31.7.2021 | 19:42
Hús dagsins: Grímsstaðir í Glerárþorpi (Háhlíð 3)
Um daginn lauk hér umfjöllun um hús við Norðurgötu. Næst á dagskrá er nyrðri hluti Ránargötu, sem er næsta gatan austan við á Oddeyrinni. Reikna ég með að ágúst og september verði helgaðir henni. Þá mun væntanlega Ægisgatan verða næst og Eyrarveginn reikna ég með að taka fyrir síðustu vikur ársins og fyrstu vikur ársins 2022. (Það er kannski ágætt að geta boðið upp á einhvern fyrirsjáanleika hér á þessum vettvangi, nú þegar veiruófétið hefur enn og aftur gert allt sem kallast getur fyrirsjáanleiki, almennt í þjóðfélaginu, að engu ). En áður en við höldum í Ránargötu skjótumst við norður yfir Glerá, að einu gömlu býla Glerárþorps...
Melgerðisás nefnist aflangt klapparholt neðarlega í Glerárþorpi. Ásinn liggur fáeina hundruð metra frá gilkjafti til norðausturs neðra Glerárgils. Um Melgerðisásinn liggur gatan Háhlíð og við hana, númer þrjú, stendur húsið Grímsstaðir. Grímsstaði reistu reistu þau Arngrímur Jónsson og Sigríður Jónsdóttir árið 1929. Ekki gat sá sem þetta ritar fundið byggingarleyfi eða teikningar, enda var Melgerðisásinn langt utan lögsögu Bygginganefndar Akureyrar, þó ekki bókstaflega, því að mörkum Glerárþorps og Akureyrar, þ.e.a.s. Glerá voru aðeins 100 metrar. (Og eru að sjálfsögðu, en Glerárþorp hefur tilheyrt Akureyrar í hartnær sjötíu ár). Húsið mun í upphafi hafa verið nokkuð minna en það er nú, en austasti hlutinn virðist vera viðbygging. Á kortavef Akureyrar finnast engar teikningar af Grímsstöðum neinar teikningar, hvorki af upprunalegu húsi né viðbyggingu.
Grímsstaðir er einlyft steinhús með lágu risi og á lágum kjallara, um 7x10m að grunnfleti. Þverpóstar eru í gluggum, veggir múrsléttaðir og bárujárn á þaki.
Þau Sigríður og Arngrímur höfðu áður búið á öðru býli í Glerárþorpi, Sandgerði, áður en þau byggðu á Grímsstöðum. Hann var frá Holtakoti í Reykjahverfi en hún úr Öxnadalnum, nánar tiltekið frá Geirhildargörðum. Í ársbyrjun 1931, rétt rúmu ári eftir að húsið á Grímsstöðum var risið af grunni vildi sá voveiflegi atburður til, að Arngrímur Jónsson lést í vinnuslysi í verksmiðju Gefjunar á Gleráreyrum. Sigríður bjó hér með fimm börn þeirra áfram eftir lát hans. Hún starfaði einnig á Gefjun um langt árabil. Ekki fer mörgum skráðum sögum af miklum bústofni á Grímsstöðum en væntanlega hefur Sigríður haft fáeinar skepnur. Þéttbýlismyndun hófst í Glerárþorpi nokkurn veginn jafn skjótt og það rann inn í Akureyri, einna fyrst neðst og syðst. Það var hins vegar ekki fyrr en upp úr 1980 að gatan Háhlíð tók að byggjast. Hlutu Grímsstaðir númerið 3 við þá götu. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, einbýli en mögulega hafa að fleiri en ein fjölskylda hafi búið þarna samtímis á einhverju tímabili. Á síðari hluta 9. áratugarins var starfrækt þarna keramikvinnustofa.
Grímsstaðir eru einfalt og látlaust hús en engu að síður til prýði í umhverfinu. Húsið er í mjög góðri hirðu og frágangur húss og lóðar allur hinn snyrtilegasti. Líkt og gengur og gerist með gömlu býli Glerárþorps fylgir húsinu stór lóð og er hún mjög gróskumikil og í mjög góðri hirðu. Síðuhafi veit ekki til þess, að húsakönnun hafi verið unnin fyrir þetta svæði og er því ekki kunnugt um hugsanlegt varðveislugildi hússins. Hins vegar telur síðuhafi, að Grímsstaðir og öll gömlu býli Glerárþorps eigi að hljóta óskorað varðveislugildi, ef ekki friðun. Myndin er tekin fyrir tæpum áratug, 1. maí 2012, og hefur áður birst hér, þegar síðuhafi tók nokkur Glerárþorpsbýli fyrir á hundavaði.
Bloggar | Breytt 2.8.2021 kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2021 | 13:42
Norðurgata- eins og hún leggur sig
Sl. vikur hef ég tekið fyrir ytri og yngri hluta Norðurgötu, þ.e. þann hluta sem liggur norðan við Eyrarveg. Syðri hlutann tók ég fyrir að mestu árin 2009-14, m.a. var fyrsta greinin á þessum vef um Norðurgötu 17. Elstu pistlarnir eru reyndar ekki svipur hjá sjón í samanburði við þá nýjustu, sumir ekki nema fáeinar málsgreinar, en látum það gott heita. Norðurgata er að mínu áliti, ein af skemmtilegri götum bæjarins. Hún er byggð á mjög löngum tíma, í áföngum og við hana má finna mikla fjölbreytni í húsagerð síðari hluta 19. aldar og fram á miðja 20.
En hér eru umfjallanir um húsin við Norðurgötu:
Norðurgata 1 (1900)
Norðurgata 2 (1897)
Norðurgata 2b (1911)
Norðurgata 3 (brann haustið 2019, var byggt 1899).
Norðurgata 4 (1897)
Norðurgata 6 (1898)
Norðurgata 8 (1933)
Norðurgata 10 (1926)
Norðurgata 11 (1880)
Norðurgata 12 (1926)
Norðurgata 13 (1886)
Norðurgata 15 (1902)
Norðurgata 16 (1926)
Norðurgata 17 (1880)
Norðurgata 19 (1920)
Norðurgata 26 (1926)
Norðurgata 28 (1924)
Norðurgata 30 (1923)
Norðurgata 31 (1926)
Norðurgata 32 (1930)
Norðurgata 33 (1927)
Norðurgata 34 (1930)
Norðurgata 35 (1939)
Norðurgata 36 (1930)
Norðurgata 37 (1933)
Norðurgata 38 (1929)
Norðurgata 39 (1947)
Norðurgata 40 (1946)
Norðurgata 41 (1947)
Norðurgata 42 (1947)
Norðurgata 43 (1947)
Norðurgata 44 (1947)
Norðurgata 45 (1955)
Norðurgata 46 (1949)
Norðurgata 47 (1948)
Norðurgata 48 (1947)
Norðurgata 49 (1957)
Norðurgata 50 (1947)
Norðurgata 51 (1947)
Norðurgata 52 (1949)
Norðurgata 53 (1947)
Norðurgata 54 (1947)
Norðurgata 56 (1948)
Norðurgata 58 (1949)
Norðurgata 60 (1947)
Meðaltal byggingarára Norðurgötuhúsa er 1929,9 og meðalaldurinn árið 2021 þannig rúmlega 91 ár. Nokkur af elstu húsum Oddeyrar eru við Norðurgötu.
ES. Nokkur fyrrverandi Norðurgötuhús.
Nyrst af Völlunum á Oddeyri, eiginlega við Gleráreyrar, eru Furuvellir. Við Furuvelli standa iðnaðar- og þjónustuhús, m.a. Kaffibrennsla Akureyrar og Viking Brugghús að ógleymdri verslun Hagkaupa. Síðarnefndu tvö fyrirtækin eru austast við götuna en þau voru reist snemma á sjöunda áratugnum og stóðu þá yst við Norðurgötu. Í huga margra standa þessi hús alltaf við Norðurgötu og því e.t.v. rétt að geta þeirra hér:
Furuvellir 15,ÍSPAN; áður Norðurgata 55.
Fram til 1990 lá Norðurgatan frá Hjalteyrargötu að Strandgötu en við stækkun verslunar Hagkaupa var götunni lokað í norðurendann og ystu hús Norðurgötu töldust til Furuvalla. Norðurgata 55, nú Furuvellir 15 var byggð 1963 og hýsti m.a. stálhúsgagnagerð. Síðustu áratugi hefur glersmiðjan Íspan haft aðsetur í Furuvöllum 15.
Furuvellir 18, VIKING; áður Norðurgata 57
Hin valinkunna bruggverksmiðja, VIKING brugghús, áður Vífilfell og þar áður Sana er staðsett á horni Furuvalla og Hjalteyrargötu. Elsti hluti verksmiðjunnar var reistur árið 1963 og taldist Norðurgata 57.
Furuvellir 17, Hagkaup; áður Norðurgata 62
Húsið var upprunalega reist sem bifreiðaverkstæðið Baugur árið 1962. Baug ráku m.a. Finnur Daníelsson og Hörður Adólfsson, móðurafi þess sem þetta ritar, og stóðu þeir fyrir byggingu hússins. Upprunalega Baugshúsið mun nú austasti og miðhluti Hagkaupshússins. Um áramótin 1979-80 seldu þeir Hagkaupum húsið, sem stækkaði það umtalsvert og opnaði þar verslun. Húsið var stækkað aftur til vesturs árið 1990 og í kjölfarið var Norðurgata lokuð fyrir bílaumferð í norðurendann og telst nú ysti hluti hennar göngustígur að Furuvöllum. Aftur var Hagkaup stækkað um 1995, þegar apótek var opnað þar og nú síðast var byggt við húsið 2020-21.
Stundum er það svo, að "gatan flyst frá húsunum" eins og í tilfellum ofangreindra húsa en þó er einnig til, að húsin flytjist frá götunum: Steinsnar vestan við sunnanverða Norðurgötu standa tvö hús, Fróðasund 10a og Fróðasund 11. Síðarnefnda húsið var reist við Norðurgötu 9 árið 1890 en Fróðasund 10a var líklega fyrsta húsið sem byggt var við Norðurgötu en það var byggt 1877. Húsin voru flutt að Fróðasundi um 1945.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2021 | 15:14
Hús dagsins: Norðurgata 60
Að frátöldum húsum ÍSPAN, Viking Brugg (áður SANA) og Hagkaupa, sem lengst af töldust til Norðurgötu 55, 57 og 62 en teljast hin síðari ár við Furuvelli, eru Norðurgata 60 og 53 ystu húsin við Norðurgötu. Í þessari umfjöllun verður miðað við núverandi norðurmörk götunnar. Hvers vegna þessi munur er á oddatölunum og sléttu tölunum (60-53) er höfundi ekki kunnugt um; lóðir nr. 39 og 41 eru auðvitað jafn langar og lóðirnar frá 42-50 en hins vegar er ekkert hús á bilinu 21-29, þar sem Eiðsvöllurinn liggur að götunni. Það er raunar ekki óalgengt með eldri og lengri götur Akureyrar að fáeinar meinlausar gloppur finnist í númerakerfunum.
Það var haustið 1946 að Þorsteinn Þorsteinsson fékk lóðina og að reisa hús austan Norðurgötu, norðan fyrirhugaðrar þvergötu sem síðar hlaut nafnið Grenivellir. Byggingarleyfi fékk hann einnig fyrir tveggja hæða húsi, 12,4x9,5m, tvær hæðir á lágum grunni, byggt úr steinsteypu og með valmaþaki. Húsið reisti hann eftir eigin teikningum.
Húsið er tveggja hæða steinhús með lágu valmaþaki. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar í flestum gluggum. Á austurhlið er útbygging sem skagar eilítið til norðurs út frá meginálmu hússins. Á suðausturhorni er inndregið skot á efri hæð og eru þar svalir en á vestanmegin á suðurhlið eru lóðrétt steypt bönd milli glugga, og upp að þakbrún ofan glugga efri hæðar. Setur þessi einfalda skreyting skemmtilegan svip á húsið.
Þorsteinn Þorsteinn skipasmiður, sem byggði húsið, var fæddur að Hálsi í Svarfaðardal. Hann starfaði hjá Skipasmíðastöð KEA og tók þátt í stofnun Slippstöðvarinnar árið 1952, ásamt Skapta Áskelssyni. Þeir voru einnig nágrannar, en Skapti byggði og bjó í Norðurgötu 53, beint handan Norðurgötu 60. Þorsteinn var kvæntur Þóru Steindórsdóttur og bjuggu þau hér um áratugaskeið, Þorsteinn til æviloka (1980) og Þóra um árabil þar á eftir. Húsið hefur alla tíð verið tvíbýli og á móti þeim Þóru og Þorsteini bjuggu þau Anna Sigurðardóttir frá Syðra- Hóli í Öngulsstaðahreppi og Sveinn Brynjólfsson vélstjóri, frá Nesi í Saurbæjarhreppi . Hafa síðan ýmsir átt hér heima. Árið 1959 var byggt við húsið að norðvestan, eftir teikningum , tvílyft mjó álma með valmaþaki, í samræmi við upphaflegt útlit hússins á vesturhlið hússins og fékk húsið þá það lag sem það síðan hefur. Er húsið nokkurn veginn óbreytt að gerð síðan þá. Árið 1989 keyptu Hagkaup 10m breiða spildu nyrst af lóðinni vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar. Á sama tíma var Norðurgötu lokað í norðurendann og síðan liggur göngustígur milli Norðurgötu og Furuvalla. (Kannski telst sá stígur ysti hluti Norðurgötu).
Norðurgata 60 er glæst og reisulegt hús og til mikillar prýði. Það er í afbragðs góðri hirðu og allt hið snyrtilegasta og það sama má segja um lóðina. Á mörkum hennar er girðing með steyptum stöplum og skrautlegu járnavirki sem einnig er mjög vel við haldið. Steypt bönd á suðausturhorni hússins setja á það afar skemmtilegan svip; gefa húsinu ákveðin sérkenni. Þar sem höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um Norðurgötu norðan Eyrarvegar liggur ekki fyrir hér hvort húsið hafi varðveislugildi. Það er hluti mikillar þyrpingar sambærilegra steinhúsa frá miðri 20. öld, sem nyrsti hluti Norðurgötu er hluti af.
Þá er það álit höfundar, að Norðurgatan í heild sinni sé virkilega varðveisluverð. Því hún er að mörgu leyti eins og þverskurður af íslenskri íbúðarhúsagerð frá ofanverðri 19. öld og fram á hina miðja 20. Þar má finna algengar gerðir timburhúsa 19. aldar, steinsteypuhús af þeirri gerð sem tíðkaðist fyrst hérlendis, verkamannabústaði Guðjóns Samúelssonar og hús í funkisstíl frá áratugunum 1930-50. Svo ekki sé minnst á, að við götuna stendur eina grjóthlaðna hús Akureyrar- svo vitað sé. Vitaskuld eru fjölbreyttar húsagerðir og frá ýmsum tímum við margar aðrar götur á Akureyri og annars staðar en Norðurgatan er svo skemmtilega uppbyggð, að gatan er nokkurn veginn byggð í tímaröð og er fyrir vikið eins og skipulagt safn um íslenska húsagerð. Þá er rétt að halda til haga, að í Húsakönnun sem unnin var um hluta Oddeyrar fyrir þremur áratugum er syðsti og elsti hluti götunnar metinn sem varðveisluverð heild. Myndin af Norðurgötu 60 er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1064, 20. sept. 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. (Ritið er einnig aðgengilegt á netinu, sjá tengil á pdf-skjal að ofan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2021 | 19:32
Einfalt reikningsdæmi
Svo virðist, sem ríkjandi hafi verið viss misskilningur eða óskhyggja þess efnis, að bóluefnin:
a) virki eins og teflon á kórónuveiruna þ.e. bólusettir einhvern veginn hrindi henni frá sér
b) ákveðið bólusetningarhlutfall myndi útrými veirunni alveg.
(Seinni punkturinn getur mögulega átt við- þ.e. ef hlutfallið á við alla 8.000.000.000 jarðarbúa. En það virðist því miður langt í land með það).
Nú liggur fyrir að vernd gegn smiti er 60 % og gegn alvarlegum einkennum sé 90 %. Einhvern tíma skildist mér að þetta þýði eftirfarandi: Af 10 manns, bólusettum, sem annars hefðu allir smitast, myndu 6 sleppa (60% af 10); 4 smitast og þar af 1 veikjast alvarlega (10% af 10) alvarlega. Hvað þýðir þetta í stærra samhengi? Hér koma nokkrar hugleiðingar, með einföldum reikningsdæmum. Ekki skildi taka þessum reikningum sem neinum algildum vísindum.
Ef við uppreiknum þetta í t.d. 10.000 manns eru það 4000 manns sem geta smitast og 1000 sem geta veikst alvarlega.
Ég hef ævinlega skilið þetta þannig, að þessi 90% vörn miðist við heildina. En ef gefum okkur hins vegar það, að bóluefnin veiti téðum 4000 bólusettum sem smitast 90 % vörn þýðir það, að 10% , þ.e. 0,1x4000 = 400 gætu veikst alvarlega.
Nú munu 250.000 manns hérlendis bólusettir. Það þýðir, samkvæmd fyrri forsendu, vitaskuld að 0,6x250.000 = 150.000 manns eru varðir fyrir smiti og 0,9x250.000 = 225.000 varðir fyrir alvarlegum veikindum. Sem er auðvitað frábært og ljóst, að bólusetningin skilar miklum árangri.
Engu að síður þýðir það, að fræðilega gætu 100.000 manns smitast og 25.000 veikst alvarlega. Það er heill (afsakið orðbragðið ) helvítis hellingur.
Ef við hins vegar reiknum með því, að bóluefnin verndi þá 100.000 sem gætu smitast í 90% tilfella, fækkar mögulegum alvarlega veikindatilfellum niður í 0,1x100.000= 10.000. En 10.000 alvarlega veikir Covid-sjúklingar er auðvitað ekkert smáræði fyrir heilbrigðiskerfið.
Svo ekki sé minnst á hina 120.000 sem eru óbólusettir.
Það skal tekið fram, að þarna er um að ræða verstu mögulegu útkomu, miðað við einfaldaðar forsendur.
Engu að síður er staðan er þó vissulega víðsjárverð.
![]() |
Búast má við að fólk veikist alvarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.7.2021 | 15:01
Hús dagsins: Norðurgata 58
Í fundargerðum Bygginganefndar Akureyrar eru ekki höfð mörg um Norðurgötu 58. Aðeins er minnst á, að Stefán Magnússon og Hermann Stefánsson fái lóðirnar þ. 12. mars 1948 og hálfum öðrum mánuði síðar, 24. apríl fá þeir byggingarleyfi. Húsinu er ekki lýst sérstaklega. Upplýsingar um teikningar eða hönnuð liggja ekki fyrir á kortavef, en þar má hins vegar finna raflagnateikningar Gústavs Jónssonar af Norðurgötu 58, frá 1949.
Norðurgata 58 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Útskot er norðanmegin að framan (vestan) og svalir til suðurs áfastar því. Bárujárn er á þaki, veggir múrsléttaðir og einfaldir,lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum.
Þegar heimilisfanginu Norðurgötu 58 er flett upp á timarit.is birtast 33 niðurstöður. Sú elsta er frá júní 1951, þegar tilkynnt er um brúðkaup þeirra Hermanns Stefánssonar og Kristínar Friðbjarnardóttur. Hermann (d.2010), sem starfaði lengst af sem bifreiðarstjóri, var fæddur á Ásgarði á Svalbarðsströnd en þar stundaði faðir hans búskap. Stefán Magnússon var hins vegar fæddur hinu megin við Eyjafjörðinn, eða í Ytri Skjaldarvík árið 1901. Hann stundaði sem áður segir búskap í Ásgarði en vann ýmis störf, titlaður verkamaður, eftir að brá búi. Þeir feðgar bjuggu í húsinu með fjölskyldum sínum um árabil. Hafa síðan margir búið hér og átt íbúðir, en húsið mun alla tíð hafa verið tvíbýli með einni íbúð á hvorri hæð. Árið 1973 var reistur bílskúr á lóðinni, eftir teikningum Tómasar Búa Böðvarssonar.
Húsið er í mjög góðri hirðu og líkast til lítið breytt frá upphaflegri gerð. Lóð er einnig vel hirt og frágangur allur hinn snyrtilegasti. Húsið tekur, sem hornhús, þátt í götumynd Grenivalla og Norðurgötu. Líkt og húsin við Norðurgötu norðan Eyrarvegar er húsið hluti mikillar þyrpingar tveggja hæða steinhúsa frá miðri síðustu öld. Húsin eru langflest svipuð, nokkurn vegin ferningslaga að grunnfleti með útskotum og svölum og ýmist með háum eða lágum valmaþökum. Oftar en ekki prýða lóðirnar gróskumikil tré. Þessi torfa samanstendur af nokkrum götum og er mjög gott dæmi um vel heppnað skipulag með samræmdu yfirbragði byggðar.
Höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um Norðurgötu norðan Eyrarvegar, eða þennan hluta Oddeyrar yfirleitt, svo ekki liggur ekki fyrir hér hvort húsið hafi varðveislugildi. Það er hins vegar eindregið álit þess sem þetta ritar, að öll Norðurgatan skuli njóta óskoraðs varðveislugildis. Þ.á.m. hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. öld, norðan Eyrarvegar. Sú röð er raunar, sem áður segir einnig hluti og eiginlega miðja fyrrgreindrar steinhúsaþyrpingar, sem mætti segja að afmarkist af norðurhluta Ránargötu í austri, hluta Grenivalla í norðri, Reynivalla í vestri og eystri hluta Eyrarvegar í suðri. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1090, 12. mars 1948. Fundur nr. 1092, 24. apríl 1948. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2021 | 13:06
Hús dagsins: Norðurgata 56
Norðurgötu 56 reisti Þorsteinn Símonarson árin 1946-47. Hann fékk lóðina í júní 1946 og byggingarleyfi í september sama ár. Byggingarleyfið var fyrir húsi, á tveimur hæðum á lágum grunni og með valmaþaki. Húsið úr steinsteypu, þ.e.a.s útveggir og gólf yfir kjallara. Efri hæð innréttuð úr timbri, stærð 10,45x8,2m. Teikningarnar að húsinu gerði Stefán Reykjalín.
Húsið er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Veggir eru múrsléttaðir, bárujárn á þaki og lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum.
Þorsteinn Marinó Símonarson var frá Grímsey en fæddur á Dalvík. Hann stundaði lengi vel útgerð á smáum bátum og sinnti ýmsu störfum eftir að hann kom í land. Á efri árum lagði hann stund á bókband. Hann bjó hér til æviloka, 1988 eða í rúm 40 ár. Ekkja Þorsteins, Bára Kjartansdóttir frá Miðhvammi í Aðaldal bjó hér um tíma eftir lát hans. Hún hafði flust til hans sem ráðskona árið 1969 og tveimur árum síðar gengu þau í hjónaband. Annars hafa margir búið í húsinu um lengri eða skemmri tíma. Líkt og nánast öll tveggja hæða steinhúsin við utanverða Norðurgötu var Norðurgata 56 tvíbýli frá upphafi, íbúð á efri og neðri hæð og svo er enn.
Húsið er í senn látlaust og reisulegt og til mikillar prýði í umhverfinu. Það er líkast til lítið sem ekkert breytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði en er engu að síður í mjög góðri hirðu. Það er nefnilega alls ekki samasemmerki þar á milli, að hús séu óbreytt frá upphafi og að þeim hafi ekki verið haldið við. Fjarri því. Þar sem höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um Norðurgötu norðan Eyrarvegar liggur ekki fyrir hér hvort húsið hafi varðveislugildi. Það er hins vegar eindregið álit þess sem þetta ritar, að öll Norðurgatan skuli njóta óskoraðs varðveislugildis. Þ.á.m. hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. öld, norðan Eyrarvegar. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1058, 9. júní 1946. Fundur nr. 1064, 20. sept. 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2021 | 10:15
Hús dagsins: Norðurgata 54
Norðurgötu 54 mun Svavar Björnsson vélstjóri hafa reist árið 1946 eftir teikningum Páls Friðfinnssonar. Ekki gat höfundur fundið neitt um húsið í bókunum Bygginganefndar en það getur einfaldlega skýrst af því, að hann hafi ekki leitað nógu vel. Ein helsta forsenda þeirra leitar byggist á því, að nöfn húsbyggjenda komi fram á einhverjum þeirra teikninga, sem finna má á kortavef bæjarins. Það er hins vegar ekki tilfellið hér. (Það þýðir nefnilega ekkert, að ætla að fletta upp húsum eftir götum og númerum í bókunum bygginganefndar frá miðri, eða fyrri hluta 20. aldar).
Norðurgata 54 er tvílyft steinsteypuhús með valmaþaki. Bárujárn er á þaki. Á veggjum er steiningarmúr og lóðréttir póstar Suðurhluti framhliðar skagar eilítið til vesturs (fram) og á suðausturhorni eru yfirbyggðar svalir eða sólskáli.
Elsta heimildin af þeim 71 sem birtast, þegar Norðurgötu 54 er flett upp á timarit.is, er úr Verkamanninum, frá vorinu 1950. Þá var Svavar Björnsson í hópi bátaeigenda, sem skoruðu á bæjarstjórn að sækja um undanþágu fyrir Eyjafjörð, frá banni við dragnótaveiðum. Svavar, sem fæddur var á Grenivík, starfaði sem vélstjóri og síðar í Slippnum. Hann bjó hér um áratugaskeið ásamt fjölskyldu sinni, en hann var kvæntur Emelíu Kristjánsdóttur. Margir hafa búið hér um lengri eða skemmri tíma, en húsið mun alla tíð hafa verið tvíbýli með einni íbúð á hvorri hæð. Það er að lítt breytt frá upphaflegri gerð og er í mjög góðri hirðu. Sólskáli á efri hæð var byggður árin 2003-04 eftir teikningum Svans Eiríkssonar (sjá tengil á teikningar efst í textanum).
Húsið er traustlegt og reisulegt og með vissum sérkennum, sem gefa því skemmtilegt yfirbragð. Þar ber helst að nefna steypt lóðrétt bönd yfir og á milli inngöngudyra á framhlið og smáan, kringlóttan gluggi með mjóum þverpóstum norðarlega á framhlið. Á lóðarmörkum er steyptur veggur með járnavirki, sem einnig er í góðri hirðu og myndar skemmtilega heild með húsinu. Hvort húsið njóti varðveislugildis er höfundi ókunnugt um, en ítrekar það álit sitt að hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl við Norðurgötu eigi skilið hátt varðveislugildi. (Og öll gatan eins og leggur sig ef út í það er farið...) Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Sjá tengla í texta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2021 | 10:19
Hús dagsins: Norðurgata 53
Skapti Áskelsson, löngum kenndur við Slippinn, reisti Norðurgötu 53 árið 1947 ásamt bróður sínum, Þóri. Lóðina fékk hann í apríl 1946. Skapti hafði áður fengið Norðurgötu 51, en skipti á henni við Ármann Magnússon. Á sama fundi Bygginganefndar og lóðaskipti Ármanns og Skapta voru afgreidd fékk Skapti einnig leyfi til húsbyggingar á lóðinni. Fékk hann að reisa hús úr steinsteypu en tekið fram að loft yfir efri hæð, þak og nokkur hluti af skilrúmum efri hæðar verði úr timbri. Húsið yrði 13x11m og bílskúr 5x6,87m. Teikningarnar gerði Halldór Jónsson.
Norðurgata 53 er tvílyft steinhús með lágu valmaþaki. Á austurhlið er útskot og þar eru svalir til suðurs. Veggir eru steinaðir og bárujárn á þaki og lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum. Áfastur bílskúr er á norðurhlið og eru á honum einskonar svalir, en svalir til suðurs eru áfastir útskotinu að austan.
Þeir bræður Skapti (1908-1993)og Þórir (1911-2000) Áskelssynir voru uppaldir á Skuggabjörgum í Dalsmynni og sá síðarnefndi fæddur þar. Skapti var fæddur að Austari-Krókum í Fnjóskadal. Bjuggu þeir hér allt til dánardægra ásamt fjölskyldum sínu, Skapti og Guðfinna Hallgrímsdóttir á efri hæð en Þórir og Dóra Ólafsdóttir á neðri hæð. Skapti Áskelsson, Skapti í Slippnum er nafn sem flestir Akureyringar og nærsveitarmenn kannast við. Hann var um árabil forstjóri Slippstöðvarinnar og var einn af helstu máttarstólpum í atvinnulífi bæjarins á síðari hluta 20. aldar. Gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Slippstöðvarinnar í tæpa tvo áratugi og undir hans forystu fór fram mikil uppbygging og afrek unnin í skipasmíðum. Eftir að hann hætti hjá Slippnum stofnaði hann byggingarvöruverslun, Skapta hf. sem hann starfrækti í Furuvöllum, skammt frá heimili sínu. Var sú verslun við lýði fram undir 1995. Árið 1985 kom út ævisaga Skapta, rituð af Braga Sigurjónssyni, og heitir hún einfaldlega Skapti í Slippnum.
Þórir Áskelsson stundaði sjómennsku en vann síðar við skipasmíðar, hjá Skipasmíðastöð KEA og Slippstöðinni. Hann stundaði einnig seglasaumar, hafði sveinspróf í þeirri iðn og var með verkstæði hér í Norðurgötu. Dóra Ólafsdóttir, ekkja Þóris Áskelssonar er frá Sigtúnum á Kljáströnd í Grýtubakkahreppi starfaði lengst af sem talsímakona hjá Símanum. Bjó hún hér allt til ársins 2012 er hún fluttist á hjúkrunarheimili á Höfuðborgarsvæðinu. Dóra er elsti núlifandi Íslendingurinn, varð 109 ára þ. 6. júlí sl.
Norðurgata 53 er reisulegt og traustlegt hús og tekur sem hornhús, þátt í götumyndum tveggja gatna, Norðurgötu og Grenivalla. Það er líkast til næsta lítið breytt frá upphaflegri gerð, að ytra byrði, en er engu að síður í mjög góðri hirðu og til mikillar prýði og lóð einkar gróskumikil, smekkleg og snyrtileg. Líkt og fram hefur komið í síðustu færslum er höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um þetta svæði svo ekkert verður fullyrt hér um varðveislugildi hússins eða húsaraðarinnar. Það er hins vegar eindregið álit þess sem þetta ritar, að öll Norðurgatan skuli njóta óskoraðs varðveislugildis. Þ.á.m. hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. öld, norðan Eyrarvegar. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1051, 26. apríl 1946. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2021 | 17:33
Á gosslóðum
Fyrir liðlega mánuði, nánar tiltekið þann 31. maí sl. heimsótti ég gosstöðvarnar á Fagradalsfjalli. Fór ég eins nærri og frekast var unnt, en þann dag var orðið ófært á svokallaðan "Gónhól"- og nú mun sá staður sem ég heimsótti orðinn óaðgengilegur. Þetta er svo sannarlega spennandi að sjá og tíminn einn mun leiða í ljós hvað verður.
Hér er horft ofan í Nátthaga. Því miður þekki ég lítt til örnefna eða átta á þessu svæði svo lítið verður um slíkar upplýsingar- en myndirnar tala þeim mun meira sínu máli.
Áður en komið var upp á "útsýnishólinn" blasti hraunjaðarinn í Geldingadölum við. Ekki þótti mér ráðlegt að fara þar mjög nærri, þar sem undir jaðrinum er glóandi hraun. Því notfærði ég mér aðdráttarlinsu til þess að ná myndinni að neðan. Hraunveggurinn getur skriðið fram og fleiri tonn af 1200°C glundri ruðst yfir allt sem fyrir verður. En margir virtust þó kæra sig kollótta um það...
Og svo, þegar komið var upp á áðurnefndan "útsýnishól", sem skv. örnefnakorti virðist vera einn Merardalshnjúka, blasti þetta við:
Myndavélin var umsvifalaust dregin upp og hafðar hraðar hendur- því gígurinn gæti allt eins lagst í dvala eftir þessa "gusu". En annað átti eftir að koma á daginn. Um var að ræða "púlsa" sem endurtóku sig á u.þ.b. 5-10 mínútna fresti:
Fyrst fór að flæða út úr kantinum...
Svo jókst flæðið og það byrjaði að vella í gígnum...
Og svo kom ágætis strókur. Hljóðið var einna líkast þotu í flugtaki.
Óviðjafnanlegt!
Hvers vegna ég segi frá þessu öllu í þátíð, enda þótt gosi sé hvergi nærri lokið, skýrist auðvitað af því, að virknin nú er gjörólík því sem gerðist þarna í maílok.
(Að sjálfsögðu var kaffi og "meððí" með í för).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2021 | 11:07
Hús dagsins: Norðurgata 52
Árið 1948 fékk Jón Guðjónsson leyfi til að reisa hús, skv. meðfylgjandi teikningu. Ekki kom fram frekari útlistun eða lýsing á húsinu. Lóðina fékk Jón árið áður en fullbyggt var húsið 1949. (Til gamans má geta, að þegar þessi skrif birtast eru 74 ár upp á dag síðan Jón fékk lóðina, 4. júlí 1947). Á kortavef Akureyrar er ekki að finna upprunalegar teikningar, en þar má hins vegar sjá járnateikningar Ásgeirs Markússonar og raflagnateikningar Sig. Þorbjarnarsonar.
Norðurgata 52 er tvílyft steinhús á lágum grunni og með lágu valmaþaki. Þá er bílskúr áfastur á norðurhlið og er hann með flötu þaki. Hann mun eilítið yngri en húsið, byggður 1955. Á framhlið er útskot og þar svalir til suðurs með sólskála. Veggir eru með fíngerðum steiningarmúr og bárujárn á þaki. Lóðréttir póstar, sumir með opnanlegum þverfögum eru í flestum gluggum en við norðausturhorn hússins, ofan inngöngudyra er nokkuð skrautlegur hringlaga gluggi, sem vikið verður að síðar í umfjöllun þessari.
Margir hafa búið í húsinu um lengri og skemmri tíma en húsið hefur alla tíð verið tvíbýli, ein íbúð á hvorri hæð. Jón Guðjónsson bakari sem byggði húsið, bjó hér til dánardægurs, 1969, en hann var fæddur í Reykjavík. Dóttir hans og Ingibjargar Þórhannesdóttur (1902-1941) var Jóna Berta (1931-2017). Jóna Berta Jónsdóttir vann hin ýmsu störf, lengi vel á verksmiðjum Sambandsins en einnig á Sjúkrahúsinu. Hin síðari var hún e.t.v. þekktust fyrir að standa vaktina hjá Mæðrastyrksnefnd, en þar var hún formaður um árabil og vann þar, ásamt öðrum heiðurskonum, mjög ötult og óeigingjarnt starf. Hlaut hún árið 2013 Fálkaorðuna fyrir störf sín að mannúðarmálum.
Það sem kannski helst einkennir og prýðir húsið er kringlóttur gluggi nyrst á framhliðinni, skreyttur stjörnu sem svipar til Davíðsstjörnunnar. Skemmtilegt sérkenni og skraut á látlausu en glæstu húsi. Húsið er í mjög góðri hirðu og hefur greinilega fengið ýmsar viðgerðir á umliðnum árum. Það er að mestu leyti óbreytt frá upphaflegri gerð, en sólskáli á svölum mun frá því um 2003. Húsið og lóðin er í mjög góðri hirðu og frágangur allur hinn snyrtilegasti. Þar sem höfundi er ekki kunnugt um, að húsakönnun hafi verið unnin um Norðurgötu norðan Eyrarvegar liggur ekki fyrir hér hvort húsið hafi varðveislugildi. Það er hins vegar eindregið álit þess sem þetta ritar, að öll Norðurgatan skuli njóta óskoraðs varðveislugildis. Þ.á.m. hin langa og heilsteypta röð steinhúsa í funkisstíl frá miðri 20. öld, norðan Eyrarvegar. Myndin er tekin þann 22. apríl 2021.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 1079, 4. júlí 1947. Fundur nr. 1092, 24. apríl 1948. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 3
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 301
- Frá upphafi: 452802
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 169
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar