Næst á dagskrá í húsaumfjölluninni: Miðbærinn

Af Syðri Brekkunni færum við okkur niður að Ráðhústorgi. Þar tek ég fyrir hús nr. 7 og 9, og því næst nokkur við Skipagötu og birtist grein um Ráðhústorg 7 á allra næstu dögum. Við höldum því niður í miðbæ, eða "DOWNTOWN", líkt og Petula Clark söng fyrir rúmri hálfri öld. (Ólíklegt hlýtur að teljast, að í laginu sé átt við miðbæ Akureyrar, en miðbær er það engu að síður wink). 


Hús dagsins: Hrafnagilsstræti 14

Vorið 1935 hugðust þeir félagar og samkennarar PA270992við Barnaskóla Akureyrar, Hannes Magnússon og Eiríkur Sigurðsson, fá lóð við Möðruvallastræti. Ekki höfðu þeir erindi sem erfiði , þar eð ekki var ekki ákveðið að leggja götuna. Þeir fengu hins vegar skömmu síðar samliggjandi lóðir, spölkorn vestar og ofar, það er við Páls Briemsgötu 20 og Hrafnagilsstræti 12. Fyrrnefnda lóðin varð síðar Hrafnagilsstræti 12, og númer 12 varð 14. En Eiríkur fékk leyfi til að reisa íbúðarhús úr steinsteypu, 8,80x8,30m að grunnfleti, ein hæð á „ofanjarðarkjallara“ skv. teikningu og lýsingu. Svo virðist, sem húsið sé byggt eftir sömu teikningu og Hrafnagilsstræti 12 (Páls Briemsgata 20), en á teikningum Guðmundar Gunnarssonar fyrir fyrrgreint húsið er talað um „hús Eiríks Sigurðssonar og Hannesar Magnússonar“. Þar kemur glögglega fram afstaða húsanna, annað þeirra merkt HM, við Páls Briemsgötu en hitt, á horni Hrafnagilsstrætis og Skólastígs merkt ES.

Hrafnagilsstræti 14 er tvílyft steinsteypuhús með einhalla, aflíðandi þaki. Horngluggar í funkisstíl á suðausturhorni en vestanmegin á suðurhlið er sólskáli úr timbri og gleri. Á norðurhlið er viðbygging frá 1964 og þar innbyggður bílskúr. Í flestum gluggum eru einfaldir, lóðréttir póstar, bárujárn á þaki og veggir múrsléttaðir.

Skráð byggingarár hússins er 1946. Engu að síður eru þau Eiríkur Sigurðsson og Jónína Kristín Steinþórsdóttir skráð þarna til heimilis í Manntali árið 1940, og húsið þar sagt 5 ára, þ.e. byggt 1935. Þá er elsta heimildin um Hrafnagilsstræti 12 (síðar 14) sem finna má á timarit.is frá árinu 1936. Þannig er ljóst að hús hefur verið risið þarna 1935, þó e.t.v. hafi það ekki verið fullbyggt fyrr en áratug síðar. Eiríkur Sigurðsson (1903- 1980) var fæddur og uppalinn í Geithellnahreppi í Suður-Múlasýslu. Hann kenndi og var skólastjóri á Seyðisfirði og Neskaupsstað á árunum 1927-30, eftir námsdvöl í Kaupmannahöfn. Hann fluttist til Akureyrar árið 1933, er hann lauk prófi frá Kennaraháskólanum og kenndi við Barnaskóla Akureyrar. Þar varð hann yfirkennari árið 1949. Eiríkur var fyrsti skólastjóri Oddeyrarskóla, en hann var stofnaður árið 1957. Var þá löngu orðið aðkallandi að stofna barnaskóla á Oddeyri, sem þá var orðin fjölmennt og barnmargt hverfi. Eiríkur var skólastjóri Oddeyrarskóla í 10 ár, en hann fór á eftirlaun 1967. (Þess má að sjálfsögðu geta hér, að sá sem þetta ritar var löngu síðar nemandi í Oddeyrarskóla í þrjá vetur og starfsmaður þar í átta ár. Það voru svo sannarlega ánægjuleg ár) Eiríkur Sigurðsson var auk þess afkastamikill rithöfundur, og var ásamt nágranna sínum og félaga, Hannesi J. Magnússyni, eigandi og útgefandi Vorsins, barnablaðsins góðkunna. Líkt og Hannes birti Eiríkur fjölda greina og smásagna í Vorinu. Eiríkur seldi húsið árið 1959 og hingað fluttu þau Jón Eðvaldsson og Jakobína Guðbjartsdóttir. Jón og Jakobína bjuggu hér til æviloka, 1974 og 1976. Hafa síðan ýmsir búið í þessu ágæta húsi. Öfugt við systurhúsið austan við, hefur  Hrafnagilsstræti 14 tekið nokkrum breytingum gegnum tíðina. Árið 1964 byggðu þau Jón og Jakobína við húsið til norðurs, eftir teikningum Mikaels Jóhannssonar. Á sama tíma var einnig byggt á húsið einhalla þak, en það var flatt í upphafi. Síðar var innréttaður bílskúr á neðri hæð viðbyggingar. Árið 1990 var byggður sólskáli á svölum efri hæðar, og fékk húsið þá það lag, sem það nú hefur.  Ekki er hægt að segja annað, en að þessar breytingar hafi verið til góðs og fari húsinu vel. Það er í mjög góðri hirðu og til mikillar prýði á nokkuð fjölförnu horni. Í Húsakönnun 2016 er það sagt með 3. stigs varðveislugildi, og helst sem hluti götumyndar. Það er dálítið gaman að bera saman húsin tvö við Hrafnagilsstræti 12 og 14, sem næsta öruggt er, að séu byggð eftir sömu teikningu, en eru við fyrstu sýn næsta ólík. En það er nú aldeilis ekki allt sem sýnist.

Það er ekki aðeins húsið sem er til prýði í vinalegu og geðþekku umhverfi Syðri Brekkunnar. Lóðin er bæði vel hirt og gróskumikil og ber þar nokkuð á ýmsum trjá- og runnagróðri. Á suðausturhorni lóðar er stórvaxið, á að giska um 15m hátt, og gróskumikið lerkitré og er það til mikillar prýði og setur skemmtilegan svip á umhverfið. Það skartaði gulbrúnum haustlitum þegar undirritaður var á ferðinni um Hrafnagilsstrætið með myndavélina þann 27. október 2019.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. 742, 4. maí 1935. Fundur nr. 747, 14. júní 1935. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Manntal 1940.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf

 


Hús dagsins: Hrafnagilsstræti 12

Árið 1935 fékk Hannes Magnússon  lóð við vestanverða Páls Briemsgötu. PA270990 Þeirri götu var ætlað að liggja skáhallt (til suðvesturs) frá  suðurbakka Grófargils að Hrafnagilsstrætis, eilítið vestar en Laugargata, sem var raunar lögð nokkuð síðar.  Í Manntali 1940 er húsið skráð sem Páls Briemsgata 20, og er þá eina húsið við götuna. Þau munu ekki hafa orðið fleiri. Hannes fékk umrædda lóð og leyfi til að byggja þar hús. Nánar tiltekið íbúðarhús úr steinsteypu, á einni hæð á „ofanjarðarkjallara“ skv. meðfylgjandi teikningu og lýsingu, en ekki kemur nánar fram hver sú lýsing er. Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson. Á þeim teikningum er einnig sýnd lega hússins og hvernig Páls Briemsgötu var ætlað að liggja.

            Hrafnagilsstræti 12 er tvílyft steinsteypuhús í funkisstíl, með flötu þaki og horngluggum mót suðri. Á suðurhlið er útskot og svalir á efri hæð. Þak er pappaklætt, sléttur múr á veggjum og krosspóstar í gluggum. Undir þakkanti er tannstafur, nokkurs konar steyptir ferkantaður hnappar í röð, til skrauts.

            Hannes J. Magnússon, sem byggði húsið var Skagfirðingur, fæddur og uppalin á Torfmýri. Hann lauk prófi frá Kennaraskólanum árið 1923, og kenndi næstu árin m.a. á Fáskrúðsfirði. Árið 1930 fluttist hann til Akureyrar og hóf kennslu við Barnaskólann, þar sem hann var skólastjóri árin 1947-´65. Hann hóf útgáfu barnablaðsins Vorsins árið 1932 og ritstýrði því um áratugaskeið. Hann var einnig ritstjóri tímaritsins Heimilis og skóla í tæpa þrjá áratugi. Þá var hann mikilvirkur barnabókahöfundur og þýddi einnig margar bækur, auk þess sem hann birti fjölmargar sögur í Vorinu. Hannes lést árið 1972. Hann var kvæntur Sólveigu Einarsdóttur frá Seyðisfirði. Bjuggu þau hér fram á miðjan sjöunda áratug, eða í um 30 ár uns þau fluttu til Reykjavíkur. Húsið taldist lengi vel standa við Páls Briemsgötu, enda þótt ljóst væri, að sú gata yrði ekki lögð. Raunar  var fyrirhuguð götulína löngu komin undir hús og lóðir  haustið 1961, þegar húsið varð formlega Hrafnagilsstræti 12 á fundi Byggingarnefndar.

         Hrafnagilsstræti 12 er reisulegt hús og í mjög góðri hirðu. Það er nánast óbreytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði. Það stendur nokkuð innarlega á stórri og gróinni lóðinni og eilítið skástætt miðað við húsalínu Hrafnagilsstrætisins.  Kemur það til af staðsetningu hússins við hina fyrirhuguðu götu, áðurnefndri Páls Briemsgötu. Húsið er á meðal elstu funkishúsa á Akureyri, en nokkur slík risu árin 1931-35, en á síðari hluta fjórða áratugarins varð hann svo til alls ráðandi í gerð íbúðarhúsa. Síðar varð til svokallaður „byggingarmeistarafunkis“ og var þar um að ræða funksjonalisma, aðlagaðan að íslenskum aðstæðum. Slík hús standa við Skólastíg, Möðruvallastræti og Laugargötu. Húsið er sagt í Húsakönnun Minjasafnsins árið 2016, frumherjaverk, þar sem hönnuðurinn var að reyna sig við nýjan byggingarstíl, þ.e. funksjonalisma (fúnkís). (sbr. Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir 2016: 68). Þar er húsið metið með hátt, eða 7. stigs varðveislugildi vegna byggingarsögu og menningarsögu. Þá má kannski segja, að húsið og  afstaða þess miðað við önnur hús götunnar, sé eins konar minnisvarði um götuna, sem aldrei varð. Það er, Páls Briemsgötu. Í húsinu er ein íbúð. Myndin er tekin 27. október 2019.

Skanni_20200324

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Páls Briemsgata. Hér er gróf rissmynd (hlutföll, áttir og mælikvarðar engan veginn rétt) undirritaðs af mögulegri, fyrirhugaðri Páls Briemsgötu. Gatan átti að ná alla leið að Grófargili og greinilega gert ráð fyrir a.m.k. 20 húsum, tíu hvoru megin, (sbr. Páls Briemsgata 20). 

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. 747, 14. júní 1935. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Manntal 1940.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


Hús við Skólastíg

Síðastliðnar vikur hef ég tekið fyrir húsin við sunnanverðan Skólastíg á Syðri Brekkunni. Hér eru þær umfjallanir, allar á einu bretti. 

Skólastígur 1 1942
Skólastígur 31943
Skólastígur 51946
Skólastígur 71943
Skólastígur 91949
Skólastígur 111947
Skólastígur 131948

 

Íbúðarhúsin við Skólastíg eru byggð 1942-49. Meðalaldur þeirra árið 2020 er þannig 75 ár.

Norðanmegin götunnar eru byggingar:

Rósenborg (b.1930) fyrrum Barnaskóli Íslands, Skólastígur 2.

Skólalóð Brekkuskóla, Sundlaugarsvæðið og Íþróttahöllin telst vera Skólastígur 4.

Brekkuskóli (áður Gagnfræðaskóli Akureyrar) b. 1943, viðb. 2005

Sundhöllin fullbyggð 1956, viðb. 2000

Íþróttahöllin (b. 1980) og Átak heilsurækt, norðan Íþróttahallar (b. 2008) og Íþróttahúsið, löngum kennt við Laugargötu (b.1943)

Ef við tökum allar þessar byggingar með í reikninginn, er meðalaldur húsa við Skólastíg, árið 2020 um 68 ár.

PC070968

P4080716

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íþróttahúsið við Laugargötu, telst samkvæmt Fasteignaskráningum standa við Skólastíg. Sama á við um Sundlaugarbygginguna. Myndirnar eru teknar 7. des. 2019 og 8. apríl 2018, menn geta giskað, út frá sólarhæð og snjóalögum, hvor mynd er tekin hvenær wink Ekki er ólíklegt, að ég taki þessarar byggingar fyrir í greinum hér...


Hús dagsins: Skólastígur 13

Skólastíg 13, sem er efsta hús við götuna, reistu þeir  og Brynjólfur Sveinsson menntaskólakennari og Þorsteinn Stefánsson bæjarritari árið 1948.PC070961 Í júlí 1947 fengu þeir lóðina og byggingarleyfi en húsi  þeirra er ekki lýst í bókun byggingarnefndar. Hins vegar er tekið fram, að þeir skuli skila fullnaðarteikningum svo fljótt sem auðið er. Þær teikningar gerði Tryggvi Jónatansson, en þær eru ekki aðgengilegar á Landupplýsingakerfi.

Skólastígur 13 er tvílyft steinsteypuhús á kjallara og með lágu valmaþaki. Bárujárn er þaki og veggir múrsléttaðir og lóðréttir póstar í gluggum. Bogadregið útskot á vesturhlið, með svölum ofan á, setur nokkuð skemmtilegan svip á húsið.

Brynjólfur Sveinsson menntaskólakennari var fæddur í Viðvíkurhreppi í Skagafirði. Hann kenndi við Menntaskólann á Akureyri í tæpa fjóra áratugi, 1930-68 og má nærri geta, að stutt hefur verið fyrir hann í vinnuna héðan. Eiginkona Brynjólfs var Þórdís Haraldsdóttir frá Rangalóni á Jökuldalsheiði. Þau bjuggu hér til ársins 1974, en fluttust þá til Reykjavíkur.   Þorsteinn Stefánsson frá Stekkjarflötum í Saurbæjarhreppi og Steingerður Eiðsdóttir frá Þúfnavöllum í Hörgárdal bjuggu hér einnig um langt skeið eftir að þau byggðu húsið, í félagið við Brynjólf og Þórdísi.  Steingerður var ljósmóðir að mennt, var starfaði lengst af sem talsímavörður á Landssímanum. Þorsteinn var sem áður segir, bæjarritari Akureyrarkaupstaðar um nokkurt árabil.  Steindór Steindórsson segir lítillega frá kynnum sínum við Þorstein á námsárum beggja, fyrir réttri öld. Voru þeir nágrannar, leigðu báðir í Lækjargötu, og hófu að lesa saman og voru saman á heimavist veturinn eftir. „Hófst þá vinátta okkar, sem haldist hefir síðan“ og segir jafnframt að Steini [Þorsteinn] hafi verið góður námsmaður og „[...]hefir reynst farsæll í öðrum öðrum störfum[...]“  (Steindór Steindórsson 1982: 96).

Skólastígur 13 er að mestu leyti óbreytt frá upprunalegri gerð. Í mars 2004 skemmdist neðri hæð hússins nokkuð í bruna, en var öll endurbyggð og er þannig sem ný. Húsið og lóðin, sem er m.a. prýdd gróskumiklum birkitrjám eru hvort tveggja í mjög góðri hirðu og til mikillar prýði á nokkuð fjölförnu horni. En drjúgur hluti gesta Sundlaugar Akureyrar og líkamsræktarstöðvarinnar Átaks, sem þangað koma akandi, eiga leið fram hjá húsinu. Myndin er tekin þann 7. desember 2019

Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur 4. júlí 1947, nr. 1080, 21. júlí 1947 Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf

Steindór Steindórsson. (1982). Sól ég sá; sjálfsævisaga. Reykjavík: Örn og Örlygur.


Hús dagsins: Skólastígur 11

Árið 1946 fékk Sigurður Jónsson lóð, sem í bókunum Byggingarnefndar kallast einfaldlega „önnur lóð norðan við Jónas Kristjánsson“, auk byggingarleyfis fyrir steinsteyptu húsi á tveimur hæðum á kjallara, með valmaþaki að stærð 12x10,8m. Teikningarnar að húsinu gerði Þórður S. Aðalsteinsson.

Skólastígur 11 er tvílyft steinsteypuhús á kjallara, með lágu valmaþaki.PC070962 Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í flestum gluggum.

Sigurður Jóhann Jónsson og Þórunn Björnsdóttir, sem byggðu húsið bjuggu hér um áratugaskeið. Hann var Ísfirðingur en hún úr Svarfaðardal. Sigurður var lengst af kaupmaður, rak m.a. verslunina Vísi um langt árabil eða frá 1951 til 1973. Sigurður og Þórunn bjuggu hér bæði til æviloka, hann lést 1988 en hún 1993.  Bjuggu þau þannig hér hátt á fimmta áratug, en ýmsir hafa búið í húsinu eftir þeirra tíð. Húsið var frá upphafi tvíbýli, ein íbúð á hvorri hæð.  Húsið er að mestu óbreytt frá upprunalegri gerð en engu að síður í afbragðs góðri hirðu.  Skólastígur 11 hlýtur í Húsakönnun 2016 miðlungs (eða 5. stigs) varðveislugildi, sem hluti hinnar áhugaverðu húsaraðar 5-13 við Skólastíg. Lóðin er vel hirt og gróin og ber þar mikið á gróskumiklum birkitrjám. Á lóðarmörkum er steyptur veggur með járnavirki og er hann einnig í góðri hirðu. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin 7. desember 2019.

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur 1046, 8. mars 1946, nr. 1052, 3. maí 1947 Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


Hús dagsins: Skólastígur 9

Árið 1946 fékk Höskuldur Steinsson bakari lóð við Skólastíg, PC070963norðan við Jónas Kristjánsson, samlagsstjóra. Fékk hann einnig byggingarleyfi, en aldrei þessu vant bókar byggingarnefnd hvorki lýsingu húss eða mál, en tekur hins vegar fram, að leyfið sé háð því að gluggasetning á norðurhlið verði breytt í samráði við byggingarfulltrúa. Teikningarnar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson.

Skólastígur 9 er tvílyft steinsteypuhús á lágum kjallara, með lágu valmaþaki. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar eru í gluggum. Á austurhlið eru inngöngudyr og steyptar tröppur upp að þeim og á suðurhlið svalir til SV á báðum hæðum.

Höskuldur Steinsson og kona hans, Hulda Sigurborg Ólafsdóttir sem byggðu Skólastíg 9, var Vestfirðingar, hann fæddur á Þingeyri og hún á Ísafirði. Höskuldur nam bakaraiðn af föður sínum, Steini Ólafssyni á Þingeyri Hann starfaði við Brauðgerð KEA á þeim 15 árum sem hann var búsettur í hér í bæ eða til ársins 1952. Þá tók hann við rekstrinum á Þingeyrarbakaríi föður síns á Þingeyri en fluttist síðar til Reykjavíkur þar sem hann rak um tíma Hverfisbakarí við Hverfisgötu. Höskuldur lést árið 1968, aðeins 55 ára að aldri. Ýmsir hafa búið hér eftir tíð þeirra Höskulds og Huldu, en húsið var teiknað sem tvíbýli, með einni íbúð á hvorri hæð. Síðar var innréttuð þriðja íbúðin í kjallaranum.

Skólastígur 9 er reisulegt og glæst hús af algengri gerð steinsteyptra funkishúsa frá fimmta áratugnum. Það hlýtur í Húsakönnun 2016 miðlungs (eða 5. Stigs) varðveislugildi, sem hluti hinnar áhugaverðu húsaraðar 5-13 við Skólastíg. Húsið er í mjög góðri hirðu og lítur vel út og sama á við um lóð, sem er gróin og prýdd hinum ýmsa trjágróðri. Á norðausturhorni lóðarinnar stendur t.a.m.  gróskumikið furutré. Það er ekki hátt, líklega nokkuð ungt tré og á eflaust „mikið inni“ eins og sagt er, og verður eflaust enn meiri prýði með auknum vexti. Myndin er tekin 7. desember 2019.

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur 1058, 9. júní 1946 Fundur nr. 1061. 6. sept. 1946.  Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


Hús dagsins: Skólastígur 7

Skólastíg 7 reisti Jónas Kristjánsson mjólkursamlagsstjóri árið 1942.PC070959 Hann fékk leyfi til að reisa hús á tveimur hæðum með kjallara, 60 cm upp úr jörð, byggt úr steinsteypu með flötu þaki úr steini. Stærð hússins 8,8x9,6m auk útskots (stærð ekki tilgreind). Teikningarnar gerði Tryggvi Jónatansson. Þess má geta, að við úthlutun byggingarleyfis bókar byggingarnefnd einnig, að hún feli byggingarfulltrúa að sjá til þess, að lóð sé ekki hækkuð með uppgrefti, heldur sé hann keyrður burtu.

Skólastígur 7 er tvílyft steinsteypuhús á kjallara, með lágu valmaþaki og útbyggingu með svölum á suðurhlið. Einfaldir lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum eru í flestum gluggum hússins, bárujárn á þaki og veggir múrsléttaðir.

Jónas Kristjánsson mjólkursamlagsstjóri, sem byggði Skólastíg 7 var fæddur að Víðigerði í Hrafnagilshreppi. Hann nam mjólkuriðnfræði í Danmörku árin 1924-27 og tók þátt í stofnun Mjólkursamlags KEA árið 1928 og gegndi þar forstöðu allt til sjötugs (1965). Hann var auk þess mjög virkur í hinum ýmsu störfum sem lutu að landbúnaði, m.a. Ræktunarfélags Norðurlands og Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Þá var hann einn af forvígismönnum um stofnun Minjasafns Akureyri. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu árið 1958. Jónas var kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur. Bjuggu þau Jónas og Sigríður hér um árabil, hún lést 1958 en hann árið 1975. Húsið er teiknað sem einbýlishús og hefur líkast til verið það alla þeirra tíð. Vorið 1975 fluttist Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri að Skólastíg 7 og var hér til húsa í um átta ár, en um 1983 fluttist deildin inn á sjúkrahúsið sjálft. Áfram þjónaði húsið þó hlutverki sjúkrastofnunar, því þarna var starfrækt iðjuþjálfun  á vegum geðdeildarinnar fram yfir aldamót. Ríkið seldi húsið árið 2009 og er það síðan einbýlishús, líkt og í upphafi. Húsinu hefur alla tíð verið vel við haldið og lítur vel út, og er næsta óbreytt frá upprunalega gerð að ytra byrði.

Skólastígur 7 er reisulegt og glæst steinhús í mjög góðri hirðu. Skrautlegt svalahandrið, tveir kringlóttir gluggar á vesturhlið (sem snýr að Laugargötu) og margskipt rúða á norðurhlið setja skrautlegan svip á húsið. Steyptur veggur með járnavirki á lóðarmörkum er til mikillar prýði. Þá er lóðin mjög gróin, líkt og gengur og víða á Brekkunni og ber þar mikið stæðilegum birkitrjám. Ekki er ólíklegt, að einhver þeirra trjáa lóðina prýða hafi Jónas Kristjánsson samlagsstjóri gróðursett á sínum tíma. Í Húsakönnun 2016 hlýtur húsið miðlungs, eða 6. stigs varðveislugildi, vegna götumyndar og byggingagerðar. Myndin er tekin þann 7. desember 2019.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur 917, 3. júlí 1942. Fundur nr. 918 10. júlí 1942.  Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


Hús dagsins: Skólastígur 5

Árið 1944 fékk Gunnar Larsen lóð og byggingarleyfi við Skólastíg.PC070957 Fékk hann að reisa hús á tveimur hæðum á  kjallara, byggt úr steinsteypu með steingólfi og valmaþaki úr timbri. Stærð hússins 11,5x10m auk útskots, 7,1x3,6m, að austan. Teikningar að húsinu gerði Guðmundur Gunnarsson, og fullbyggt var húsið 1946 (skráð byggingarár). Gunnar Larsen, sem var framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyrar, lést um vorið sama ár.

Skólastígur 5 er tvílyft steinsteypuhús á kjallara og með lágu valmaþaki. Veggir eru múrsléttaðir og bárujárn á þaki  og lóðréttir póstar í flestum gluggum. Aðaldyr eru vesturhlið, sem snýr að Laugargötu, og svalir ofan við þær.

Húsið var upprunalega reist sem íbúðarhús, tvíbýli og hafa ýmsir búið þarna gegn um tíðina, en hefur hýst hina ýmsu starfsemi. Á sjötta áratugnum var starfrækt þarna verslun; mjólkurbúð, síðar raflagnavinnustofa, og þá var þarna rekin fatahreinsun, Hraðhreinsunin Framtíð  um 1968. Um tíma átti Rauði Krossinn húsið og starfrækti þarna sjúkrahótel um skamma hríð. Þá var húsið sambýli fyrir aldraða um árabil en nú er rekið þarna gistiheimili, Amma Guesthouse.

Í Húsakönnun 2016 hlýtur Skólastígur 5 miðlungs, eða fimmta stigs varðveislugildi sem stakt hús en húsaröðin 5-13 samfelld húsaröð áþekkra húsa. Er húsið þar sagt „Stæðilegt steinhús byggt undir áhrifum af funksjónalisma.“ (Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2016:75). Húsið mun næsta lítið breytt að ytra byrði en innra skipulagi hefur eðlilega oftsinnis verið breytt, eftir því hvaða starfsemi hefur þarna farið fram. Húsið er í afbragðs góðri hirðu, lóðin prýdd gróskumiklum trjám og lóðin römmuð inn með steyptum kanti. Sem áður segir, er Skólastígur 5 nú gistiheimili og eflaust svíkur það engan ferðalanginn, að gista þetta geðþekka steinhús. Myndin er tekin þann 7. desember 2019.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur 967, 10. mars 1944 Fundur nr. 992. 22. sept. 1944.  Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf


Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2020
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 556
  • Frá upphafi: 420873

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 464
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband