég að gerast kröfuharðari við sjálfan mig um umfang pistlana. Athugið einnig, að í einhverjum tilfellum getur byggingarár húsanna sem gefið er upp hér stangast á við það sem í pistlunum segir en í þessari upptalningu miða ég við þetta rit hér að mestu leiti. Þá miða ég byggingarár við það hvenær upprunalegu hlutar húsanna voru byggðir.
Aðalstræti 2 (1850*)
Aðalstræti 3; Brynja (1946)
Aðalstræti 4; Gamla Apótekið (1859)
Aðalstræti 5 (1946)
Aðalstræti 6 (1850)
Aðalstræti 8 (1929)
Aðalstræti 10; Berlín (1902)
Aðalstræti 12 (1958)
Aðalstræti 13 (1898)
Aðalstræti 14; Gamli Spítalinn (1835)
Aðalstræti 15 (1903)
Aðalstræti 16 (1900)
Aðalstræti 17 (1899)
Aðalstræti 19 (1905)
Aðalstræti 20 (1897)
Aðalstræti 21 (1921)
Aðalstræti 22 (1898)
Aðalstræti 24 (1903)
Aðalstræti 28 (1928)
Aðalstræti 30 (1929)
Aðalstræti 32 (1888)
Aðalstræti 34 (1877)
Aðalstræti 36 (1877)
Aðalstræti 38 (1892)
Aðalstræti 40 (1851)
Aðalstræti 42 (1852)
Aðalstræti 44 (1854)
Aðalstræti 46 (1849)
Aðalstræti 50 (1849)
Aðalstræti 52 (1840)
Aðalstræti 54; Nonnahús (1849)
Aðalstræti 54b (1896)
Aðalstræti 58; Kirkjuhvoll (1934)
Aðalstræti 62 (1846)
Aðalstræti 63 (1903)
Aðalstræti 66** (1843)
Aðalstræti 66b (1850)
Aðalstræti 68 (1953)
Aðalstræti 70 (1943)
Aðalstræti 72 (1933)
Aðalstræti 74 (1857)
Aðalstræti 80 (1914)
Aðalstræti 82 (1951)
* Fasteignaskrá segir Aðalstræti 2 byggt 1886 en hér miða ég við hvenær upprunalegu hlutar hússins voru byggðir. Hér er um að ræða hús byggt í mörgum áföngum.
**Ég segist fjalla um Aðalstræti 66 í færslunni sem helguð er 66b en mér finnst sú umfjöllun engan vegin fullnægjandi. Því mun ég taka A-66 fyrir sérstaklega í færslu seinna.
Heimildir (byggingarár húsa): Hjörleifur Stefánsson (2012). Húsakönnun 2012 Fjaran og Innbærinn. Óprentað en aðgengilegt á pdf-formi, sjá tengil hér að ofan.
Þetta eru þau hús sem ég hef fjallað um og mun fjalla um við Aðalstrætið. Fleiri hús standa við götuna en hér miða ég þau sem byggð voru fyrir miðja 20.öld eða svona hér um bil. Ekki það að ég telji nýrri hús neitt ómerkilegri eða slíkt en ég hef hér á þessari síðu einbeitt mér að eldri húsum með sögu er mest spenntur fyrir þeim hluta sögunnar sem enginn eða a.m.k. færri muna. Hér að neðan er listi yfir öll húsin við Aðalstræti, og þar kemur fram að meðalaldur húsanna við götuna er rétt tæp 111 ár !
(Ath. tvísmella þarf á mynd og skoða hana sér svo upplýsingar verði læsilegar).
Bloggar | Breytt 1.11.2015 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2015 | 18:33
Hús við Spítalaveg
Ásamt því að skrifa nýjar greinar um hús og byggingar vinn ég jöfnum höndum að því að flokka færslurnar mínar niður þannig að hægt verði auðveldlega að fletta upp stökum húsagreinum hér á síðunni. Hér eru greinar sem ég hef skrifað um hús við Spítalaveg, þær elstu skrifaðar sumarið 2010, en ég tók einnig "skorpur" síðvetrar 2012 og í júlí 2013.
Spítalavegur 1 (1903)
Spítalavegur 8 (1903)
Spítalavegur 9 (1899)
Sóttvarnarhúsið og Litli Kleppur *(1905 og 1945)
Spítalavegur 13 (1920)
Spítalavegur 15 (1906)
Spítalavegur 17 (1907)
Spítalavegur 19 (1908)
Spítalavegur 21 (1945)
*Þessi fyrrum húsakostur Akureyrarsjúkrahúss taldist áður standa við Spítalaveg 11 en nú standa þau við Tónatröð. Sjúkrahúsið var reist 1898 á þessum stað en var tekið niður 1954 og byggt upp sem Skíðastaðir í Hlíðarfjalli 1955-57.
Ekki standa hús svo ég viti til sem bera númerin 2-7 við Spítalaveg. Gatan byggðist að mestu á árunum 1903-08 og yngstu húsin standa á sjötugu í ár. Meðalaldur húsanna við Spítalaveg árið 2015 er tæplega 101 ár. (Hér er útreikningurinn, fyrir þá sem gaman hafa af Excel-skjölum )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2015 | 19:49
Ægisgata sunnanverð
Hér eru greinar sem ég hef skrifað um sunnanverða Ægisgötu, það er elsta hluta götunnar, neðan við Eyrarveg. Með þessari umfjöllun slæ ég botninn í hina skipulögðu umfjöllun um öll hús á Norðurgötu- Eiðsvallagötu- Ægisgötu reitnum en hann hef ég tekið fyrir frá nóvemberbyrjun eða í allan vetur, því nú er sumarið gengið í garð skv. almanakinu. Í þessari umfjöllun hef ég notað Eyrarveginn sem markalínu en byggingarárið 1940 hefur einnig verið viðmið, þó auðvitað hafi yngri hús fylgt með. Ég er ekki viss um að ég leggi í jafn "massíva" og skipulagða vinnu um heilar götur á þessum forsendum, frekar eitt og eitt hús eða fáein hús í sömu götu í röð. Svo er ég alltaf að reyna að koma einhverju skikki á þetta greinasafn mitt sem telur örugglega nálægt 500 greinum sem allar raðast í belg og biðu. Einn liður í þessu "skikki" er að útbúa tenglafærslur á borð við þessa hér. En ég skal bara viðurkenna að þetta er alveg djöfulleg vinna að reyna eitthvað að eiga við þetta pistlasafn mitt og oft gefst ég upp á að reyna. Enda passa ég mig alltaf á því að þetta skemmtilega hobbý mitt snúist ekki upp í kvöð og leiðindi og ein leiðin er að leggja ekki meira á sig en maður nennir. En nóg um það, hér eru Ægisgata 1-14.
Ægisgata 1 (1939)
Ægisgata 2 (1936)
Ægisgata 3 (1939)
Ægisgata 4 (1936)
Ægisgata 5 (1939)
Ægisgata 6 (1937)
Ægisgata 7 (1939)
Ægisgata 8 (1936)
Ægisgata 10 (1937)
Ægisgata 11 (1937)
Ægisgata 12 (1936)
Ægisgata 13 (1937)
Ægisgata 14 (1936)*
*Þessa færslu skrifaði ég fyrir rúmum fjórum árum. Það sem ekki kemur fram í þeirri færslu en skal getið hér er að Jón Helgason skósmiður fékk árið 1936 lóð og húsbyggingarleyfi "við Ægisgötu hornlóðina að austan milli Ægisgötu og Eyrargötu" [innskot: hér er vitanlega átt við Eyrarveg, vera má nafninu hafi verið breytt síðar]. (Bygginganefnd Akureyrar: fundur nr. 784, 9-11-1936).
Eins og sjá má er öll röðin byggð á árabilinu 1936-39 og meðalaldurinn því um 77,5 ár. Húsaröðin við Ægisgötu þykir mér alveg einstaklega smekkleg og vel heppnuð götumynd. Þetta eru einföld og látlaus og lágreist hús en í smæðinni og látleysinu felst ákveðinn glæsileiki, alls engu síðri en í skrauti hlöðnum stórhýsum. Ekki skemmir fyrir að flest eru í húsin í frábærri hirðu og lóðir smekklega frágengnar. Ég er ekki sérfróður um húsfriðun og varðveislumat enda aðeins leikmaður en ég get þess engu að síður hér mitt álit er, að húsaröðin við Ægisgötuna ætti að hafa ótvírætt varðveislugildi og njóta friðunar. Og hananú.
Síðastliðin vetur hef ég unnið að skrifum um Eiðsvallagötu- Ránargötu- Ægisgötu "blokkina" og auk þess hluta Norðurgötu sem liggur ofan fyrst töldu götunnar og samsíða hinum tveimur síðarnefndu. Hér var um nýbreytni að ræða hjá mér því yfirleitt hef ég látið nægja að leita fanga í prentuðum heimildum en nú lagðist í fundargerðarbækur og manntöl á Héraðskjalasafninu þar sem útgefnum bókum sleppti, en markalína Oddeyrarbókarinnar góðu er einmitt Eiðsvallagatan. Ég dró hinsvegar mörkin í minni umfjöllun við næstu samsíða "lang"-götu þ.e. Eyrarveg.
Eiðsvallagatan (færslur að mestu frá nóv 2014- jan 2015)
Norðurgatan (hús 28-40 færslur á bilinu jan-feb 2015)
Ránargatan sunnanverð (feb-mars 2015)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.7.): 10
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 441
- Frá upphafi: 450873
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 336
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar