15.7.2019 | 14:47
Hús dagsins: Helgamagrastræti 19
Áfram heldur "yfirreiðin" um Helgamagrastrætið í númeraröð, næst er það hús nr. 19. En hvað með Helgamagrastræti 14, 16 og 18? Við því er einfalt svar: Þau hús eru ekki til. Svo vill nefnilega til, að á suðausturhorni götunnar og Hamarstígs stendur nr. 12 en næsta hús austan megin, norðan Hamarstígs 8 er Helgamagrastræti 20. Hvers vegna er mér ókunnugt um en það er svosem ekki óalgengt í eldri götum Akureyrar, að fáein númer vanti inn í.
Helgamagrastræti 19 reistu bræðurnir Björgvin og Gústav Júlíussynir árið 1944. Vorið 1942 fékk Björgvin lóð vestan Helgamagrastrætis, þriðju lóð frá Hamarstíg, þ.e. nr. 19, þá er Hamarstígur 10 meðtalin en þá var þar þegar risið hús. Tveimur árum síðar fékk Björgvin, í félagi við Gústav bróður sinn, byggingarleyfi fyrir tveggja hæða steinsteyptu húsi á lágum grunni með steinlofti að stærð 9,3x8,7m, auk útskots að sunnan 5,7x1,5m. Teikningarnar að húsinu, sem var frá upphafi tvíbýli með hvorri íbúð á sinni hæð, gerði Stefán Reykjalín.
Helgamagrastræti 19 er, líkt og segir í hinni 75 ára bókun byggingarnefndar, tveggja hæða steinsteypuhús á lágum grunni með útskoti til suðurs. Í kverkinni við útskotið eru svalir til suðvesturs með timburverki. Húsið er með flötu þaki, klætt þakpappa og veggir múrsléttaðir og einfaldir, lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í gluggum. Björgvin Júlíusson og kona hans Gréta Emilía Júlíusdóttir bjuggu hér allt til dánardægurs, Björgvin lést 1981 en Gréta 2005 og hafði hún þá búið hér í um 60 ár. Á móti þeim Björgvini og Grétu bjuggu hér, frá 1944 til 1971 þau Eggert Þorkelsson bifreiðarstjóri og Þórunn Ágústsdóttir. Síðan hafa ýmsir átt hér heima um lengri eða skemmri tíma. Húsið er næsta óbreytt frá fyrstu gerð, en er engu að síður í frábærri hirðu og lítur vel út.
Lóðin er einnig vel gróin og standa þar mörg tré, einkum reynitré en trjágróður er mjög einkennandi fyrir þetta hverfi. Ekki er ólíklegt, að Björgvin eða Gréta hafi gróðursett einhver þeirra stæðilegu trjáa sem á lóðinni eru, eða Eggert eða Þórunn. Á lóðarmörkum er steyptur veggur, sem mun upprunalegur með járnavirki og er hann í mjög góðu standi, eins og húsið sjálft. Húsið hlýtur varðveislugildi 1 í Húsakönnun 2015 sem hluti heildar, og þá væntanlega þeirrar heildar sem funkishúsaröðin við Helgamagrastrætið er. Myndin er tekin þann 3. maí 2019.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 956, þ. 24. apríl 1942. Fundur nr. 978, 30. maí 1944. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Breytt 16.7.2019 kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2019 | 17:56
Svipmyndir úr Eyjafirði
Eins og gestum þessa vefjar má vera kunnugt um, geri ég þó nokkuð af því að viðra mig og ekki er óalgengt að myndavélin sé með í för. Líkt og æði margir, eða allflestir, er ég að vísu ævinlega með myndavél meðferðis í snjallsíma en mér þykir einhvern veginn skemmtilegra að taka upp MYNDAVÉLINA og mynda- enda þótt símamyndavélar séu margar hverjar orðnar vel sambærilegar við miðlungs vandaðar myndavélar. Hér eru nokkur sýnishorn af því sem fyrir augu hefur borið um vor og fyrri hluta sumars 2019.
Botnsfoss í Botnsreit á sumardaginn fyrsta, 25. apríl. Botnsreitur er neðan við bæina Botn og Hranastaði, ríflega 14 km frá Miðbæ Akureyrar.
Fossar í Veigastaðaklettum í Vaðlaheiði sunnudaginn 28. apríl. Klettabelti á borð við þetta urðu til fyrir nokkrum milljónum ára, þegar hraun runnu á hraun ofan og mynduðu jarðlög. Gróður og jarðvegur varð að millilögum. Löngu, löngu síðar gróf skriðjökull ísaldar sig í gegn um jarðlögin og myndaði m.a. firði og dali og skildi eftir jökulruðninga og grettistök.
Svona líta Súlutindarnir út séðir frá Eyjafjarðarbraut vestri skammt sunnan Litla-Hóls, rúmlega 17km framan Akureyrar. Myndin tekin 12. maí.
Svona litu hins vegar Kjarnaskógur, Hamrar, Naustahverfi og Eyjafjörður út í blíðunni laugardaginn 25. maí, ljósmyndari staddur sunnarlega í Lönguklettum. Sólríkt síðdegi, eða Sunny Afternoon eins og Ray Davies og félagar í The Kinks sungu um fyrir ríflega hálfri öld.
Þverá efri, eða Munkaþverá fellur úr Þverárdal í Eyjafjarðará um hrikalegt gil. Hversu djúpt það er veit ég ekki, en ég myndi giska á að frá gilbrún og niður að ánni séu a.m.k. 25 metrar, jafnvel 30. Þarna er vinsælt að klifra og síga. Gilið er tæpa 20 km frá Akureyri.
Yfir Þverárgilið hrikalega liggur ein elsta brú sem enn er í notkun á landinu. Hún er að stofni til frá 1913, en þá var steinboginn steyptur. Árið 1958 var brúin hins vegar endurbyggð og hækkuð og gamla brúin notuð sem undirstaða. Hér má lesa um þá framkvæmd. Nokkuð ljóst má vera, að brúarsmiðir hafa ekki mátt vera mjög lofthræddir.
Skammt ofan brúarinnar má sjá fossinn Goðafoss. Myndirnar við Munkaþverá eru teknar á annan í hvítasunnu, 10. júní.
Að kvöldi 20. júní brá ég mér, einu sinni sem oftar, upp að Fálkafelli. Hér má sjá hesthúsahverfið Breiðholt í forgrunni, en á bak við Miðhúsahæð sést í ystu hverfi Brekkunnar og syðstu hverfi Glerárþorps.
Sjálfsáinn reyniviður gerir oft ekki miklar kröfur um vaxtarstað. Þessi hrísla hefur valið sér stað í mel í miðjum kletti norðan og ofan Hamra. Myndin er tekin þann 22. júní.
Bloggar | Breytt 16.7.2019 kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2019 | 13:37
Hús dagsins: Helgamagrastræti 17; Völuból. Endurbirtur pistill frá 2011
Áfram heldur yfirferð mín um Helgamagrastræti og nú er það fyrrum félagsheimili Valkyrjunnar, kvenskátafélags Akureyrar, Helgamagrastræti 17 eða Völuból. Það hús tók ég fyrir vorið 2011 og hér birtist sá pistill svo til orðréttur. Þess má geta, að í upphafi skrifaði ég að Brynja Hlíðar hafi arfleitt skátahreyfinguna að húsinu, sem er ekki rétt, heldur keypti Valkyrjan húsið af Guðbrandi bróður hennar, sem það erfði. En þetta hafði ég um Helgamagrastræti 17 að segja 2011:
Fyrsta "Hús dagsins" á sumrinu 2011 er þetta reisulega steinhús við Helgamagrastræti 17. Húsið er tvílyft steinsteypuhús en hluti þess ein hæð á kjallara en norðurhluti tvær hæðir á kjallara og er húsið að mörgu leyti dæmigert fúnkís-hús, þar sem kassalögun og einfaldleiki er áberandi. Fúnkísstíll er einmitt mjög áberandi við Helgamagrastrætið en gatan byggðist að mestu 1935-50 þegar sú húsagerð var mjög ríkjandi. Einhverjir kunna að taka eftir skátaliljunni á garðshliðinu en Helgamagrastræti 17 er mjög tengt sögu skátastarfs á Akureyri. Húsið var nefnilega svo áratugum skipti skátaheimili Valkyrjunar, sem var félag kvenskáta á Akureyri. En lengst af var skátastarf í bænum kynjaskipt (slíkt tíðkast víða í heiminum enn í dag) og störfuðu kvenskátar undir nafni Valkyrjunnar og karlskátar hjá Skátafélagi Akureyrar en þessi félög voru sameinuð undir nafni Klakks árið 1987. Brynja Hlíðar lyfjafræðingur sem var mikilvirkur skátaleiðtogi reisti húsið árið 1945. Byggði hún húsið sem íbúðarhús. En á þessum tíma var skátastarf í bænum mjög öflugt, bæði hjá SKFA og Valkyrjunni og þar fóru fremst í flokki áðurnefnd Brynja Hlíðar hjá Valkyrjunni og Tryggvi Þorsteinsson hjá Skátafélagi Akureyrar. Þau hefðu bæði orðið 100 ára í vetur, Brynja í nóvember sl. (f. 9.10.1910) en Tryggvi var fæddur 24.4.1911 og hefði því orðið 100 ára nk. sunnudag. Brynja Hlíðar fórst 29.maí 1947 í hinu hörmulega flugslysi við Héðinsfjörð. Guðbrandur, bróðir Brynju erfði húsið og upp úr 1950 keypti Valkyrjan húsið af honum og innréttuðu þarna félagsheimili. Kölluðu þær húsið Völuból og var heimili Valkyrjunar í fjóra áratugi eða svo. Einnig var búið í húsinu á meðan það gengdi hlutverki skátaheimilis. Nú eru í húsinu tvær íbúðir að ég held.
Við þetta má bæta, að húsið teiknaði Tryggvi Jónatansson og árið 1971 var byggt við húsið til norðurs, eftir teikningum Jóns Geirs Ágútssonar. Þess má líka geta, að það var árið 1953 sem Valkyrjan keypti húsið af Guðbrandi, m.a. með styrk úr Félagsheimilasjóði. Húsið hlaut nafnið Völuból en það nafn fylgdi félaginu, hafði m.a. áður verið á hermannabragga sem félagið hafði til afnota en í Degi í maí 1945 segir Brynja að sá kofi sé skammgóður vermir og bíði niðurrifs. Völuból var skátaheimili í hartnær fjóra áratugi, eða fram undir 1990, en skömmu áður var allt skátastarf á Akureyri sameinað undir nafni Klakks. Í Húsakönnun 2015 hlýtur húsið varðveislugildi 1 sem hluti merkrar heildar. Myndin er sú hin sama og birtist hér upphaflega, tekin 20. apríl 2011.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Ýmsar munnlegar heimildir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2019 | 14:40
Hús dagsins: Hamarstígur 10
Helgamagrastræti hefur verið til umfjöllunar hjá mér sl. vikur og verður áfram. Nú er ég kominn að horninu þar sem Hamarstígur þverar götuna og sjálfsagt að taka fyrir hornhúsið við síðarnefndu götuna.Hamarstígur 10 stendur norðvestanvert á þessu umrædda horni.
Vorið 1938 bókaði Byggingarnefnd eftirfarandi: Nefndinni hafa borist umsóknir um hornlóðina vestan Helga-magrastrætis og norðan Hamarstígs frá Halldóri Halldórssyni byggingafulltrúa, dags. 21. febrúar og Jóni G. Sólnes bankaritara, dags. 22. febrúar . Þar sem umsókn Halldórs Halldórssonar, byggingarfulltrúa er fyrr fram komin leggur nefndin til að honum verði leigð lóðin. (Bygg.nefnd Ak. 1938: 815). Fyrstu kemur fyrstur fær, en því má svosem bæta við, að Jón Sólnes fékk ári síðar lóð og byggingarleyfi á öðru horni við Hamarstíg; nánar til tekið á horninu við Holtagötu. Halldór fékk síðan leyfi til að byggja íbúðarhús á lóðinni, eina hæða með flötu þaki og kjallara undir hálfu húsinu. Húsið byggt úr steinsteypu, útveggir steyptir tvöfaldir og loft og þak úr járnbentri steinsteypu, stærð 9x8,2m. Halldór gerði sjálfur teikningarnar að húsinu, sem fullbyggt var 1939. Þess má geta, að tæpum áratug fyrr reisti Halldór Hamarstíg 4, í félagi við Steinþór Jóhannsson.
Hamarstígur 10 er einlyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með háu risi. Á framhlið eru tveir smáir kvistir. Á austurstafni eru inngöngudyr og steyptar tröppur en sólskáli á vesturstafni. Horngluggar í anda funkisstefnunnar til suðurs. Veggir eru múrhúðaðir og bárujárn á þaki.
Halldór Halldórsson byggingafulltrúi var einn ötulasti hönnuður bygginga á Akureyri á áratugunum milli 1920-1940 og skipta hús eftir hann hér í bæ tugum. Í Húsakönnun 2015 fyrir Ytri Brekkuna (Norðurbrekkuna), þar sem tekið er fyrir svæðið sem afmarkast af Þingvallastræti í norðri, Þórunnarstræti í vestri og Oddeyrargötu og Brekkugötu í austri er að finna 21 hús teiknað af Halldóri. Hann var fæddur 4. mars árið 1900 í Garðsvík á Svalbarðsströnd og lauk prófi í byggingarfræði í Hildisheim í Þýskalandi árið 1924. Hann var byggingafulltrúi og byggingameistari hér í bæ til ársins 1944 en fluttist þá suður og hóf störf hjá Skipulagi ríkis og bæja. Síðar varð hann forstjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins við stofnun hennar, 1957 og gegndi hann því starfi til dánardægurs. Hér má sjá minningargrein Magnúsar Inga Ingvarssonar um Halldór, sem lést 23. ágúst 1969. Halldór bjó hér ásamt fjölskyldu sinni til ársins 1944, en þá auglýsir hann húsið til sölu. Kona Halldórs var Sigurlaug Ólafsdóttir frá Krossum á Árskógsströnd. Margir hafa átt húsið og búið á eftir Halldóri og Sigurlaugu, og öllum auðnast að halda húsi og lóð vel við.
Upprunalega var húsið funkishús með flötu þaki, ekki ósvipað húsinu handan hornsins, Hamarstíg 8, og húsaröð Þóris Baldvinssonar við Helgamagrastræti sunnan við hornið, kennd við Samvinnubyggingafélagið. Árið 1982 var hins vegar byggð rishæð ofan á húsið ásamt sólskála, eftir teikningum Gísla Kristinssonar. Fimm árum síðar voru settir kvistir á risið, eftir teikningum Birgis Ágústssonar. Fékk húsið þá það lag sem það síðan hefur. Húsið mun alla tíð hafa verið einbýlishús. Hamarstígur 10 hlýtur varðveislugildi 1 í Húsakönnun 2015. Það er traustlegt og glæst og í mjög góðri og sama er að segja af lóðinni sem er mjög vel gróin miklum runnum og trjám, m.a. reyni- og grenitrjám. Myndin er tekin að vorlagi, nánar til tekið þann 3. maí 2019, og gróandinn að taka við sér svo sem sjá má.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 815, þ. 23. apríl 1938. Fundur nr. 818, 16. júní 1938. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2019 | 15:55
Hús dagsins: Helgamagrastræti 15
Helgamagrastræti 15, sem stendur á suðvestan megin á horni Hamarstígs og Helgamagrastrætis, reisti Oddur Kristjánsson byggingameistari árið 1946, eftir teikningum Guðmundar Gunnarssonar. Byggingarleyfi Odds hljóðaði upp á Hús úr steinsteypu með valmaþaki, tvær hæðir með kjallara undir hluta hússins. Stærð 9,3x12,5m. Þessi lýsing á raunar enn við, enda húsið svo til óbreytt frá upphafi að ytra byrði. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með valmaþaki, á lágum kjallara. Útskot er suðurs og þaðan gengið út svalir á annarri hæð en inngöngudyr og steyptar tröppur norðaustan megin. Gluggapóstar eru ýmist lóðréttir eða þverpóstar, veggir eru múrsléttaðir en bárujárn á þaki.
Oddur Kristjánsson, sem byggði Helgamagrastræti 15 var fæddur árið 1901 í Saurbæ í Eyjafirði. Hann nam byggingariðn hjá Eggert Melsteð á Akureyri en fluttist austur á Fljótsdalshérað þar sem hann bjó og starfaði við iðn sína á fjórða áratugnum. Hann byggði þar þó nokkur hús og líklega er það þekktasta Skriðuklaustur Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, sem byggt er 1939. Árið 1942 fluttist hann aftur til Akureyrar og byggði Helgamagrastræti 15 fjórum árum síðar. Oddur starfaði sem byggingameistari hjá Akureyrarbæ og kom að byggingu fjölmagra stórhýsa og opinberra bygginga í bænum, þ.á.m. sundlaugarhúsinu, sjúkrahúsinu, bæjarskrifstofum o.fl. Auk þess vann hann sem leiktjaldasmiður og leiksviðsstjóri hjá Leikfélagi Akureyri. Eiginkona Odds var Guðbjörg Guðmundsdóttir Kjerúlf,. Guðbjörg var frá Hafursá við Hallormstað á Hérðaði, en þess má geta, að þau kynntust þegar Oddur vann við byggingu íbúðarhúss þar. Oddur og Guðbjörg bjuggu hér til ársins 1971 að þau fluttust til Reykjavíkur.
Helgamagrastræti 15 er reisulegt hús og í góðri hirðu. Það mun teiknað sem tvíbýlishús, hvor íbúð á sinni hæð og er svo enn. Húsið hlýtur varðveislugildi 1 í Húsakönnun 2015 sem hluti af merkri heild. Á lóðinni ber mikið á gróskumiklum trjám, framan við húsið er mikið lerkitré og á baklóðinni er gróskumikið og stæðilegt grenitré. Síðuhafi kann ekki að tegundagreina það nákvæmlega en myndi giska á annað hvort sitka- eða rauðgreni. En tréð er a.m.k. 15 m hátt og til mikillar prýði. Myndin af húsinu er tekin 24. febrúar 2019, en myndin af trénu er tekin 1. apríl 2017.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1037, þ. 2. nóv. 1945. Fundur nr. 1056, 3. maí 1946. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Skriðuklaustur, hús Gunnars Gunnarssonar (1889-1975) rithöfundar. Oddur Kristjánsson mun hafa stýrt byggingu þessa merka og glæsta húss en húsið er byggt 1939. Sjö árum síðar byggði Oddur Helgamagrastræti 15. Myndin af Skriðuklaustri er tekin 28. júní 2007.
Bloggar | Breytt 7.7.2019 kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2019 | 10:24
Hús dagsins: Helgamagrastræti 13
Helgamagrastræti 13 reistu Jón Helgason skósmiður og Petrónella Pétursdóttir árið 1936, en Jón fékk haustið 1936 aðra lóð norðan við hús Jóhanns Kröyer [Helgamagrastræti 9]. Hann fékk að reisa sams konar hús og þau sem þegar voru risin og voru að rísa við Helgamagrastræti, tvær hæðir með flötu þaki og kjallaralaus, veggir og loft úr steinsteypu, 7,6x8,10m að grunnfleti, eftir teikningu Þóris Baldvinssonar.
Helgamagrastræti 13 er tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni og með lágu valmaþaki. Horngluggar í anda funkisstefnunnar eru til suðurs, sem og svalir á efri hæð á SA horni. Perluákast er á veggjum og bárujárn á þaki og þverpóstar í gluggum. Á norðurhlið er útskot, jafn hátt húsinu og valmaþak slúttir þak yfir svalirnar.
Jón Helgason sem byggði húsið, var lengst af verkstjóri á skógerðinni Iðunni á Gleráreyrum og vann þar í meira en 40 ár. Hann var frá Neðri Núpi í Miðfirði. Jón og Petrónella, sem var frá Sigtúnum í Öngulsstaðahreppi (nú Eyjafjarðarsveit) bjuggu hér í hálfa öld, eða allt þar til hún lést árið 1987. Síðan hafa ýmsir búið í Helgamagrastræti 13 og öllum auðnast að halda þessu glæsta og traustlega húsi vel við, sem og gróskumikilli lóð. Samkvæmt Húsakönnun 2015 var byggt við húsið árið 1939 til vesturs og árið 1950 var byggt við það til norðurs og árið 1957 var byggt ofan á húsið, eftir teikningum Mikaels Jóhannessonar. Fékk húsið þá það lag sem það hefur æ síðan.
Helgamagrastræti 13 er traustlegt hús og í góðri hirðu. Þá er einnig bílskúr á lóðarmörkum norðaustanmegin, líklega byggður á svipuðum tíma og húsið og mun hann sá eini í þessari húsaröð Samvinnubyggingafélagsins. Áfastur honum er lágur steyptur veggur með járnavirki sem einnig er vel við haldið. Lóðin er vel gróin og hefur verið svo allt frá tíð Jóns Helgasonar og Petrónellu. Ber þar mikið á stæðilegum birkitrjám, en það er sammerkt með flestum húsum við Helgamagrastrætið að þar eru ræktarlegir og vel hirtir garðar og margt gróskumikilla trjáa. Ein íbúð er í húsinu.
Helgamagrastræti 13, sem er annað hús sunnan og austan megin frá horni götunnar og Hamarstígs er yst í röð sams konar funkishúsa. Þessi hús, sem flestöll voru reist af starfsmönnum KEA voru byggð árin 1936-37. Þessi húsaröð var þá sú efsta í bænum; það sem lá ofan og vestan Þórunnarstrætis var úti í sveit. Alls urðu þessi hús níu að tölu, ef talið eru með Þingvallastræti 16 sem reist var eftir áþekkri teikningu en ekki þeirri sömu og Helgamagrastræti 1-13, 4 og 6. Öll húsin teiknaði Þórir Baldvinsson. Helgamagrastræti 2 er einnig mjög svipað, enda mun Skarphéðinn Ásgeirsson hafa stuðst við útlit og yfirbragð nærliggjandi húsa við hönnun og byggingu þess. Þessi funkishúsaröð Samvinnubyggingafélagsins er metin sem varðveisluverð heild í Húsakönnun 2015 og hljóta húsin varðveislugildi 2, sem hluti þeirrar merku heildar. Þar á meðal, að sjálfsögðu, Helgamagrastræti 13. Myndin er tekin þann 24. febrúar 2019, en hér má sjá mynd frá 1940 eða þar um bil, af funkishúsaröðinni við Helgamagrastræti ásamt Þingvallastræti 16.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 780, þ. 5. sept. 1936. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2019 | 09:47
Hús dagsins: Helgamagrastræti 12
Fjórum dögum fyrir Lýðveldisstofnun, eða 13. júní 1944, fengu þeir Jónatan Davíðsson og Hjalti Friðfinnsson lóð á horni austan Helgamagrastrætis og sunnan Hamarstígs. Réttum tíu mánuðum síðar, 13. apríl 1945 var Jónatan veitt byggingarleyfi á lóðinni og fékk hann að reisa steinsteypt hús með gólfum úr steinsteypu með flötu steinþaki. Húsið yrði tvær hæðir og kjallari, 10,2 x 8,5m að grunnfleti auk útskots að sunnan, 1,4m x 4,8m. Teikningarnar að húsinu, sem fullbyggt var 1946, gerði Páll Friðfinnsson.
Helgamagrastræti 12 er tvílyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með valmaþaki, forstofubyggingu og steyptum tröppum á norðurhlið og tvílyftri útbyggingu austanmegin á suðurhlið og eru svalir í kverkinni milli álmanna. Steining er á veggjum og bárujárn á þaki. Horngluggar funkisstefnunnar eru á báðum suðurhornum.
Elsta auglýsingin sem finna má á timarit.is um Helgamagrastræti 12 er haustinu 1953, en þar auglýsir Guðrún Stefánsdóttir tek að mér að húllsauma. En Jónatan Davíðsson, sem byggði húsið,bjó líkast til ekki mörg ár á Helgamagrastræti 12 en hann var lengi vel bóndi á Fífilgerði í Öngulstaðahreppi. Húsið hefur alla tíð verið tvíbýlishús, hvor íbúðin á sinni hæð og gera upprunalegar teikningar ráð fyrir því fyrirkomulagi. Í upphafi var húsið með flötu þaki, en árið 1981 var byggt á húsið valmaþak eftir teikningum Mikaels Jóhannssonar. Að öðru leyti er húsið að næsta lítið breytt frá upphaflegri gerð.
Helgamagrastræti 12 er reisulegt hús í mjög góðri hirðu. Sem hornhús tekur það þátt í götumyndum Helgamagrastrætis og Hamarstígs og er til mikillar prýði í umhverfi sínu. Lóðin er innrömmuð með steyptum vegg með járnavirki, og er sá veggur einnig í mjög góðri hirðu. Húsakönnun 2015 metur húsið með varðveislugildi 1 sem hluta samfelldrar raðar funkishúsa. Myndin er tekin þann 24. febrúar 2019.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 979, þ. 13. júní 1944. Fundur nr. 1010, 13. apríl 1945. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2019 | 15:25
"Hús dagsins" 10 ára
Það var fyrir 10 árum, þann 25. júní 2009 klukkan 10.28 sem ég birti hér mynd af Norðurgötu 17, Steinhúsinu eða Gömlu prentsmiðjunni ásamt nokkrum málsgreinum um sögu hússins undir yfirskriftinni "Hús dagsins". Myndin var lítil enda kunni ég ekki almennilega að setja myndir hér inn og textinn var stuttur, enda skrifaði ég einungis það sem ég mundi þá stundina. Myndin var tekin 2006, og var ein 80 húsamynda sem ég átti þá, en ég hafði myndað nokkur elstu hús bæjarins. Þá var ætlunin að setja a.m.k. þær myndir sem ég átti hér inn ásamt stuttu söguágripi og láta þá gott heita á fáeinum mánuðum eða sjá til hversu lengi ég nennti þessu...
Til þess að gera langa sögu stutta eru pistlarnir orðnir 573 þegar þetta er ritað, húsamyndasafnið telur um 1000 myndir og enn á ég eftir að fjalla um Helgamagrastrætið, Skipagötu í Miðbænum, nokkur hús við Strandgötu á Oddeyri og ég veit ekki hvað og hvað. Eins og lesendur hafa eflaust tekið eftir, hef ég agalega gaman af tölfræði hvers konar og í því samhengi má gróflega áætla, að ég hafi varið um 430 klukkustundum í pistlaskrif og ferðast um 500km um götur Akureyrar með myndavélina. (Geri ráð fyrir, að hver pistill taki mig um 45mínútur í vinnslu og ég fari að jafnaði sjö sinnum á ári í 7-8 km ljósmyndagöngu- og hjóltúra. Hef svssem ekki haldið nákvæma skrá). Og þá skal tekið fram, að ég myndi ekki eyða í þetta einni einustu mínútu, hefði ég ekki gaman af þessu sjálfur. Því til þess er nú leikurinn gerður. Þó skal að sjálfsögu ekki gert lítið úr, hversu mjög gefandi það er að fá viðbrögð og verða var við áhuga hjá lesendum. Það er ævinlega ánægjulegt að vita til þess að lesendur hafi af þessum pistlum gagn og ekki síst gaman. Er það ekki síst áhugi og viðbrögð ykkar, lesendur góðir, sem drífur mig áfram í þessari vegferð.
Það er svosem ekkert sérstakt sem liggur fyrir í tilefni dagsins í dag hér á síðunni (engin flugeldasýning eða veisla ), en í tilefni afmælisins ég hef á síðustu vikum unnið að því að gera eldri pistla aðgengilegri gegn um tengla, bæði eftir árum auk þess sem ég hef reynt að flokka tengla á greinar eftir götum (sjá hér til hliðar). Þá má nefna listann yfir 100 elstu (102) hús bæjarins. Sjálfsagt hefur vefurinn einhvern tíma verið skemmitilegri á að líta, því langir listar á borð við þá sem hafa verið fyrirferðarmiklir hér, eru kannski ekki svo skemmtilegir aflestrar.Og alltaf má breyta og bæta. Eitt "eilífðarverkefni" í sambandi við vefsíðuna, er að bæta merkingar á myndasafninu og mun ég halda því áfram. Það er, að ef mynd er opnuð og skoðuð sérstaklega, komi fram hvert húsið er. Þessu er mjög ábótavant hér og reyni ég jöfnum höndum að bæta úr því. En fyrst og fremst held ég áfram að birta hér húsapistla. En við skulum bregða okkur 10 ár aftur í tímann og sjá hvað ég hafði að segja um Norðurgötu 17, 25. júní 2009. (Eins og fram kemur þarna, hafði ég reyndar fengist við þetta á Facebook í nokkrar vikur, en ég miða upphaf "Húsa dagsins" engu að síður við þennan vettvang hér):
Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997.
Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.
Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).
Svo mörg voru þau orð. En fyrst það er afmæli er líklega upplagt, að bjóða upp á tónlist svona í lok pistils. Og að sjálfsögðu eru það lög um hús- en ekki hvað. Hér er lagið "This Ol´house" (Þetta gamla hús) í flutningi The Shadows. Ef Hús dagsins væri sjónvarpsþáttur, þætti mér þetta tilvalið upphafsstef:
https://www.youtube.com/watch?v=y-zdkL0_2sk
Led Zeppelin-liðar hljóðrituðu árið 1972 hið stórskemmtilega "Houses of the Holy". (Hús hinna heilögu). Þeir gáfu ári síðar út samnefnda plötu, en lagið var ekki að finna þar, heldur kom það út á næstu plötu Physical Graffiti. Þess má geta, að ég hlusta oftar en ekki á þetta lag í MP3-spilara þegar ég held í húsaljósmyndunarleiðangra. Þykir mér það einhvern veginn viðeigandi, svona í ljósi titilsins.
https://www.youtube.com/watch?v=fPv2bbCTAfw
Þetta er íslensk vefsíða um íslensk hús! gæti einhver sagt, sem er vissulega rétt. Því verður auðvitað að bjóða upp á eitthvað íslenskt. Og þar sem Akureyrsk hús eru megin umfjöllunarefni er þá ekki um að gera að bjóða upp á Akureyrska tónlist. Hér flytja þeir Villi og félagar í 200.000 naglbítum "Hæð í húsi":
https://www.youtube.com/watch?v=FtV8K86c9Fc
Kærar þakkir, lesendur góðir, fyrir innlit og viðbrögð hvers konar þennan áratug.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.6.2019 | 00:48
Hamarstígur
Hér eru hús við Hamarstíg á Ytri Brekku. Umfjöllunin nær til elsta hluta götunnar, neðan Þórunnastrætis
Hamarstígur 1 (1933)
Hamarstígur 2 (1930)
Hamarstígur 3 (1934)
Hamarstígur 4 (1935)
Hamarstígur 6 (1932)
Hamarstígur 8 (1935)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2019 | 00:40
Sniðgata
Hér er umfjöllun um húsin við Sniðgötu. Eru þau aðeins þrjú:
Sniðgata 1 (1937)
Sniðgata 2 (1935)
Sniðgata 3 (1942)
Meðalaldur húsa við Sniðgötu árið 2019 er 81 ár (meðaltal; 77+82+84=243, 243/3=81)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 8
- Sl. sólarhring: 34
- Sl. viku: 237
- Frá upphafi: 446749
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 160
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar