23.1.2018 | 11:20
Hús dagsins: Fjólugata 13
Árið 1937 fékk Byggingafélag Akureyrar m.a. útvísað þremur vestustu lóðunum við Fjólugötu. Var það Halldór Halldórsson byggingafulltrúi sem fór þess á leit, fyrir hönd áðurnefnds Byggingafélags, að fá þessar lóðir. Félagið hugðist reisa þar hús, sem yrðu tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni og með risþaki, og með svölum yfir neðri hæð að hluta. Þarna var um að ræða hús nr. 11, 13 og 15 við Fjólugötu sem öll munu reist eftir sömu teikningu 1937-38. Þessar lóðir og hús Byggingafélagsins voru áframleigðar til félagsmanna sem reistu og bjuggu í húsinu, númer 11 fengu Gísli Ólafsson og Bjarni Erlendsson en nr. 13 fengu þeir Hermann Ingimundarson trésmiður og Halldór Stefánsson. Þess má geta, að Halldór var tengdafaðir Hermanns. Bjuggu þau hvor á sinni hæð, Hermann og kona hans Anna Halldórsdóttir ásamt fimm börnum þeirra og Halldór og kona hans Ingibjörg Lýðsdóttir. Hefur húsið alla tíð verið íbúðarhús, ein íbúð á hvorri hæð. Árið1940 búa auk Hermanns og Önnu og Halldórs og Ingibjargar tvær ungar systur frá Litladal, Þorgerður og Guðrún Magnúsdætur.
Fjólugata 13 er tvílyft steinsteypuhús með lágu risi og á lágum kjallara. Yfir vestasta hluta neðri hæðar eru svalir og er efri hæð því nokkuð minni að grunnfleti. Einfaldir póstar eru í gluggum og bárujárn á þaki. Á suðvesturhorni neðri hæðar er horngluggi í anda Funkis-stefnu en að öðru leyti er ekki að sjá að slíkra áhrifa gæti á húsinu. Tvær inngöngudyr eru á framhlið, hvor að sinni hæð. Húsið er í góðu standi og lítur vel út, vel við haldið. Á Landupplýsingakerfinu finnast engar teikningar af húsinu, en það gæti m.a. bent til þess, að engar breytingar hafi verið gerðar á húsinu sem krefjast sérteikninga. Því má gera ráð fyrir, að húsið næsta óbreytt frá upprunalegri gerð. Myndin er tekin þann 7.janúar 2018.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1935-41. Fundur nr. 804, 4.sept. 1937. Fundur nr. 808, 8.nóv 1938.
Manntal 1940.
Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2018 | 11:58
Hús dagsins: Fjólugata 11
Er ekki upplagt, að fyrsta "Hús dagsins" á nýju ári sé númer 11 og birtist á 11.degi þess...Hér tek ég upp þráðinn í Fjólugötu á Oddeyri en vestast við þá götu eru þrjú sams konar hús sem öll eru áttræð í ár.
Árið 1937 fékk Byggingafélag Akureyrar m.a. útvísað þremur vestustu lóðunum við Fjólugötu. Var það Halldór Halldórsson byggingafulltrúi sem fór þess á leit, fyrir hönd áðurnefnds Byggingafélags, að fá þessar lóðir. Félagið hugðist reisa þar hús, sem yrðu tvílyft steinsteypuhús á lágum grunni og með risþaki, og með svölum yfir neðri hæð að hluta. Þarna var um að ræða hús nr. 11, 13 og 15 við Fjólugötu sem öll munu reist eftir sömu teikningu 1937-38. Skömmu eftir að Byggingafélagið fékk þessar lóðir voru lóðirnar leigðar, einstaklingum. Lóð númer 11 fengu þeir Bjarni Erlendsson og Gísli Ólafsson og reistu þeir húsið eftir áðurnefndri forskrift byggingafélagsins. Bjó Gísli á neðri hæð en Gísli á þeirri efri. Gísli fékk árið 1943 leyfi til að byggja yfir svalirnar að hluta. Byggði hann yfir norðvesturhlutann en árið 2003 var byggt yfir svalarýmið til suðvesturs, eftir teikningum Þrastar Sigurðssonar. Fékk húsið þá það lag sem það nú hefur. Fjólugata 11 er sem áður segir tvílyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með lágu risi. Um tíma bjuggu í húsinu þau Jenna Jensdóttir og Hreiðar Stefánsson sem starfræktu Smábarnaskólann og voru einnig mikilvirkir rithöfundar, líklega hvað þekktust fyrir Öddubækurnar. Skólin var rekinn í Verslunarmannahúsinu, sem stóð við Gránufélagsgötu 9 en það er horfið- eins og raunar hvert einasta hús sem stóð norðan Gránufélagsgötu, vestan Glerárgötu.
Fjólugata 11 er tvílyft steinsteypuhús með lágu risi og á lágum kjallara. Einfaldir póstar með lóðréttum póstum eru í gluggum og bárujárn á þaki og tvær inngöngudyr eru á framhlið og svalir út af efri hæð til suðurs, frá svipuðum tíma og byggt var yfir gömlu svalirnar. Húsið er í góðu standi og lítur vel út, en ekki eru mörg ár frá gagngerum endurbótum á efri hæð. Það er eitt þriggja húsa sem Byggingafélagið lét reisa 1938 eftir sömu teikningu en eins og gengur og gerist hafa þau tekið ýmsum breytingum, mis miklum, og eru hvert með sínu lagi þó líkindi séu augljós. Húsið er ekki ósvipað í laginu og næstu hús neðan við, þ.e. 1-9 en nokkuð hærra og stærra að grunnfleti. Myndin er tekin þann 7.janúar 2018.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundagerðir 1935-41. Fundur nr. 804, 4.sept. 1937. Fundur nr. 808, 8.nóv 1938.
Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 945, 11.júní 1943
Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2018 | 21:01
Húsaannáll 2017
Að venju birti ég um áramót lista yfir þau hús sem ég hef tekið fyrir á liðnu ári. Hér birtast þær umfjallanir. Ég var kannski ekki eins iðinn og oft áður, stundum liðu jafnvel nokkrar vikur á milli, en stundum fáeinir dagar. En ég kalla þessa þætti engu að síður Hús dagsins, enda eru þau vissulega hús viðkomandi dags, sem þau birtast. En nóg um það.
Ég hef í þessu skrifbrasi mínu einbeitt mér að húsum sem enn standa. Á því hef ég þó gert fáeinar undantekningar og fyrsta hús ársins var síðasti torfbærinn á Akureyri en hann var rifinn fyrir tæpum 70 árum. Að öðru leyti hélt ég mig að mestu á Brekkunni með viðkomu í Innbænum og Oddeyri af og til, og í Grindavík tók ég fyrir hús sem fór með stórt hlutverk í spennumyndinni "Ég man þig". Ég einbeiti mér helst að eldri hverfum; eldri húsum í þessum pistlum, miða svona lauslega við 4.-5.áratug 20.aldar - en auðvitað fá yngri hús að fljóta með. En hér eru "Hús dagsins" á árinu 2017:
14.jan Sibbukofi eða Syðstahús (ca.1860-1949); stóð við Aðalstræti 82
23.jan Aðalstræti 82 (1951)
5.feb Hrafnagilsstræti 2 (1933)
12.feb Hamarstígur 4 (1930)
24.feb Hamarstígur 2 (1930)
12.mars Hamarstígur 6 (1932)
19.mars Krabbastígur 1 (1930)
25.mars Krabbastígur 2 (1929)
27.mars Krabbastígur 4 (1936)
31.mars Klapparstígur 1 (1930)
5.apríl Klapparstígur 3 (1933)
8.apríl Klapparstígur 5 (1938)
15.apríl Klapparstígur 7 (1967)
21.apríl Hamarstígur 1 (1933)
25.apríl Hamarstígur 3 (1934)
3.maí Hamarstígur 8 (1935)
17.maí Hríseyjargata 2 (1923)
28.maí Hríseyjargata 11 (1933)
4.júní Munkaþverárstræti 3 (1930)
8.júní Munkaþverárstræti 5 (1930)
12.júní Munkaþverárstræti 7 (1931)
19.júní Munkaþverárstræti 9 (1932)
28.júní Munkaþverárstræti 11 (1931)
2.júlí Munkaþverárstræti 13 (1931)
11.júlí Hafnarstræti 13 (1934)
18.júlí Munkaþverárstræti 4 (1934)
21.júlí Munkaþverárstræti 8 (1932)
25.júlí Munkaþverárstræti 16 (1930)
29.júlí Bakki í Grindavík (1933)
31.júlí Munkaþverárstræti 6 (1934)
10.ágúst Munkaþverárstræti 10 (1931)
15.ágúst Munkaþverárstræti 12 (1935)
26.ágúst Munkaþverárstræti 14 (1942)
19.sept. Munkaþverárstræti 15 (1935)
27.sept. Munkaþverárstræti 2 (1960)
12.okt. Brekkugata 12 (1917)
22.okt. Grundargata 7 (1920)
29.okt. Bjarmastígur 2 (1946)
10.nóv. Bjarmastígur 4 (1968)
14.nóv Bjarmastígur 5 (1956)
17.nóv. Bjarmastígur 6 (1942)
20.nóv. Bjarmastígur 8 (1952)
24.nóv. Bjarmastígur 10 (1964)
1.des. Möðruvallastræti 1a (áður Eyrarlandsvegur 14b) (1919)
14.des.Gilsbakkavegur 7 (1955)
18.des Gilsbakkavegur 9 (1945)
21.des Gilsbakkavegur 11 (1946)
22.des Gilsbakkavegur 13 (1946)
29.des Gilsbakkavegur 15; Frímúrarahúsið (1946)
Alls eru þetta 50 pistlar um jafn mörg hús á aldrinum 49-100 ára, þar af eitt horfið. Meðalaldur "Húsa dagsins" árið 2017 var 79,4 ár.
Nú kann einhver að spyrja sig, hvort það séu einhver hús að verða eftir til að fjalla um hér á síðunni . En þá er fljótsvarað, að af nógu er að taka og það jafnvel þótt ég miði við hús byggð fyrir 1940-50. Ég mun því halda áfram að birta hér húsamyndir og söguágrip á þessu nýja ári sem fyrr- þó kannski líði stundum langt á milli. Ég mun líklega enn halda mig á Neðri Brekkusvæðinu að mestu en einnig á Eyrinni og í Innbænum.
PS.
Þessi hús "kvöddu" á liðnu ári
Ég segi hér að ofan, að ég einbeiti mér að húsum sem enn standa. En á síðasta ári gerðist það, að tvö hús sem ég hef fjallað um hér voru rifin og heyra því sögunni til. Ekki kom það svosem á óvart, það hafði legið fyrir á Skipulagi um árabil að þessi hús myndu víkja.
Gránufélagsgata 7 var rifin 22.- 24.janúar 2017. Húsið var byggt 1912.
Glerárgata 5 var rifin þann 18.nóvember 2017. Húsið var byggt snemma á 20.öld eða jafnvel seint á þeirri 19., skráð byggingarár Fasteignaskrár var 1900.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2018 | 14:37
Nýárskveðja
Óska öllum landsmönnum gleðilegs nýs árs 2018 með þökk fyrir það liðna. Þakka innlit og viðbrögð hér á síðunni á liðnu ári- og árum. Nýjársmyndin þetta árið er tekin rétt fyrir klukkan 13 í dag, 1.1. 2018, á Ásbrú í Reykjanesbæ og sýnir Nýárssólina. Hún ber við fyrrum stórmarkað Varnarliðsins er var og hét, en fjallið Þorbjörn, ofan Grindavíkur vinstra megin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 53
- Sl. viku: 355
- Frá upphafi: 448662
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 271
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar