Húsaannáll 2018

Að venju birti ég um áramót lista yfir þau hús sem ég hef tekið fyrir á liðnu ári. Hér birtast þær umfjallanir, sem ég birti á liðnu ári, 2018. Ég er misjafnlega iðinn við þetta, stundum líða jafnvel nokkrar vikur á milli, en stundum fáeinir dagar. En ég kalla þessa þætti engu að síður Hús dagsins, enda eru þau vissulega hús viðkomandi dags, sem þau birtast. En nóg um það. Á liðnu ári hélt ég mig að mestu við Ytri Brekku, en fyrstu og síðustu vikur ársins var ég staddur á Oddeyrinni. Þá reyndi ég það sem ég hafði lengi íhugað, og margir hvatt mig til, að koma hluta þessara skrifa út á bók og hóf söfnun á Karolina Fund um sumarið. Úr varð handrit upp á u.þ.b. 170 blaðsíður um neðri hluta Norðurbrekku, milli Grófargils og Hamarkotsklappa. Sú söfnun tókst svosem ekki, þannig að öll bókaútgáfuáform liggja enn sem komið er í salti eða súr hjá síðuhafa.  Færi þeim sem styrktu þessa söfnun hins vegar bestu þakkir fyrir, enn og aftur.smile 

11. jan. Fjólugata 11 (1938)

23. jan Fjólugata 13 (1938)

4. feb Fjólugata 15 (1938)

12. feb Fjólugata 12 (1945)

22. feb Fjólugata 14 (1944)

2. mars Fjólugata 16 (1941)

7. mars Fjólugata 18 (1943)

19. mars Fjólugata 20 (1943)

14. apríl Munkaþverárstræti 18 (1937)

26. apríl Munkaþverárstræti 17 (1937)

6. maí Munkaþverárstræti 19 (1938)

13. maí Munkaþverárstræti 20 (1936)

20. maí Munkaþverárstræti 21 (1937)

26. maí Munkaþverárstræti 22 (1936)

6. júní Munkaþverárstræti 23 (1937)

15. júní Munkaþverárstræti 24 (1938)

21. júní Munkaþverárstræti 25 (1937)

1. júlí Munkaþverárstræti 26 (1936)

8. júlí Munkaþverárstræti 27 (1940)

15. júlí Munkaþverárstræti 28 (1944)

19. júlí Munkaþverárstræti 30 (1942)

25. júlí Munkaþverárstræti 31 (1942)

29. júlí Munkaþverárstræti 32 (1946)

4. ágúst Munkaþverárstræti 33 (1948)

9. ágúst Munkaþverárstræti 34 (1943)

18. ágúst Munkaþverárstræti 35 (1941)

25. ágúst Munkaþverárstræti 37 (1942)

30. ágúst Munkaþverárstræti 38 (1943) 

9. sept.  Munkaþverárstræti 40  (1942)

13. sept. Munkaþverárstræti 42  (1942)

18. sept. Munkaþverárstræti 44  (1943)

20. sept. Munkaþverárstræti 29 (1951)

30. sept. Sniðgata 1  (1937)

9. okt. Sniðgata 2 (1935)

14. okt. Sniðgata 3 (1942)

24. okt Bjarkarstígur 1  (1950)

30. okt. Bjarkarstígur 2  (1943)

4. nóv. Bjarkarstígur 3  (1945)

8. nóv. Bjarkarstígur 4  (1943)

12. nóv. Bjarkarstígur 5  (1945)

16. nóv. Bjarkarstígur 6; Davíðshús (ath. endurbættur pistill frá 2011) (1943) 

25. nóv. Hríseyjargata 13  (1942)

29. nóv. Hríseyjargata 14  (1941)

1. des. Viðarholt; Sunnuhlíð 17 (1918)

6.des. Hríseyjargata 15  (1942)

8. des. Hríseyjargata 16  (1942)

12. des. Hríseyjargata 17  (1943)

15. des. Hríseyjargata 18  (1941)

17. des. Bjarkarstígur 7 (1944)

19. des. Hríseyjargata 19  (1942)

20. des. Hríseyjargata 20  (1941)

22.des. Hríseyjargata 22  (1941)

27. des. Hríseyjargata 8  (1942)

29. des. Hríseyjargata 10 (1942)

Árið 2017 skrifaði ég 56 pistla um jafn mörg hús, það yngsta byggt 1951 eða 67 ára en það elsta 100 ára, byggt 1918.Ef tekið er meðaltal byggingarára fæst 1940,963 sem er nær 1941, m.ö.o. er meðalaldur "Húsa dagsins" 77 ár árið 2018. Viðmiðið hjá mér í þessari umfjöllun, er almennt að "Hús dagsins" séu byggð fyrir 1940-50, að sjálfsögðu með undantekningum. 

Á þessu nýja ári, nánar tiltekið þann 25. júní, verða liðin 10 ár frá því ég hóf þessa vegferð (sem ég reiknaði allt eins með að myndi lognast út af hjá mér á nokkrum mánuðum). Sjálfsagt reyni ég að líta eitthvað til baka og gera eitthvað með þetta afmæli hér á síðunni, eftir því hverju ég nenni.  En umfjöllunarefni næstu vikna eru göturnar Hlíðargata og Holtagata á ytri Brekku. Þá eru þarna Lögbergsgata og einhver hluti Helgamagrastrætis, en þess má geta, að við síðarnefndu götuna standa ámóta mörg hús og öll "Hús dagsins" árið 2018, þ.a. ljóst má vera, að nóg er framboð af mögulegum "kandidötum" í Hús dagsins. cool  


Bloggfærslur 3. janúar 2019

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • P8310011
  • IMG_2902
  • IMG_2908
  • IMG_2904
  • IMG_2903

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 26
  • Sl. sólarhring: 140
  • Sl. viku: 361
  • Frá upphafi: 449280

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 276
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband